Heima er bezt - 01.11.1951, Qupperneq 27

Heima er bezt - 01.11.1951, Qupperneq 27
Nr. 9 Heima er bezt 283 Kortið sýnir leið þá, sem Vasco da Gama fór fyrst til Indlands árin 1497—1499. sóknarför sinni til Palestínu, Egyptalands og Arabíu Hann hafði ásamt fylgdarmanni lagt af stað á kostnað konungsins til þess að fá sannar og nákvæmar upplýsingar um hin eftirsóttu Indíalönd. Ferðafélaginn gafst fljótt upp á erfiðleikum ævin- týrsins, en Pedro hélt áfram. Með árunum tókst hann á hend- ur víðtæk ferðalög og þýðingar- mikil til strandlengjunnar í átt að Indlandi. Á heimleiðinni sendi hann bréf frá Alexandríu til hirðarinnar með fyrstu frásögn- inni, en þá fékk hann tilmæli um að halda ferðinni áfram til Abes- siníu. í bréfi þessu voru eftirfar- andi atriði tekin fram: — Sigli maður út frá Guinea, hljóta skipin, ef þau halda stöð- ugt áfram, að ná þeim stað, þar sem meginland Afríku nær ekki lengra. Ef skipin hinsvegar halda áfram austur á bóginn, finna þau í því austlæga hafi Máney og Sofala. Það eru nefnilega til sjófarendur, sem geta komið skipaleiðangri til Indlands! Máney og Sofala! Portúgalir höfðu þegar í fyrri leiðöngrum komizt tuttugu og fimm sjómílur austur fyrir Algoavík. Þangað náði veldi þeirra á sjónum. Arabir bjuggu yfir þekkingunni á leiðinni frá Sofala til Indlands. Það var því um að gera að brúa bilið milli Algoavík og Sofala, og þá myndi öll sjóleiðin til Indlands vera þekkt. Þá væri keðjan heil. Þetta Portugalskt skip frá 1500. hlutverk var lagt Vasco da Gama í hendur, hlutverk, sem færa myndi honum ótakmarkaðan heiður, ef hann gæti skilað því. Máney og Sofala! Þarna lá leyndardómurinn að gengi hans. Það var því ekki að undra, þótt bæði þessi nöfn kvæðu við í eyrum hans. Diaz hafði orðið að nema staðar sök- um mótmæla skipsáhafna hans á leiðinni austur fyrir Algoavík, en ekki skyldi hann fara að nema staðar á þröskuldinum að sjálfu undralandinu, Indlandi. Hann vildi komast lengra en aðrir. Ekkert skyldi geta heft för hans! Hann greip þéttara um log- andi blysið og rétti úr bakinu. Og á meðan sálmasöngurinn hækk- ar stöðugt, unz hann verður eins og fagnaðarsöngur, kemst fylk- ingin til Rastello, þar sem skip- in blasa við í fyrstu heitu morg- ungeislunum, en Vasco da Gama hefur fyrir munni sér þau töfra- orð, sem eiga að veita leiðangri hans brautargengi, og í rödd hans er slík alvara, sem væri hann að lesa einlæga bæn. Máney! Sofala! Þessi nöfn sungu í eyrum manns eins og særingarþula eða dásamleg tónlist. Þau voru svo óvenjuleg, óskiljanleg, svo fjar- læg. En honum skyldi takast að afhjúpa þau, ná valdi yfir þeim í krafti dirfsku sinnar, og gera þau að takmarki og höfuðmiði giftusamlegrar farar til hins leyndardómsfulla, tælandi Ind- lands, sem enginn hafði kynnzt til fulls! Niðri við skipin er sungin há- tíðleg messa. Sjómennirnir skrifta og taka á móti blessun- arorðum og syndafyrirgefningu knéfallandi. Þeir stíga um borð rólegir og vongóðir. Seinastur fer Vasco da Gama, en um leið er hið rauða flagg hans dregið að hún. En á meðan strendur Portúgals hverrfa sjón- um hans, reifaðar sólgliti, tautar Vasco da Gama hin leyndar- dómsfullu orð fyrir munni sér, orðin, sem veita skyldu ráðningu á leyndardómum Indlands: Máney! Sofala! I. Þetta var þann 8. júní 1497. Þá lagði Vasco da Gama upp í ferð sína til Indlands. Það er hægt að segja frá þessu með nokkrum orðum, en að baki þessa fyrir- tækis lágu mörg undirbúnings- ár. Öldum saman hafði Indland verið draumaland ævintýranna. Gull, silfur og ómetanlegir hlut- ir í augum vestrænna manna, svo sem kryddvörur og fleira, kom frá Indlandi. En verzlunar-

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.