Heima er bezt - 01.04.1955, Qupperneq 6

Heima er bezt - 01.04.1955, Qupperneq 6
102 Heima er bezt Nr. 4 af þessu höfðu að líkindum farið mörg bréf á milli umboðsmanns og amtmanns, sem endað mun hafa á því, að amtmaður þvertók fyrir að skipta hálflendunni, en lagði fyrir umboðsmann að byggja Elísi jörðina. Annað vissi ekki amtmaður þá um þessa jarðarbyggingu, fyrr en allt í einu að ég kom til hans og sýndi honum byggingarbréf Eiríks Þórðarsonar, með hans eigin undirskrift. Um hitt, hvernig á þessu stóð, að hann hafði óaf- vitandi undirskrifað byggingar- bréfið og þvert á móti vilja sín- um, hlaut hann að renna grun í, um leið og ég sýndi honum bygg- ingarbréfið. Til þess var aðeins ein leið, eða sú, að amtmaður hafi sent umboðsm. tvö óútfyllt byggingarbréfseyðublöð, sem hann undirritaði sjálfur, en um- boðsmaður átti svo að útfylla. Mun annað bréfið hafa átt að liggja hjá umboðsmanni, en hitt afhendast leiguliða jarðarinnar. Þetta mun Páll Ólafsson hafa notað sér til þess að byggja báð- um bræðrunum Vattarneshálf- lenduna, eins og hann upphaf- lega vildi og hafði lofað bræðr- unum. Þess vegna mun hann hafa afhent bræðrunum lögleg byggingarbréf, undirrituð af honum og amtmanni, en geymt hjá sér afrit þeirra, sem ekki voru staðfest af honum. Allt þetta fékk ég fyrst að vita, þegar ég kom til amtmanns og mætti þar hinum einkennilegu móttökum. Þó að hann varaðist að segja mér nokkuð um þetta, var þetta auð- ráðin gáta, þegar hann fullyrti, að tengdafaðir minn hefði ekki ábúðarrétt á Vattarnesi, en mér var hinsvegar kunnugt um þá áherzlu, sem umboðsmaður lagði á það, að báðir bræðurnir fengju ábúðarréttinn. Meira að segja hafði ég sjálfur, ásamt Elísi Þórðarsyni, fært umboðsmanni álitlega peningafúlgu, sem mun hafa verið áheit, ef þeir fengju báðir ábúðarréttinn. Ég tek það fram, að ég leit á þessa peninga- fúlgu (1300 kr.) sem áheit, en alls ekki mútur. Svo stóð á þarna, að báðir bræðurnir höfðu sótt um helminginn af hálflendunni hvor þeirra. Það stóð svo á, að hvorugur þeirra vildi alla jörð- ina. Lágu til þess ýmsar ástæður, meðal annars þær, að Eiríkur var eldri bróðir og átti myndarlegt timburhús á jörðinni og naut hjá föður sínum afnota af jörðinni til móts við hann. Hins vegar átti Elís einnig myndarlegt hús á jörðinni og dvaldi Þórður faðir hans hjá honum í elli sinni. Um- boðsmanni fannst því mjög sanngjarnt, að báðir fengju ábúðarréttinn og var það einnig •að ósk föður þeirra. Jafnframt þessu ber einnig á það að líta, að faðir bræðranna, Þórður Eiríks- son og umboðsmaður, Páll Ólafs- son voru miklir vinir frá æsku og m.eðan þeir lifðu. Það er því ekki að undra, þó að Páll vildi verða við óskum hans í ellinni, þegar öll sanngirni mælti með því, að svo yrði gert. En til þess þurfti hann að beita brögðum, eins og ég hef skýrt frá. Um allt þetta fræddi ég Frið- rik Stefánsson, og virtist hann hafa ánægju af frásögninni. Að henni lokinni spratt hann upp úr sætinu og sagðist skyldi tala við piltinn. Páll Briem hefði í uppvexti sínum verið heimagang ur hjá sér og borðað þar marga kökubita, því skammt hefði ver- ið á milli bæjanna, þar sem þeir áttu heima. Kvaðst hann ekki trúa því, að amtmaður gerði sig að því lítilmenni, að láta mann fara um langan veg og kosta fé til þess að finna hann til þess að biðja hann um lítilfjörlegan greiða, en láta hann svo fara erindisleysu heim aftur. Slíkt væri ekki líkt Briemsættinni. Þó hún væri í aðra röndina mjög sparsöm og smámunaleg, væri þó til í henni höfðingsskapur og drenglyndi. Ég bað hann hlæj- andi að fara varlega í það að niðra Briemsættinni, því lang- amma Páls Briems og amma mín hefðu verið hálfsystur og feður systranna albræður. Nú hætti hann alveg að tala um Briems- ættina, en sagði að þessi upp- lýsing væri mjög góð fyrir sig, því hann og Páll Briem væru góðir kunningjar og nú mundi hann óspart nota frændsemina til framdráttar erindi mínu, sem hann hafði tekið að sér, án þess að ég bæði hann um það, eða hefði falið honum það. Seinna þegar hann fann mig, var hann daufur í dálkinn, sagði Briem einþykkan og síðar mun það sama hafa orðið upp á ten- ingnum. Hann fékk engu um- þokað og bar sig illa út af því og sagði, að amtmaður léti reiði sína út af klókindabrögðum Páls Ólafssonar bitna á saklausum manni. Hafði hann mörg orð um þetta, og virtist reiður amt- manni, sagði að stórmennskan skyggði stundum á heilbrigða hugsun og réttlætistilfinningu þessara háu herra. Viðkynningin við Friðrik Stefánsson var á- nægjuleg og stytti bið mína á Akureyri. Eitt sinn, er kunningi minn hafði gefið mér bjór á hótel Ak- ureyri og við gengum út þaðan, mættum við í forstofunni rosknum hjónum, sem undu sér að mér, föðmuðu mig og heils- uðu mér eins og nákomnum ætt- ingja eða vini. Auðvitað tók ég þesrari innilegu kveðju mjög vel, þó ég myndi ekki eftir, að hafa nokkurn tíma séð þau. Og þegar ég gætti betur að, sá ég að svo mundi vera og hafði orð á því, að þó mér litist mjög vel á þau, myndi ég ekki eftir að ég hefði kynnst þeim. Jafnframt sagði ég þeim nafn mitt og heimilis- fang. Þau áttuðu sig þá strax á því, að hér væri um misskilning að ræða og létu í ljós undrun sína á því hve líkur ég væri vini þeirra, sem mig minnir þau nefna Þórarin. Jafnframt þessu sögðu þau mér hvað þau hétu og hvaðan þau væru. Nafni frúar- innar hef ég gleymt, en maður hennar var Jón á Hafsteins- stöðum í Skagafirði. Tókust nú samræður okkar í milli ,sem end- uðu með því, að við urðum mát- ar, og báðu þau mig að heim- sækja sig að Hafsteinsstöðum, ef ég ætti leið um Skagafjörð. Ég varð feginn að halda heim, eftir sjö daga bið á Akureyri. Á heimleiðinni vakti fátt athygli mína. En þegar við komum að Kópaskeri kom fyrir atvik, sem ég ætla að segja frá. Við komum þar að kvöldi. Félagar mínir fóru í land og vildu fá mig með, en ég kaus heldur að vera kyrr um borð. Þegar þeir komu aftur úr landi, var ég nýlega háttað- ur. Þeir voru kátir og reifir og vildu fá mig til þess að fara aft- ur á fætur og taka þátt í glað-

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.