Heima er bezt - 01.02.1952, Blaðsíða 7

Heima er bezt - 01.02.1952, Blaðsíða 7
Nr. 2 Heima er bezt 39 Jórunn Ólafsdóttir: V IÐ ARINELD Það er kvöld í baðstofunni. Heimilisfólkið hefir safnazt sam- an að lokinni dagsönn. Fró hvíldarinnar og nautn frelsisins gerir því hlýtt í skapi. Ef til vill hefur það í leyni hlakkað til þessarar stundar allan daginn, hlakkað til að fá losnað úr álagaviðjum skylduannar og notið hvíldar og kyrrðar. Ef til vill liggur strangur og storma- samur dagur að baki, válegur og veðurharður, þegar kuldinn beit í kinnar og fanndyngjan þyngdi gönguna, svo að karlmönnunum urðu útiverkin helmingi erfiðari og tafsamari en ella. Ef til vill hefur kvenfólkið einnig átt erf- iðan dag við stórþvott, hrein- gerningu, bakstur eða eitthvað þess háttar. En þó að svo hafi ekki verið, þó að dagurinn hafi liðið fram ljúfur og hljóðlátur, óbrotinn og vandkvæðalaus, þá eru allir fegnir, þegar annir hans og kvaðir liggja að baki og kvöldvakan hefst. Hún er eins og stormahlé, — vin í eyðimörku, sem veitir þráða hvíld, frelsi, styrk og gleði. — Þegar veðrahamur ríkir, þegar stormurinn hristir húsin og fönnin byrgir glugg- ana, þá er öryggi og ó- blandin nautn að sitja við arin sinn og njóta hvíldar eftir baráttuna við Kára gamla og fylgifiska hans. Máske er sjaldan eins sælt að nj óta kvöldkyrrðarinn- ar og heimilishlýjunnar sem þá. En sé gott og fag- urt veður úti, mánaskin, stjörnubirta, norðurljós, sem hellist eins og gull- regn yfir snævi þakta jörð, svo að skrúði hennar virð- ist alsettur gylltum perl- um, þegar klettar, tindar, glýpur, hólar og hæðir taka á sig töfrablæ og rísa 1 hillingum sem álfaborgir og ævintýrahallir.þá verð- ur ýmsum tíðlitið út um glugga sinn til að fá not- ið þeirrar fegurðar, sem við aug- um blasir. Ef til vill langar þá líka einhvern, sem inni er bundinn, til að koma út og fá notið töfranna í enn ríkara mæli. En geti hann það ekki, hverfur hann gjarnan á vit hins liðna tíma, þar sem minningarnar vaka og ljúka upp ævintýrahöll- um æskuáranna, þar sem unað- ur lífsins var ekki óveruleg hill- ing, heldur glæstur veruleiki. En æskan unir sér ógjarnan innan fjögurra veggja á slíkum kvöld- um. Börn og unglingar hverfa úr bæjarskjólinu með sleðana sína, skíðin eða skautana og fara í kappgöngu eða kappakstur eftir ísgljánni eða snjóbreiðunni. Það stríkkar á vöðvunum og taug- arnar verða spenntar, blóðið þýtur í æðunum, hugur fyllist móði og gleði og áhugi gneistar af hvarmi. í þennan heilsubrunn, iðkun hollra íþrótta undir ber- um himni, hefur íslenzk æska sótt þrek og móð um aldaraðir. Að lokum hverfur æskufólkið heim til bæjar. Það flytur fersk- an andblæ til þeirra, sem fyrir eru inni, er það heilsar rjótt og mótt með bros á brá og blik í tindrandi augum. Þegar inn er komið hverfur það gjarnan að einhverju verki. Yngismeyjarnar prjóna, hekla eða sauma, eða leggja stund á hinar fínustu hannyrðir, sauma dýrindis rósir og sveiga í sessur og svæfla handa sér eða þeim, sem heillar hug þeirra öðrum fremur og á vísast eftir að verða lukkusveinn þeirra og lífsföru- nautur. Yngissveinarnir föndra sitthvað smálegt, taka t. d. fram fínu sögina sína, fá sér kross- viðarplötu og skapa fallegan myndaramma eða einhver ann- an dýrgrip, sem þeir svo gefa — eða geyma, unz sú stund kem- ur, að þess gerist þörf að láta verkin tala og vitna um mann- gildið. Yngstu meðlimir fjöl- skyldunnar leika sér á gólfinu að gullum sínum og byggja spila- borgir sínar í öryggi hins barns- lega trausts. Eldra fólkið hefur að sjálfsögðu verk með höndum. Kvenfólkið stundar tóvinnu, saumaskap eða hannyrðir. Rokkar eru þeyttir, því að enn eru þeir hlutir í heiðri hafðir allvíða, þótt sumum finnist þeir lítt samrýmast tízku og tækni nútímans og vilja því útskúfa þeim, sem fleiru, er á sér stoð og uppruna í fortíðinni. Mörg konan heldur samt tryggð við rokkinn sinn, enda þótt önnur og stór- virkari tæki séu nú tekin að gegna hans hlutverki. Á kvöldvökunni grípur hún gjarnan til þessa gamla vinar, hjólið snýst, lágt þythljóð myndast, lyppan líður mjúklega um öruggar hendur. Kamb- arnir koma máske líka á gang, þó að þeir séu samt enn úreltara þing en rokkarnir, prjónarnir kveða við um leið og þeir mynnast við lykkjurnar, nál og þræði er beint að dúk og dregli. Handavinna kvenfólksins er margþætt og mjög listræn, ef vel er á verki haldið. Karlmennirnir láta sér tíðum hægt með vinnu- brögðin, þegar útiverkin Bóndinn kembir ull, dóttirin vindur hnykil og konan spinn- ur kemburnar á rokk.

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.