Heima er bezt - 01.02.1952, Page 29

Heima er bezt - 01.02.1952, Page 29
Nr. 2 Heima ER BE'ZT 61 fékkst við stálframleiðslu í 50 ár, varð oft fyrir vonbrigðum, en gafst ekki upp. En svo komst Krupp í samband við Englend- ing einn, Henry Bessemer að nafni. Þessi afburðauppfinn- ingamaður komst að þeirri Tiiðurstöðu, að hægt væri að komast hjá því að framleiða hrájárnið sem lið í stálfram- leiðslunni. Leysti hann vanda- málið á þann hátt, að hann „brenndi“ kolainnihald járn- steinsins með lofti. Hitnaði hrá- járnið svo, að það bráðnaði, en um leið brann kolefnið og þá var stálið tilbúið. Iðnaðurinn, og þá fyrst og fremst fyrirtæki Krupps, sparaði mikið með þessari nýju aðferð og heimsframleiðslan af stáli steig næstum því ótrúlega, um það bil fertugfaldaðist á 50 árum. Brátt urðu nýjar uppgötvanir heyrinkunnar. Frakkinn Martin fann upp að nota brotajárn. Þjóðverjinn Siemens framleiddi endurnýjara sína......Svo kom nikkelið til sögunnar — seinna Mangan- og Chromblandan. Stál nútímans var komið fram á sjónarsviðið, og stálhungur her- gagnaiðnaðarins var óseðjandi. Mesti stálframleiðandi heims- ins varð þó Andrew Carnegie. Sjálfur hefur hann ekkert fund- ið upp, en á sjöunda tug aldar- innar sem leið, tók hann að sýna áhuga fyrir stálframleiðsl- unni. Hann skildi þýðingu stáls- ins og hóf þegar að byggja brýr og járnbrautir og keypti heil námuhéruð. Einnig tók hann flutningatækin undir sig, en það varð grundvöllurinn að mesta iðnaðarfyrirtæki þessarar aldar, ameríska stáliðnaðinum. Stálið stjórnar. Járn og kol er undirstaða stál- iðnaðarins. Hvorttveggja er til í ríkum mæli, og á þeirri stað- reynd hvílir vald stáliðnaðarins. Sérfræðingar álíta, að i djúpum jarðar séu minnst 250 milljarð- ar tonna af járnsteini. Fram- leiðslan af steinkolum nemur meira en 1 milljarði tonna á ári hverju. Afkvæmi járns og kola, stál- ið, er orðið einvaldi á hnettin- um. Baldur Bjarnason: WASHINGTON IRWING Margir hér á landi kannast ennþá við Washington Irwing. Smárit eftir hann, sögur frá Al- hambra, var eitt sinn mikið lesið hér á landi. Irwing var samaldri Byrons en varð langlífari. Hann fæddist 1783 og dó 1850. Irwing var Ameríkumaður af enskum og skozkum ættum. Móðir hans var Orkneyingur. Irwing fór snemma að fást við ritstörf og verzlun, en var lítt heppinn í fyrstu. Hann flutti þá til Englands og var þar um skeið. 1824, sama árið og Byron lávarður dó, þá heimsfrægur maður, fékk Irwing sína fyrstu viðurkenningu í Ameríku. Þá kom út ferðasögusafn hans. Hann dvaldist síðan um skeið á Spáni, skrifaði bók um Kolum- bus og félaga hans, og kom sér all vel fyrir, bæði sem rithöf- undur og í efnalegu tilliti. Hann dvaldi um alllangt skeið í Gran- ada og Suður-Spáni, og þá kom út eftir hann vestan hafs hið ljómandi rit: Sögur frá Al- hambra. Þetta rit skóp honum heimsfrægð seint og siðarmeir. Þegar hann sat á svölum Al- hambra hallar, eða lék sér í döl- um Sierra Nevada-fjalla, vakn-^ aði hjá honum endanlega sú skáldæð, sem skóp ódauðleg listaverk. Þegar hann lék sér á hinum serknesku höllum, fór hann að hugleiða örlög hinna serknesku og múhameðsku Andalúsíumanna. Þetta var upphafið á ritgerðum hans, æf- intýrum og skáldsögum um serkneska tímabilið glæsta, þeg- ar Suður-Spánn var mesta menningarland heimsins. í skáldskap Irwings var þessi timi ennþá glæstari, ævintýralegri og vafinn rómantískri töfrablæju. Hann sá hið serkneska tímabil gegnum skrautlitað stækkunar- gler, horfinnar frægðar kalífa- dæmisins í Cordova og emírats- ins í Granada. Irwing var svo mikill stílisti og smekkmaður, að rit hans unnu alls staðar hylli og aðdáun. Glæsileiki hins serk- neska kalífadæmis varð í aug- um manna ennþá meiri er menn hugleiddu volæði Spánar eftir að hinir serknesku Andalúsíu- menn höfðu yfirgefið það land í byrjun 17. aldar, og hinir dug- lausu Spánverjar höfðu látið vatnsveitur þeirra, hallir og verksmiðjur falla í rústir. Þegar Irwing kom aftur til Bandarikj- anna 1832, var hann orðinn heimsfrægur maður. Hann varð síðar sendiherra Bandaríkjanna á Spáni. Irwing er fyrsti ameríski rit- höfundurinn, sem vann sér heimsfrægð. Hinn fágaði stíll hans, mýkt hans og lipurð geta enn í dag verið mörgum fyrir- mynd. í flestu var Irwing mjög ólíkur Byron. Byron var orðinn heimsfrægur fyrir þrítugt. Irw- ing varð það ekki fyrr en hann var kominn undir fimmtugt. Byron lávarður fékk fyrstu við- urkenningu sina liðlega tvítugur. Irwing fékk sína fyrstu viður- kenningu liðlegá fertugur. Irw- ing var heilbrigður maður á sál og líkama og fyrirmynd manna í dyggðum og háttsemi. Þegar hann dó 1850, höfðu sumir gef- ið honum nafnið: „Faðir amer- ískra bókmennta“.

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.