Bjarmi - 01.11.1994, Blaðsíða 19
tók mig með valdi og fór með mig til manns-
ins sem ég átti að giftast. Ég barðist hart á
móti og grét en ekkert stoðaði. Fyrst framan af
sat ég sárhrygg inni í kofanum okkar. Hann
átti eiginkonu fyrir. Hún hafði alið honum 11
börn. Einungis fjögur þeirra voru á lífi.
Það kom að því að ég fæddi barnið mitt.
Maðurinn minn svipti það lífi þegar í stað.
Hann hnýtti band um háls þess og kyrkti það.
Síðan henti hann því út í skóginn. Ég grét við-
stöðulaust. Hvað gat ég svosem gert?
Nú á ég tveggja ára gamla stúlku. Mér þyk-
ir innilega vænt um hana. Það fer vel á með
okkur eiginkonunum tveimur. Hún var einu
sinni í Alduba þar sem hún heyrði orð Guðs í
fyrsta sinn. Hún vill heyra meira og vita hvað
það er að vera kristin.
Ég trúi því að Jesús hafi fyrirgefið mér
synd mína. Ég þrái að vera barn Guðs. Mig
langar til að koma þangað sem orð Guðs er
boðað en maðurinn minn leyfir mér það ekki.
Hann hefur séð að ég hef verið að lesa í Nýja
testamentinu. Þá biður hann mig að hætta að
lesa. Hann hefur ekki enn þá tekið bókina af
mér.
/
Eg á heima í heiðnu umhverfi þar sem
fólk tilbiður illa anda og færir þeim fórn-
ir. Maðurinn minn er farinn að borga fyrir
þriðju eiginkonuna. Hún er ekki enn orðin
fullvaxta. Hann misþyrmir okkur konunum
tveimur þegar hann kemur drukkinn heim á
kvöldin. Ég hef margsinnis ætlað að strjúka en
ég veit að hann nær í mig.
Ég kvíði mjög fyrir því að fara aftur heim.
Hann leyfði mér að vera i burtu í þrjá daga en
nú eru þeir orðnir fjórir. En jafnframt þrái ég
að sjá dóttur mína.
Sem ég sit og hlusta á Gajdu spyr ég sjálfa
mig: Hvernig get ég hjálpað henni? Ég held að
ég spilli fyrir ef ég færi að blanda mér í mál
hennar.
Við tökum fram Biblíuna og lesum saman í
orði Guðs. Svo biðjum við Guð, sem allt sér,
að vera hjá Gajdu og gera liana að votti sínum
þar sem hún er.
Vilt þú líka biðja fyrir Gajdu? Heiðindóm-
urinn ræður ríkjum þar sem hún á heima. Hver
veit nema Guð geti notað hana til þess að
leiða einhvern til Jesú.
Heyrirðu kallið frá þjóðflokkunum suður
frá? Þeir hrópa: Kom yfir og hjálpa oss!
Elsa Jacobsen, krístniboði.
Fagitaðareríndið veit-
ir gleði í hjarta og
varpar birtu fram á
veginn. Æ fleiri Afr-
íkumenn taka á móti
Kristi og fylgja hon-
um. Þó bíða enn þjóð-
flokkar, fjötraðir í
andahyggju og vond-
um siðum. Neyð
þeirra er kall til krist-
inna manna um að
flytja þeim hið lifandi
orð Guðs.
DJAPAAI 19