Heima er bezt - 01.02.1952, Blaðsíða 6

Heima er bezt - 01.02.1952, Blaðsíða 6
38 Heima er bezt Nr. 2 það mér fyrir sjónir, og má vera, aS þokan hafi átt sinn þátt í því. Barmar gljúfursins eru næsta óreglulegir og hafa sýni- lega sorfist sundur af völdum vat]?s og vinda um aldaraðir. í heild sinni er gljúfrið skuggalegt og niður árinnar hljómar ann- arlega í djúpum þess. Að nokkrum tíma liðnum sá ég móta fyrir dal einum og vissi samstundis, að þar myndu Neðri- Hveradalir vera. Gekk ég svo fram á dalbrúnina og litaðist um. Og mér gaf á að líta! Fyrir fótum mér lá þröngur dalur, svo furðulegur að litskrúði, að ég hef eigi fyrr né síðar séð jafn litauðugt land. Voru litirnar af öllum gerðum, rauðir, gulir, grænir og bláir, og svo óendan- legt sambland allra þessara lita þar á milli. Engin þoka var í dalnum, en ótölulegur fjöldi gufustróka sté upp frá botni hans og hlíðum. Út frá dal þess- um gengu svo aðrir minni dalir, en þá sá ég eigi jafn greinilega. Ég tók nú þegar að athuga möguleika fyrir að komast nið- ur í þessa ævintýralegu dali, því að ég vildi umfram allt kanna þá nánar. Þaðan, sem ég var staddur, var eigi viðlit að kom- ast í dalina og gekk ég því áfram með þeim nokkurn spöl. En þar virtist alls staðar illfært niður, enda lágu jöklar fram á dala- brúnir. Sneri ég þá til baka og fann þá, eftir nokkra leit, grunn- an skorning, er ég komst niður um með hægu móti. Niðri í dölunum var blæjalogn og yndislegt að vera. Þokan sveif hið efra meðfram dalabrúnun- um, en náði eigi að seilast ofan í dalina sjálfa. Voru viðbrigðin svo mikil, að koma úr kulda- legri þokunni í veðurblíðuna þarna, að mér fundust þetta vera einskonar sæludalir. En þótt veður væri kyrrt og blítt þarna niðri, var þar eigi hljóðlátt að sama skapi. Hvar- vetna heyrðust margvísleg hljóð. Ótal raddir hljómuðu nær og fjær. Sumar voru veikróma og þróttlitlar, en aðrar háværar, ólmar og æðislegar. Þessar kynlegu raddir komu allar frá hverunum. Þeir voru þarna við hvert fótmál að kalla, ýmist gufu- eða leirhverir. Fjöl- breytni þeirra virtist takmarka- laus. Voru sumir forkunnar fagrir og umvafðir dásamlegu litskrúði, þar sem öll blæbrigði lita sameinuðust. Aðrir höfðu fáránlegar myndir, jafnvel ægi- legar, svo að mér stóð nálega ógn af. Ég reikaði víða um dalina, hugfanginn og undrandi. Alls staðar voru hverir, stórir og smáir, alls staðar kraumandi leireðja og þjótandi gufumekk- ir. Sums staðar varð ég að fara gætilega, því að gapandi hvera- opin gátu leynzt í mekkinum, sem huldi á stöku stað allmikil svæði. En allt fór þó vel og ég slapp farsællega út úr öllum slík- um háska. Mér dvaldizt lengi þarna í dölunum, því að margt var að skoða, eins og gefur að skilja. Að lokum hélt ég samt brott þaðan, og þó heldur treglega. Raun- verulega fannst mér, að dvöl mín þar væri allt of skammvinn. Ég þóttist sjá, að tilgangslaust væri að fara víðar um fjöllin, og hélt því til baka, sömu leið og ég kom. Þokan var enn hin sama, myrk og hráslagaleg, þegar upp úr dölunum kom, og taldi ég því öruggast að hafa enn — í bak- leiðinni — hliðsjón af gljúfri Ár- skarðsár, sem ég og gerði. Gekk mér ferðin vel og var ég von bráðar kominn að sæluhúsinu aftur. Eftir gönguför mína í Hvera- dali, tók kég að búast til brott- ferðar úr Kerlingarfjöllum. Hafði ég í hyggju að gista í sælu- húsinu í Hvítárnesi nótt þá, sem framundan var, og stytta þann- ig heimleiðina fyrir næsta dag. Hestarnir höfðu nú jafnað sig vel eftir kuldann um morgun- Sparið peningana Gerizt áskrifendur að EIMA ER BEZT V.____________________- inn. Hafði þeim hlýnað fljótlega, eftir að þeir komust í húsaskjól- ið, og voru nú auk þess mettir orðnir af grængresinu í Ár- skarði. Klukkan mun hafa verið um sex, er ég lagði af stað úr Kerl- ingarfjöllum. Fór ég nú að sjálf- sögðu bílveginn til baka og sótt- ist mér ferðin greiðlega niður í Hvítárnes. í sæluhúsinu í Hvítárnesi var einn maður staddur, er ég kom þangað, Húnbogi Hafliðason að nafni. Stóð vera hans þar í ein- hverju sambandi við fjárvörzl- una, sem áður getur um. Þótti mér vænt um að fá þarna ó- væntan félaga til að rabba við. Fagurt var í Hvítárnesi þetta kvöld. Þoka var þar engin, en veður bjart og kyrrlátt. Allt var hjúpað mildri aftankyrrð. Hvít- árvatn sjálft var sem spegill og endurspeglaði stöðugt sí- breytileg blæbrigði himindjúps- ins. Bak við það í vestri risu tíguleg fell, ásamt skínandi hjarnbreiðum Langjökuls, er teygðu kalda arma sína niður í vatnið, í gerfi hrynjandi skrið- jökla. Var mynd þessi svo mikil- fengleg, að orð megna eigi að gefa nema óljósa hugmynd þar um. Árla næsta morguns, eftir góð- an og endurnærandi svefn í sæluhúsinu, lagði ég svo af stað heimleiðis úr Hvítárnesi. Hún- bogi fylgdi mér á leið og riðum við greitt eftir sléttum, grösug- um völlum, skammt frá vatninu. Á einum stað urðu á leið okkar stóreflis björg, með stuttu milli- bili. Þóttist ég sjá, að þau myndu vera minjar eftir skriðjökla ís- aldarinnar, enda bar lögun þeirra vott um, að svo væri. Ennþá hvíldi þokudrungi yfir Hofsjökli og Kerlingarfjöllum, en að öðru leyti var bjart yfir, hvert sem litið var. Eftir nokkra stund sneri Hún- bogi aftur og ég var enn orð- inn einn á ferð. Leiðin framund- an var mér vel kunn og endalok ferðarinnar því augljós orðin. Sem heild var ferðin skuggum blandin og hafði að vissu leyti misheppnast. En mér hafði þó auðnast að sjá eitt af undrum íslenzkrar náttúru — Hveradali Kerlingarfjalla.

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.