Heima er bezt - 01.02.1952, Blaðsíða 4

Heima er bezt - 01.02.1952, Blaðsíða 4
36 Heima er bezt Nr. 2 og Sveinn Björnsson skyldi verða fyrsti þjóðhöfðingi hennar. Hann hafði langa reynslu sem diplomat; og framkoma hans var í senn virðuleg og alþýðleg. Um áratugí hafði hann verið fjarri stjórnmálaþrasinu og var hafinn yfir allar flokkadeilur, sem lengi hafa hvílt eins og mara á þessari þjóð. Er ekki' gott að vita hvernig farið hefði, ef Sveins Björnssonar hefði ekki notíð við, þegar þjóðin, mitt í umróti styrjaldarinnar tók öll mál sín í sínar hendur. Verður sæti hans vandfyllt og er ósk- andi að þjóðin beri gæfu til að velja eftirmann hans í samræmí við það, sem henni gagnar bezt og forðist allar flokkadeilur og klíkuþröngsýni í því sambandi. Með því væri minningu fyrsta þjóðhöfðingja íslands mestur sómi sýndur. Sveinn Björnsson talaði til þjóðarinnar við hver áramót, og síðast þ. 1. janúar síðastliðihn. í þessum áramótahugleiðingum hans kom það skýrt fram, hve frjálslyndur hann var. Ræður hans voru þrungnar af bjartsýni og einlægri ósk um að lands- menn vildu vinna í eindrægni að þeim málum, sem framtíð þjóðarinnar er undir komin. Ræktun landsins var honum mikið áhugamál. Og eins og hann trúði á landið, svo hafði hann og óbifandi trú á þjóðinni sem byggír það. Það er sánn- mæli, er hann segir í síðustu áramótaræðu sinni: „Góð menntun, samúð og góð- vild, eru þau leiðarljós, sem munu leiða oss til betra lífs í landi voru, því að hvorttveggja er gott: landið og fólkið“. Sveinn Björnsson kvæntist árið 1908 eftirlifandí konu sinni, frú Georgiu Björnsson, dóttur Emils Hansen jústizráðs í Hobro á Jótlandi. Eignuðust þau mörg mannvænleg börn. Frú Georgia Björnsson hefur áunnið sér ást og virðingu íslendinga, og hefur við hlið manns síns unnið mik- ilsvert starf fyrir þjóðina, með því að setja svip á æðsta heimili landsins, með miklum ágætum. EYÞÓR ERLENDSSON skrifar um Dagur er að kvöldi kominn. Síðustu geislar hnígandi sólar varpa fölleitum bjarma yfir landið umhverfis og sveipa það mildum hjúp. Hinar skörpu lin- ur, sem einkenna íslenzka fjalla- náttúru, mýkjast að mun og fá á sig laðandi mynd. Jafnvel fannahvel Langjökuls er mildi- legra ásýndum en áður. — En svo hverfur sólin skyndilega með öllu, bak við hábungur jökulsins, og geislaglit hennar dvínar á samri stund. Dagurinn, sem er að kveðja, er annar dagur júlímánaðar, á því herrans ári 1940. Hann hefur verið bjartur og fagur og skilur eftir hugþekkar minningar. Ég hef verið á ferðalagi frá því snemma morguns. Hestarnir tveir, sem ég hef til reiðar, eru því teknir að lýjast og ég læt þá lötra í hægðum sínum eftir hinni grýttu og ójöfnu leið, sem ligg- ur niður af Bláfellshálsi að norð- anverðu. Öræfavíðáttan, hljóð og dularfull, breiðist framundan, en að baki lokast leiðin af Blá- felli og Bláfellshálsi. Sjónarsvið- ið er margbrotið og fagurlega mótað. Hvítárvatn og fellin fögru, sem lykja um það vestan- vert, sjást greinilega. Fljóta ís- bákn um vatnið á víð og dreif og gefa því sérkennilegan svip, svo að það dregur öðru fremur að sér athyglina. Um frekara út- sýn til vesturs er eigi að ræða, því Langjökull lokar þar öllum leiðum, eins og ógnandi jötun- múr. í norðri rís Hrútafell, svip- fagurt og ægibratt. Austanvert við það má greina Kjalhraun og Kjalfell. Lengra til austurs verð- ur útsýni allt ógreinilegra, því að yfir Hofsjökli og Kerlingar- fjöllum grúfir drungalegur þoku- mökkur, sem hylur þau að mestu. Þessi mökkur er mér all- mikill þyrnir í augum, því að til Kerlingarfjalla er förinni heitið. Eftir skamma stund kem ég að Hvítá, þar sem brúin liggur yfir hana. Hef ég þar litla viðdvöl, en held förinni áfram. Þegar yfir ána kemur tek ég F erð það ráð að halda upp með Jök- ulfellinu svonefnda og hugðist með því stytta mér leið. Hafði mér verið ráðlagt þetta. En sú ráðlegging reyndist mér vafa- samt heilræði, því að þarna er um vegleysur einar að ræða og auk þess virtist mér, að þessi leið myndi vera litlu skemmri en bíl- vegurinn, sem vestar liggur. En þegar ég komst að raun um þetta, var ég kominn lengra en svo, að til mála kæmi að snúa við. Kvöldið leið og nóttin sveip- aði blæju sinni yfir ríki öræf- anna. Órofaþögn drottnaði um- hverfis. Fjöll og hæðir gnæfðu þóttaleg við himin, nær og fjær. Dauðamók virtist altaka nátt- úruna. Og þessi lífvana kyrrð hafði í sér fólgið eitthvert svæf- andi áhrifavald, einhvern frið- andi mátt, dulrænan og voldug- an. Hann þrýsti sér inn í vitund mína og leitaðist við að ná tök- um á mér. Þörfin fyrir hvíld og svefn knúði á. En ég vísaði henni jafnharðan á bug, því að ennþá var eigi tími til kominn að taka á sig náðir. Það gat eigi orðið fyrr en sæluhúsi Kerlingarfjalla var náð. Ég hraðaði förinni eins og unnt var, en þó var sem mér miðaði undur hægt áfram. Hestana varð ég að hvíla öðru hverju, til þess að ofþreyta þá ekki. Þeir urðu sýnilega fegnir hverjum gróðursælum bletti. Þar vildu þeir stanza og lét ég það venju- legast eftir þeim. Þannig leið hver klukkutím- inn af öðrum, án þess að neitt sögulegt bæri til tíðinda. Um- hverfið tók litlum breytingum langan tíma, nema hvað fjöllin, sem risu að baki, fjarlægðust smám saman. Kerlingarfjöll, sem nálguðust framundan, sáust hins vegar ekki nema að litlu leyti, því að þau voru stöðugt hulin myrkum þokuhjúp. Engar lifandi verur urðu á leið minni lengi vel. Að lokum sá ég tvo svani i dálitlum gróðurreit, fast við Jökulfallið. Þeir voru

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.