Heima er bezt - 01.09.1952, Síða 18

Heima er bezt - 01.09.1952, Síða 18
Z74 Heima er bezt Nr. 9 Fjalla-Bensi með sauðinn Eitil og hundinn Leó. „óvini“, eins og það er kallað, og gleyma þeim mönnum, sem hik- uðu ekki við að leggja allt í söl- urnar fyrir að bjarga sauðkind- um, einustu lífsbjörg lands- manna, frá ömurlegum hungur- dauða, og hlutu oft ekki annað endurgjald, en þau laun, sem að vísu eru dýrmætust allra: góða samvizku og fullvissuna um að hafa gert sitt bezta. Fjallgöngurnar á haustin eru merkilegur þáttur í sögu þjóðar- innar. Hreysti og þolgæði voru þeir eiginleikar, sem komu sér bezt fyrir gangnamanninn. Enda valdi gangnaforinginn, eða fjall- kóngurinn, eins og sumstaðar var embættisheiti þessa þýðing- armikla forystumanns, menn úr flokki sínum samkvæmt því, er hann þurfti að senda í erfiðustu og fjarlægustu afkima afréttar- ins. Þá var, og er enn, oft glatt á hjalla í gangnamannakofunum að dagsverki loknu, — sögur sagðar, rímur kveðnar og kraft- arnir reyndir; þeir sem kunnu glímur, fóru í „eina bröndótta", og þar fram eftir götunum. Þá þótti unglingunum ekki síður skemmtilegt að þeysa um afrétt- ina á fjörugum gæðingum. Þurfti þá margs að spyrja um kenni- leiti, og fræðast um hitt og þetta í sambandi við fjárleitina. Miklu varðar að veður sé gott, þegar farið er í göngur. Þegar þokan liggur yfir landinu og byrgir alla útsýn, er gangnamað- urinn allt annað en ánægður, því að þá má alltaf búast við að illa smalist. Eftir fyrstu göngurnar má víða búast við slæmum veðr- um á heiðum uppi, og jafnvel fyrr. Það er allt annað en létt verk að reka stóra fjárhópa til byggða í ófærð. Reynir þá oft á menn og hesta. í sumum sveitum hittast menn úr fjarlægum héruðum í göngun- um. Svo mun lengi hafa verið hér á Suðurlandi, að Sunnlendingar og Norðlendingar fundust á af- rétti, og ef til vill er það enn svo, þrátt fyrir girðingar milli lands- fjórðunganna. Lengi vel mun þetta hafa verið einasta tæki- færið til að kynnast mönnum úr fjarlægum sveitum, þar sem samgöngur voru litlar milli hér- aða annars. Mun þá oft hafa ver- ið glatt á hjalla, og trúa mætti því, að komið hafi i ljós nokkur keppni milli héraðanna á ýmsum sviðum, líkt og átti sér stað í ver- stöðvum fyrrum. Eigi mun pytl- una heldur hafa vantað til að auka á gleðskapinn í fjallakof- anum. En — fyrir fólkið heima í sveit- inni byrjar ævintýrið, þegar gangnamennirnir koma af fjalli. Börn og unglingar þreytast ekki á að horfa á stórar hjarðir, sem eru á leið í réttirnar, og fyllast tilhlökkun yfir að mega fara í „almenninginn“ og hitta jafn- aldra sína og vera innan um glauminn og gleðina, sem jafnan hefur gert þennan dag ógleym- anlegan æskulýðnum. Jarmið í fénu, hundageltið, söngur þeirra, sem voru komnir í „gott skap“, alvarlegar samræður og stund- um rifrildi út af fjármörkum, allt þetta, sem, einkennir réttardag- inn og gerir hann svo sérkenni- legan og að vissu leyti hátíðleg- an, þrátt fyrir öll ólætin! Flestir þeir, sem alizt hafa upp í sveit, hafa margar skemmtilegar end- urminningar, sem tengdar eru við þennan hátíðisdag haustsins. En önnum bóndans er ekki lokið, þó að réttadagurinn sé liðinn. Þá hefst ef til vill hið erf- iðasta starf, sem hann kemst í á árinu, að taka það fé úr, sem senda á til slátrunar. Þar er oft erfitt að taka ákvörðun. Hafi sumarið verið óhagstætt, svo að eyða verður fleiru fé en annars, verður vandi hans meiri. Og því miður hefur það löngum loðað við, að menn tóku á sig áhætt- una, settu á „guð og gaddinn" og lentu svo í vandræðum, þegar leið á veturinn. En slíkt er nú orðið að sögu, sem betur fer. Þó skyldi enginn leyfa sér að dæma hart í þessu máli, nema sérstak- ar ástæður séu fyrir hendi. Bónd- inn átti ekki margra úrkosta völ, eins og ástatt var fyrrum, þegar verð afurða hans var lítið sem ekkert. Þyrfti hann að skerða bústofn sinn um of, gat það orð- ið honum slíkt áfall, að hann rétti ekki við aftur. Og saga þjóð- arinnar sýnir okkur, að hún hef- ur oftast sett á „guð og gaddinn“ í fleiri en einum skilningi — og bjargað lífinu með því. Þetta er ekki sagt til að afsaka kæruleysi í þessum sökum, heldur til hins, að vara við allt of hvatskeytsleg- um dómum um fyrri kynslóðir, einkum þar sem margir þeirra er harðast dæma, sýna oft ærið nauman skilning á málefninu, og dæma út frá aðstæðum, sem lítið eiga skylt við það, sem fyrri tíð- ar menn áttu við að búa. Hér hefur verið drepið lítið eitt á hitt og þetta í sambandi við Framh. á bls. 283.

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.