Heima er bezt - 01.09.1952, Blaðsíða 10

Heima er bezt - 01.09.1952, Blaðsíða 10
266 Heima er bezt Nr. 9 öllu óhjákvæmileg. Hitt er ennþá meiri málspilling, ef setninga- skipun brjálast og sýkist fyrir á- hrif frá öðrum málum. Þessar tvær tegundir málspillingar eru íslenzkunni háskalegastar, en þó er líka mikil málskemmd að rangmynduðum eða klaufaleg- um nýyrðum. En allt er nú safi hjá selveiði! Það er sannfæring mín, að aldrei hafi verið gerð svo hrottaleg og afkáraleg árás á eðli íslenzkrar tungu sem nefndin hefur gert með tillögum sínum........ Ef maður vill kenna sig við föður eða ættföður, sem heitir Snorri, verður ættarnafnið Snorran. Ef maður vill kenna sig við bæ, sem heitir Bakki eða Hlíð, þá verður ættarnafnið: Bakkan, Hlíðan. Rökstuðning: an merkir hreyf- ingu frá, sbr. héðan, þaðan! Samkvæmt þessari reglu eru t. d. nöfnin(!) Austan, Vestan, Sunn- an, Norðan tekin upp á skrána. Ef maður á móður eða ætt- móður, sem heitir Hrefna, verður ættarnafnið Hrefnon. Eftir sömu reglu er farið um staðarnöfn, sem hafa endinguna a. Dæmi: Áson, Geiron, Kotlon, Tungon, Leiron, Hriflon, Hveston. Rök- stuðning: í frumnorrænu end- uðu þau kvenkynsorð á on, sem nú enda á a! Ef maður vill kenna sig við einhvern fjörð, verður endingin fer. Dæmi: Breiðfer, Patfer, Ön- fer. Rökstuðning: Hin ger- manska rót í orðinu fjörður er fer. Ef maður vill kenna sig við bæjarnafn, sem hefur ending- una staður eða staðir, verður ættarnafnsendingin star. Dæmi: Brússtar, Hösstar, Vakstar. Rök- stuðning: Rótin í staður er sta, „ og við hana höfum við skeytt „r“, sem er algeng afleiðsluend- ing í málinu. Virðast oss slík œttarnöfn allfögur og hag- kvœm( \!)". í framhaldi af þessu heldur Árni Pálsson áfram athuga- semdum sínum: „Hér hafa menn þá nokkur dæmi um nafnasmíð nefndar- innar. íslenzkan getur orðið auðug með tímanum, ef þær orð- myndunarreglur, sem hér er ver- ið að gróðursetja, festa rætur og ná að bera ávöxt. Hingað til hafa íslenzk orð verið mynduð á þann hátt, að skeytt hefur verið við- skeyti eða afleiðsluending aftan við rót eða stofn, sem til er í málinu, eða með því að skeyta saman tvö orð, eða loks með því að setja samstöfu, eina eða tvær, framan við annað orð. Þetta eru orðmyndunarreglur íslenzkrar tungu, og eru þær svo handhæg- ar og fullkomnar, að íslenzkan hefur tæpast orðið svo víðfræg fyrir neitt sem fimleika sinn til orðmyndunar. En hér átti ekki að mynda íslenzk nöfn, því að ekkert íslenzkt orð verður notað sem ættarnafn, og þess vegna hefur nefndin orðið að grípa til sinna ráða og mynda orðaviðrini eftir sínu eigin höfði og sínum eigin reglum, sem aldrei hafa fyrr þekkzt í málinu. Maður þarf ekki annað en að heyra nöfnin Aran, Daðan, Síðon, Sturlon, Kvígfer, Reyðfer, Spóstar, Strúg- star, til þess að átta sig á, að þau koma íslenzkunni ekkert við. — Þetta er volapúk, en ekki ís- lenzka....“ Eftir að Árni hefur farið mörgum fleiri hörðum orðum um tillögur nefndarinnar, kemst hann loks svo að orði: „Ég hef nú lauslega minnzt á helztu tillögur nefndarinnar, og vona ég, að ég hafi ekki fært neitt afvega fyrir henni. Mér hafa fundizt þær allar furðuleg- ar og flestar svo afkáralegar, að ódæmum sætir. Einn mikinn kost sé ég þó á starfi nefndar- innar, og hann er sá, að þessi nöfn eða ónefni, sem hún hefur verið að smíða, eru öll eða flest- öll með því marki brennd, að ég held að engin hætta sé á, að þau svíki sig inn í eyru þjóðarinnar. Umskiptingseinkenni þeirra og ónáttúra er svo rík og áþreifan- leg, að ég get ekki skilið, að nokkrum heilvita manni komi til hugar að nota þau. Og ég vona, að augu allra muni nú opnast fyrir því, að það muni ekki auð- gert að smíða ættarnöfn við hæfi íslenzkunnar, þegar einum lærðum málfræðingi og tveimur velmenntuðum og venjulega smekkvísum rithöfundum hefur ekki tekizt betur en þetta. Ég get með sanni sagt, að mér hefur sárnað að sjá þrjá mæta og mik- ilsvirta menn setja nöfn sín und- ir annan eins ósóma og þetta nefndarálit. En fátt er svo með öllu illt, að ekki boði nokkuð gott, og ég vona, að nefndarálitið verði rothögg á ættarnafna- hreyfinguna hér á landi.“ Þetta voru smákaflar úr fyrir- lestri Árna Pálssonar. Eins og að líkindum lætur, tók neíndin þessari hörðu gagnrýni ekki þegjandi og hljóðalaust. Varð dr. Guðmundur Finnbogason einkum fyrir svörum af hennar hálfu, og háðu þeir Árni snarpa ritdeilu um nefndarálitið í blað- inu ísafold. Nokkru eftir að fyr- irlesturinn var fluttur, var boð- að til almenns stúdentafundar í Reykjavík um ættarnafnamál- ið. Var Guðmundur Finnbogason málshefjandi, en Árni Pálsson einkum til andsvara, og segja blöð frá þessum tíma, að fund- urinn hafi verið fjörugur og skemmtilegur. Næstu mánuði birtust í blöðum og tímaritum margar greinar um ættarnafna- málið. Dr. Alexander Jóhann- esson gagnrýndi nefndarálitið harðlega, einkum frá málfræði- legri hlið. Magnús skálastjóri Helgason og Bjarni Jónsson frá Vogi tóku fast í streng gegn ættarnöfnum, en frá sjónar- miði ættarnafnanna rituðu með- al annarra um málið Jakob Jóh. Smári og Holger Wiehe. Leggur Smári til í grein sinni, að íslend- ingar taki upp ættarnöfnin, án þess að sleppa föðurnafni sínu. Bendir hann á, að nafnsiður þessi sé algengur í Rússlandi og hafi margt til síns ágætis. Fyrst sé eiginheitið, til að mynda Leo, þá föðurnafnið, Alexandrovitsj (þ. e. Alexandersson), og loks ættarnafnið, Tolstoy. Holger Wiehe fellst algerlega á þessa uppástungu í grein sinni í Skírni 1917. „Það liggur í augum uppi“, segir hann, „að þessi venja er afar hentug, og ætti að lögfesta að skipa mönnum, er eiga að taka upp ættarnöfn, að sleppa ekki föðurnafninu, en sejta það á undan ættarnafninu, annað- hvort með fullum stöfum eða skammstafað. Ef allir íslending- ar ættu þrjú nöfn samkvæmt þessari reglu, ættu þeir hinn á- kjósanlegasta nafnsið. Enda fær þá hver sitt“.

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.