Heima er bezt - 01.04.1955, Side 5

Heima er bezt - 01.04.1955, Side 5
Nr. 4 101 veru varð ég þarna eins og mús undir fjalaketti. Mig brast and- legan þrótt til þess að mæta svo miklum andans manni, og hafði af litlu að miðla. Hið eldlega fjör skáldsins, hugmyndaflugið og til- þrifin, furðu snarlegar sveiflur í framsetningunni og hálfar vísur á milli, lyfti sál minni upp og hreif mig, en í fórum mínum átti ég ekkert til, sem líktist þessu eða gæti hrifið skáldið. Samræð- an okkar á milli, sem ekki varð löng, því hann var þar veitand- inn og ég þiggjandinn, endaði með því, að hann bauð mér að líta inn til sín áður en ég færi af Akureyri. Áður en ég fór að heiman vissi ég, að kominn var til Akureyrar læknir, sem miklar tröllasögur fóru af, Guðmundur Hannesson að nafni. Sögurnar, sem um hann gengu eystra og flugu um sveitirnar, bæ frá bæ og mann frá manni, voru bæði ótrúlegar og furðulegar á þeim tíma. Þann- ig var frá því sagt, að hann negldi með venjulegum járn- nöglum saman útlimi manna, slátraði mönnum eða færi inn í þá, greiddi innyflin í sundur og nymdi burtu sérhvert mein, sem í mönnum fælist. Aðferð hans við þetta væri ofur einföld og mjög lík því, sem tíðkaðist, þegar fé var slátrað þá. Hann léti menn- ina leggjast á bakið á stóra hurð eða fjalir, sem negldar voru saman, risti þá svo á kviðinn, rannsakaði nákvæmlega innyfl- in og það brygðist aldrei, að hann fyndi orsök sjúkdómsins og læknaði hann. Meira að segja héldu sumir því fram, að sjúkl- ingarnir spryttu upp af hurð- inni, að læknisaðgerð lokinni, og hlypu burtu fjörugir og alheilir. Nú lék mér hugur á að sjá þenn- an galdralækni og komast að raun um það, hvort hann væri nokkuð líkur öðrum mönnum. En svo var nú ástatt, að ég er fædd- ur með líkamsgalla, eða van- skapaður, þó að ekki beri mikið á því. Ég er nefnilega mjög nær- sýnn á vinstra auga og fjarsýnn á hinu. Auk þess er vinstri auga- brúnin lægri en sú hægri og vangasvipurinn gerólíkur hægra og vinstra megin. Þó að ég bygg- ist ekki beinlínis við því, að hann mundi færa vinstri augabrúnina Heima er bezt upp eða breyta vangasvipnum, vildi ég þó fá að vita, hvort hægt mundi að fá gleraugu, sem sam- rýmt gæti svo ólíka sjón augna minna. Og til þess að fullnægja bæði forvitninni og þörfinni, lagði ég af stað til læknisins. Ég var svo heppinn, að hann var heima og ösin hjá honum var ekki eins mikil og ég bjóst við. Augu mín rannsakaði hann mj ög vel eftir því, sem þá voru tök á, og gaf þann úrskurð, að þau væru heilbrigð, en engin leið væri til þess að fá gleraugu, sem samrýmt gætu svo mikinn sjón- armun, og kom það alveg heim við álit sérfræðings, er ég fann seinna. Svo langt væru vísindiri ekki komin ennþá. Og nú brá fyr- ir glettnisglampa f augum hans. Ég hafði sagt honum, hvaðan ég væri. Hafði hann nú orð á því, að það væru víst skrítnir menn þarna austur í Fáskrúðsfirði, sem sæju stutt með öðru auga, en langt með hinu. Ég viðurkenndi þetta og bætti því við, að þeir töluðu frönsku með öðru munn- vikinu og íslenzku með hinu. — Þannig lauk þessari heimsókn til héraðslæknisins á Akureyri. Á veitingahúsinu á Oddeyri bjó maður að nafni Friðrik Stefáns- son, frá Vallholti í Skagafirði. Hann var þar gestur eins og ég og dvaldi þar svipaðan tíma. Við kynntumst strax, töluðum sam- an daglega og vorum mikið sam- an. Hann hafði áður verið al- þingismaður Skagfirðinga frá 1879—1891, að báðum árum með- töldum. Á hverjum morgni bauð hann mér inn í setustofu sína og ræddi við mig og kunni frá mörgu að segja frá þeim árum, þegar hann sat á þingi, og jafn- framt ýmsu úr Skagafirði. En seinni hluta dags var hann venjulega nokkuð undir áhrifum víns. Að því kom, að ég sagði honum frá högum mínum og er- indi mínu til Akureyrar og heim- sókn minni því viðvíkjandi á skrifstofu amtmanns. Jafnframt sagði ég honum nákvæmlega hvernig á því stóð, að amtmaður hélt fyrst, að Eiríkur tengdafað- ir minn hefði ekki ábúðarrétt- inn á Vattarnesi. Á því hlaut að standa þannig, að af þeim skjöl- um, sem amtmaður var með og hann kallaði Vattarnesmálið, mun hann hafa séð, að sam- kvæmt ákvörðun hans og fyrir- skipun til umboðsmannsins þá- verandi, Páls skálds Ólafssonar, mun hann hafa þótzt öruggur um það, að Elísi Þórðarsyni, hálf- bróður Eiríks, hefði verið byggð öll hálflendan. Hins vegar mun þáverandi umboðsmaður, Páll Ólafsson skáld, hafa lagt ríka áherzlu á það, að byggja bræðr- unum báðum hálflenduna, sinn helminginn af henni hvorum. Út

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.