Heima er bezt - 01.08.1954, Side 8

Heima er bezt - 01.08.1954, Side 8
232 Heima er bezt Nr. 8 lands, og skyldi leyfið gilda í 20 ár. Skyldi sæsími lagður frá Hjaltlandseyjum um Færeyjar til Austfjarða, en síðan yrði hafizt handa um lagningu landssíma milli Seyðisfjarðar og Reykja- víkur. Allmiklar deilur risu um þetta mál. Var Björn Jónsson, síðar ráðherra, helzti forustu- maður þeirra, er andvígir voru Hannesi í símamálinu. Töldu þeir, að fyrirtæki þetta mundi setja landið á höfuðið fjárhags- lega, og svo æsktu þeir heldur, að tekið yrði tilboðum erlendra loftskeytafélaga um loftskeyta- samband milli fslands og út- landa. Sumarið 1905 voru talsverðar viðsjár með mönnum út af þessu máli, og náðu þær hámarki, er um hálft þriðja hundrað sunn- lenzkra bænda úr fimm sýslum riðu til Reykjavíkur 1. og 2. ágúst til þess að mótmæla síma- samningnum. Sunnudaginn 1. ágúst byrjuðu bændur að flykkjast í bæinn. Komu þeir í flokkum, flestir með tvo til reiðar. Höfðu sumir farið frá hálfhirtum túnum um morg- uninn og riðið í einum áfanga á allt að tíu stundum til Reykja- víkur. Mánudagskvöldið 2. ágúst var fundur haldinn í svonefndri Bárubúð. Var þar kosin sjö manna nefnd til þess að semja tillögur i símamálinu og lands- réttindamálinu. Aðal-fundurinn var svo haldinn á sama stað dag- inn eftir og tillögur nefndarinn- ar þá ræddar og samþykktar með samhljóða atkvæðum þeirra 240 bænda utan Reykjavíkur, er mættir voru. Tillögurnar voru á þá leið, að fundurinn skoraði á alþingi að afstýra því, að for- sætisráðherra Dana undirritaði skipunarbréf íslandsráðherra, því að sjálfstæði íslands stæði stjórnarfarslegur voði af þeirri íhlutun Dana. í öðru lagi skor- aði fundurinn á alþingi að hafna algerlega ritsímasamningi þeim, er Hannes Hafstein ráðherra hafði gert haustið 1904 við Stórá norræna ritsímafélagið. Síðan var kosin fimm manna nefnd til þess að fara á fund ráð- herrans og flytja honum álykt- anir fundarins. Klukkan um þrjú gekk nefndin á fund ráðherrans. Ég var þá, ásamt fleirum, að vinna við húsbyggingu í Austur- stræti og sá vel allt, sem fram fór. Bændurnir fylktu liði og gen'gu svo með nefndina í farar- broddi að stjórnarráðshúsinu. Bæjarbúar slógust í hópinn á leiðinni, og þegar fylkingin nam staðar á stjórnarráðstúninu, var mikill mannsöfnuður saman kominn á Lækjartorgi og í Lækj- argötu. Var allmikill hiti í mönnum og söng múgurinn ætt- jarðarljóð, meðan nefndarmenn dvöldust inni hjá ráðherra. Þegar nefndin kom út aftur, tilkynnti formaður hennar, séra Jens Pálsson, að ráðherrann hefði lýst því skorinort yfir, að hann gæti við hvorugri áskorun fundarins orðið. Samningur hefði þegar verið gerður við rit- símafélagið, og honum yrði ekki breytt. Hrópaði mannfjöldinn þá nokkrum sinnum: „Niður með stjórnina! Niður með ráðgjaf- ann! Niður með danska valdið!“ Hélt svo fylkingin út á Austur- völl. Þar lék lúðraflokkur ætt- jarðarlög, og ræður voru haldn- ar. Söng mannfjöldinn m. a. ís- lendingabrag Jóns Ólafssonar. Lét Jón svo ummælt, að það væri mesti sómi, sem sér hefði verið sýndur, síðan hann kom heim frá Ameríku. Ekki varð þó meira úr aðgerð- um bænda í máli þessu, og féll það algerlega niður. Daginn eft- ir fóru flestir þeirra heim aftur, og létu sumir lítt yfir ferðinni, töldu sig hálfgert hafa verið ginnta til þess að taka þátt í henni. Er það grunur minn, að ýmsum þeirra, er fremstir gengu í málinu, hafi snúizt hugur, er þeir heyrðu rök Hannesar Haf- stein og sáu, hve fast og einarð- lega hann hélt á málstað sínum og lét engan bilbug á sér finna. Mun almenningur brátt hafa sannfærzt um, að stefna ráð- herrans var hárrétt í þessu mikla velferðarmáli þjóðarinnar, eins og reynslan hefur svo greini- lega sýnt fyrir löngu. — Og svo tók landssíminn til starfa 1906. Já. Vorið og sumarið 1906 var unnið að lagningu landssímans frá Seyðisfirði til Reykjavíkur. Forberg verkfræðingur hafði yf- irstjórn verksins með höndum, en að verkinu unnu Norðmenn, Danir og íslendingar. Hinn 24. ágúst 1906 var svo sæ- símasambandið við útlönd opnað. Hannes Hafstein, sem þá var ráðherra, fór austur á Seyðis- fjörð með varðskipinu „Valur- inn“ til þess að vera viðstaddur opnun sæsímans og senda það- an fyrsta skeytið héðan til kon- ungs. Skipið hreppti versta veð- ur á leiðinni og komst ekki til Seyðisfjarðar fyrr en 26. ágúst. Hafði bæjarfógetinn á Seyðis- firði þvi daginn áður, 25. ágúst, sent konungi skeytið, en þann dag efndu Seyðfirðingar til fjöl- mennrar veizlu til þess að fagna opnun símans. Hinn 29. september 1906 var símasambandið milli Reykjavík- ur og útlanda opnað með hátíð- legri athöfn. Símstöðin, sem var uppi á lofti í pósthúsinu, var fán- um og blómsveigum skreytt. Hannes Hafstein ráðherra hélt skörulega vígsluræðu af svölum pósthússins. Veður var hið bezta og mikill mannfjöldi saman kominn. Ríkti almennt hin mesta ánægja og gleði í hugum manna yfir hinu mikla framfara- og menningarspori, sem stigið hafði verið með lagningu lands- símans. — Svo var það konungsheim- sóknin? Já. Sumarið 1907, hinn 30. júlí, kom Friðrik konungur VIII. i heimsókn hingað til lands ásamt syni sínum, Haraldi prins, og fjörutíu dönskum ríkisþings- mönnum, auk fjölda annarra gesta. í fylgdarliði konungs voru m. a. stórmenna J. C. Christen- sen, þáverandi forsætisráðherra Dana, og sagnfræðingurinn kunni, Troels-Lund. Mikið var um dýrðir í Reykja- vík í tilefni konungskomunnar, og var hinum tignu, erlendu gest- um fagnað með meiri rausn og viðhöfn en dæmi voru til hér á landi áður. Stóð Hannes Hafstein ráðherra fyrir móttökum og há- tíðahöldum ásamt sérstakri mót- tökunefnd, sem skipuð hafði ver- ið honum til aðstoðar. Var Tryggvi Gunnarsson bankastjóri formaður hennar. Daginn fyrir konungskomuna starfaði ég, ásamt þremur smið- um öðrum, að því að setja upp Framh. á bls. 254.

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.