Heima er bezt - 01.04.1955, Qupperneq 12

Heima er bezt - 01.04.1955, Qupperneq 12
108 Heima er bezt Nr. 4 itt að ala þau upp, því við mætt- um þá varla líta af þeim. Kenn- ingin um að börn séu aðeins hrædd við tvo eggjendur þegar við fæðingu, er algerlega út í loftið. Óttinn er nauðsynlegur hverjum manni, því án hans myndum við fara okkur að voða oftar en við gerum. Hinsvegar má vitanlega ekki auka ótta bama vísvitandi. Það er t. d. al- veg forkastanlegt að hræða börn á lögreglunni eða einhverju öðru fólki, sem á engan hátt vinnur börnum mein vitandi vits. Óttinn stjórnar gerðum okk- ar til góðs og ills. Bæði ást og hatur taka óttann í þjónustu sína, enda verður engin geð- stefna sterk án átta. Móðirin óttast að eitthvað geti komið fyrir barnið sitt í framtíðinni, þessvegna gerir- hún allt sem hún getur til þess að tryggja það á ýmsan hátt. En ef ég hata einhvern mann', þá óttast ég, að honum kunni að ganga vel og geri það, sem ég get, til þess að koma í veg fyrir það. Þá gleðst ég yfir óförum hans, hryggist ef honum gengur vel. Þannig þjóna þá sömu tilfinningarnar sem við finnum í ástinni alveg gagn- stæðri geðstefnu, nefnilega hatrinu. Óttinn vill aldrei beita valdi ef hánn er sjálfráður, sé ótta- tilfinningin sérstaklega sterk í einhverjum manni, einkennast gerðir hans af undirferli og falsi, vegna þess, að hann þorir aldrei að koma hreint fram af ótta við að það kunni að valda honum óþægindum. Þegar þannig stendur á, er óttinn farinn að hafa slæm áhrif á manninn, því hann veikir skapgerð hans. Eins og áður var sagt, er frum- stæðasta markmið óttans að frelsa einstaklinginn eða af- kvæmi hans frá hættu, en þótt óttinn komist á hærri stig, er það innst inni alltaf takmark hans að frelsa einstaklinginn frá líkamlegri árás. Maður, sem er undirförull og falskur, mun því sennilega ekki sækjast mikið eftir hnefaleikum við aðra menn. Það liggur í augum uppi, að uppeldisáhrif þurfa að bein- ast í þá átt að draga úr óeðli- legum ótta mannsins, a.m.k. meðan ragmennska, undfirferli og fals eru ekki viðurkennd hugtök sem dyggðir. Reiðin gerir menn djarfa. Skyldust óttanum af öllum til- finningum er reiðin. Allar teg- undir reiði birtast í valdsmann- legri hegðun og meðal dýra er ekki um að villast, að þau vilja nota kraftana þegar þau reiðast. Þannig er það t. d. ef við trufl- um hund, sem er nýbyrjaður á góðum köjtbita, og ekki þekkir okkur áður. Hundurinn urrar og hárin rísa á höfði hans. Árásir og sársauki eru líka frumstæð- ustu eggjendur reiðinnar. Frum- stæðustu andsvör eru að ráða þann, sem árásinni veldur, af dögum. En hinn reiði andsvarar, sem betur fer, á ýmsan annan hátt. Reiður maður getur hugs- að fram í tímann og gert ráð- stafanir til þess, að tilgangur einhvers annars komist í fram- kvæmd. Eru slík andsvör svipuð og andsvör við ótta. Hann get- ur líka andsvarað gegn því, sem liðið er, með því að hefna sín, hann getur andsvarað með því að beita refsingu, sem ef til vill er beitt í góðum tilgangi, t. d. móðir, sem refsar barni sínu, gerir það til þess að koma í veg fyrir endurtekningu ákveðins verknaðar um leið og hún sval- ar reiði sinni. Hin kyrrláta reiði ástarinnar, sem Shand talar um, kemur oft fram hjá foreldrum, sem krefjast ástar af börnum sínum, ekki sízt þegar sízt skyldi, þ. e. á kynþroskastigi þeirra, þegar þau vilja ekki leng- ur lúta vilja og forsjá foreldr- anna í einu og öllu. Hinn líffæralegi tilgangur með reiðinni er að veita einstaklingn- um hugrekki, sem hann býr ekki yfir hversdagslega, en takmark hennar virðist vera að láta ein- hvern eða einhverja aðra hlýða. Ef svo ber undir ,að óttinn verð- ur reiðinni yfirsterkari þannig, að einstaklingurinn þorir ekki að láta til sín taka, er grundvöllur- inn lagður að hatrinu. Af þessu er auðdregin sú ályktun, að ekki sé alltaf ákj ósanlegt að einstakl- ingurinn sitji á sér og gefi ekki reiði sinni lausan tauminn, því ef reiðin verður að hatri, er lík- legt að af henni hljótist mun meiri bölvun en einu reiðikasti. Hins vegar yrði umgengni manna meira en lítið merkileg, ef allir ættu að láta reiðina leika lausum hala í hvert skipti, sem á henni ber. Það er því nauðsynlegt að temja hana á einhvern hátt, t. d. með því að athuga af hverju maður er í raun og veru reiður. Oft fer það svo, að fari menn að hugsa um hvers vegna þeir eru reiðir, rennur þeim reiðin, þó getur hið gagnstæða gerzt, hún getur aukizt og magnazt og orðið að illslökkvandi hatri eftir því, sem meira er hugsað um ástæð- urnar til hennar. Oft fer þaS svo, að sá sem gerir, reiði sína að hatri, hefur ekki í svipinn skilyrði til þess að hefna sín. Nú getur svo farið, að hann geti það ef til vill nokkrum árum síðar, en þá fer oft þannig ,að honum er nóg, að hann getur hefnt sín og sleppir því hefnd- inni sjálfri. Unglingum hættir frekar til að reiðast en fullorðn- um, en þeir hata sjaldnar, vafa- laust vegna þess, að þeir gefa reiðinni lausari tauminn en hin- ir, sem eldri eru. Sá sem vill koma sér vel við náungann verð- ur fyrst og fremst að forðast að reita hann til reiði, einkum ef þannig stendur á, að sá, sem reiðist, þorir ekki að láta á reið- inni bera, því þá getur hún hæglega orðið að hatri. Hins vegar getur sú reiði, sem hefur í för með sér fulla hreinskilni orðið grundvöllur vináttu. Vafa- samt er hvort andrúmsloftið er hreinna, þar sem aldrei ber á reiðinni. Menn, sem vinna lík- amleg störf, sitja síður á sér en þeir, sem ekki gera það. Ef til vill stendur þetta í sambandi við eðlislæg reiðiandsvör, en þau eru að ráðast á andstæðinginn. Manninum, sem vanur er að vinna hörðum höndum, hættir miklu frekar við því að slá and- stæðing sinn heldur en þeim, sem elur ævina á skrifstofu og ekki reynir neitt að ráði á kraft- ana. Mestri fullkomnun nær maðurinn vitanlega, ef honúm tekst að sjá í hendi sér ástæð- urnar til þeirra eggjenda, sem gætu gert hann reiðan, en sem hann reiðist ekki ef hann áttar sig strax á því, hvernig á þeim stendur. Þetta getur enginn

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.