Heima er bezt - 01.09.1952, Qupperneq 3
Nr. 9
Heima er bezt
259
Samband ísl. samvinnufélaga
Sumarið er einkum tími al-
þjóðaþinga og þar með gagn-
kvæmrar kynningar milli þjóð-
anna. Það er ekki langt síðan
fyrst voru haldin alþjóðleg mót
hér á landi, enda var samgöng-
um þannig háttað, að of langur
tími hefði farið í ferðalög milli
landa. En flugið hefur skapað
byltingu á þessu sviði, eins og
svo mörgum öðrum. Nú er talið
sjálfsagt, að mót af þessu tagi
séu haldin hér, eins og í ná-
grannalöndunum. Þetta er gleði-
leg þróun, því að fátt er eins vel
til þess fallið að auka kynni og
bræðraþel meðal þjóðanna og
slíkir fundir og mót manna frá
ýmsum löndum.
Einn af merkari viðburðum
sumarsins er fundur miðstjórn-
ar Alþjóðasambands samvinnu-
50 ára
manna, sem haldinn var hér í
Reykjavík í byrjun júlímánaðar.
Samtímis þessum fundi var
minrlzt fimmtíu ára afmælis
Sambands íslenzkra samvinnu-
félaga.
Sambandið var stofnað í Yzta-
felli í Þingeyjarsýslu árið 1902.
Var stofnun þess einn þátturinn
1 sjálfsbjargarviðleitni bænda-
stéttarinnar og baráttunni fyr-
ir bættum verzlunarháttum, en
öll verzlun landsmanna hafði
öldum saman verið í höndum er-
lendra og hálferlendra kaup-
manna, eins og kunnugt er.
Samband íslenzkra samvinnu-
félaga hóf starfsemi sína í mjög
smáum stíl. En út af þessum
litla vísi varð til einhver öflug-
asta stofnun, sem nokkurntíma
hefur starfað hér á landi. Hún
er árangurinn af starfi fólksins
í sveitunum undir forustu bjart-
sýnna hugsjónamanna, sem
vegna þrautseigju og óbifandi
trúar á hugsjón sína leiddi til
glæsilegs sigurs.
En ekki er allt fengið með
sigrinum. Ef til vill er engum
meiri vanda á höndum en þeim,
sem hefur unnið sigur í lang-
vinnri og oft harðvítugri bar-
áttu. Hugsjónirnar vilja oft
gleymast og eldur áhugans
dofna. Einhver hin bezta ósk til
handa þessum voldugu samtök-
um er, að þau mættu einnig í
framtíðinni halda trútt við þær
Mynd þessi var tekin í hátíðasal Háskóla íslands, er miðstjórnarfundur Alþjóðasambands samvinnumanna hófst þar.
■ Sést inn eftir fundarsalnum, og er fánaborg samvinnulandanna fyrir gafli. Salurinn var fagurlega skreyttur í tilefni
fundarins. (Ljósm.: Guðni Þórðarson).