Heima er bezt - 01.08.1954, Síða 10

Heima er bezt - 01.08.1954, Síða 10
234 Heima er bezt Nr. 8 legum dyggðum fremur en aðir hundar. Urðu þá oft harðar sviptingar, ef komumagur hafði prik eða písk að vopni. En sem betur fór, vildi þetta sjaldan til, því að Gísli var oftast nærstadd- ur, því að hann var latur maður með afbrigðum og hélt sig vana- legast í húsum inni, og þá oftast nær þar, sem mestur var ylur- inn, svo sem í eldhúsi. Tíkarbardaginn harði. Stuttu eftir að fjölgaði hjá tík- inni þennan vetur, var einu sinni opnaður bær í hríðarveðri á Ás- unnarstaðastekk og komið inn göngin, sem voru löng og lágu beina stefnu inn í eldhús. Ég var staddur inni í eldhúsi hjá tík- inni í þetta skipti, en ekki var Gísli þár, heldur einhvers staðar annars staðar í bænum. Maður sá, sem kominn var, var Stefán bóndi á Ásunnarstöðum, Árna- son. Hann er faðir minn og bjó fyrir og lengi síðan á Ásunnar- stöðum, sem er næsti bær fyrir austan Ásunnarstaðastekk. f þetta skipti var karlinn allur fannbarinn, það man ég ljóslega. Loðhúfu eina mikla hafði hann á höfði og var í stórri hríðar- úlpu. Strax og hann kom í göng- in, tók tíkin sprett og beint í fang honum. Hann hafði ei neitt lauslegt til að verja sig með, sennilega skilið eftir staf sinn úti, varð honum því fyrir að þrífa til loðhúfunnar á höfði sér og lamdi tíkina með henni. En þar sem hvorugt brast kjark eða áræði, tíkina né karlinn, urðu þarna harðar sviptingar með þeim. Tíkin sparði hvorki kjaft né klær og karlinn ekki loðhúf- una. En þar sem vopn tíkurinn- ar voru beittari en hans, dró að því, að brátt hyggjust hlífar af föður mínum, svo að hann varð að lokum berskjaldaður fyrir tönnum tíkurinnar. í því kom Gísli fóstri hennar, og tók hann tíkina og fór með hana inn í eld- hús og lokaði því. Hurð var fyrir eldhúsinu, sem hægt var að loka vel, en í þetta skipti hefur hún samt staðið opin. Ég stóð alltaf í göngunum og horfði á þennan leik og man á- gætlega vel eftir, hvernig allt gekk til. Eftir að Gísli hafði tuktað tíkina, fóstru sína, og fangelsað hana, kom hann fram til föður míns, og voru báðir reiðir. Byrjuðu þeir að rífast út af hvolpaverzlun og fleiru, því að í þetta skipti hafði Gísli að vanda verið búinn að selja fleiri hvolpa fyrirfram en tíkin átti og taka betaling fyrir. Endaði rimma sú með því, að karlarnir tókust á, og bar Gísli þar lægra hlut af óforsjálni sinni, að vera búinn að arestera tíkina, í stað þess að hjálpa henni að sigrast á komumanni. Ég man, að ég varð í fyrstu hálfhræddur, en að lokum fullur af heilagri vandlætingu og hneykslaður af öllum þessum aðförum, og mun þetta hafa sett í mig kjark. Ég man vel eftir því í þetta skipti, að faðir minn sat undir mér, er hann hafði þegið góðgerðir, og hrósaði mér fyrir kjark minn og áræði, og gekkst ég upp við lofið. Karl hló mikið að þessum tíkarslag, en viður- eignin fréttist víða. Fyrsta vísan. Ég hef verið á sjötta, sjöunda eða jafnvel áttunda ári, er ég orti fyrstu vísuna, en tildrög voru þau, að heima var hundur, er Lappi hét, alsvartur með hvíta fætur. Þótti hann gjálífur og fór oft í skreppitúra til næstu bæja, því að hann átti víða kærustur. Lappi var mjög hænd- ur að mér og lékum við saman daglega, en þegar aðrir hundar komu í heimsókn til hans, hafði ég engan hemil á honum, því að bæði var hann útsláttarsamur og óeirinn við ókunnuga sam- borgara sína og meðbræður. Um Lappa orti ég þetta: Lappi er í limum fær, leikur sér á hólnum. Hefur nokkuð harðar klaer hann í svarta kjólnum. Þess skal geta, að ég hygg, að ég hafi verið margar vikur að koma þessari vísu saman, ef ekki mánuði. Söng ég hana við hund- inn, ýmist hálfa eða alla. Signdi hundana. Ég var uppalinn í kristilegum dyggðum, lærði bæði sálma og faðirvor ásamt mörgum bænum, en gazt lítt að þeim lærdómi. Gamla fólkið eystra mat þá signinguna fram yfir öll heilög fræði og hafði hana um hönd bæði í tíma og ótíma. Svo hand- laginn varð ég snemma, að ég lærði hana til hlitar, en stund- aði hana lítt eftir að ég fór að stálpast. Ungur að árum hef ég hlotið að meta þessa helgiat- höfn mikils, því að hundana signdi ég oft á dag, enda voru þeir mínir elskulegustu vinir og aðalleikbræður á uppvaxtarár- um. Þetta var auðvitað gert í laumi, en í góðri meiningu og af óvitaskap. Ýmsum óþægindum átti maður að verða fyrir, ef maður vanrækti signinguna, t. d. átti djöfullinn að halda fyrir skyrtuopið, ef maður gleymdi að signa sig, áður en farið var i hreina skyrtu. Svo var og engin leið fyrir andskotann og púka hans að komast framan að þeim manni, sem signdi sig kvölds og morgna. Þótt signingin ætti að vera helgiathöfn vildi við brenna, að menn sinntu verald- legum störfum jafnframt því, sem þeir lásu blessunarorðin á eftir sjálfri signingunni. Sagt var um bónda einn í Breiðdal, er Þorsteinn hét, að einn morg- un, er hann kom á fætur og út á hlað, að hann hafi að vanda snúið sér í austur og signt sig. Hríðarveður var á austan og hafði staðið nokkra sólarhringa. Varð þá karli að orði: „Mikil andskotans lifandis skelfing get- ur verið til af austrinu." Jafn- framt þessu hafði hann kastað af sér vatni sem ákafast á móti hríðinni. En það er sannast sagna, að ég bæði sá og heyrði iðulega þarna eystra, að menn lásu blessunarorðin pissandi á morgnana. Slíkt hef ég líka heyrt og séð í Skagafirði og víð- ar, en þó ekki í seinni tíð. Þor- steinn sá, er áður er nefndur var gildur bóndi þarna eystra. Bjó hann á útbeitarjörð, en hag- skert getur orðið í sveitinni, ef langvarandi austanátt gengur. Er því þetta víxlspor Þorsteins í bænagerðinni skiljanlegt, þar sem áhugamaður átti i hlut. Pistill til presta. Ég var snemma mjög svo nám- fús á rímað mál, og vegna þess lærði ég ógrynni af sálmum og einstökum versum. Passíusálm- ana kunni ég alla spjaldanna á

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.