Heima er bezt - 01.04.1955, Qupperneq 14

Heima er bezt - 01.04.1955, Qupperneq 14
110 Heima er bezt Nr. 4 SPÁKONAN eftir annarra pípum, það er villa geðstefnunnar og á þeirri villu byggist möguleikinn til allskon- ar útbreiðslustarfsemi, sem oft og tíðum er til mikils tjóns. Það er dyggð og jafnvel skylda að halda fast við það sem maður elskar. Hugsum okkur t. d. stúd- entinn, sem hefur nám í ein- hverri vísindagrein, sem hann af frjálsum vilja velur sér. Sú ást er einvörðungu áunnin, enda væri lítt hugsanlegt að Dana eða Hollendingi væri ásköpuð ást til eldfj allarannsókna. Nú er það svo, að á vegi há- skólanemans verða margar freistingar og reynir þá á hversu sterk ást hans á vísindunum er, hvort hann heldur náminu á- fram eða ekki. Til þess að styrkja sig, sækist geðstefnan eftir kenndum, sem ekki hafa alla sömu eiginleikana og til- finningar, en hafa þó mikla þýðingu. Shand telur meðal þessara kennda aðdáun, angur, sjálfsásökun, sjálfsánægju, skömm og áframgengni. Þarna er um svipað fyrirbæri að ræða og Murray myndi kalla sálræn- ar þarfir, sem þjóna öðrum æðri þörfum. Eins og ég sagði áður, er það einkenni geðstefn- unnar, að hún safnar tilfinning- um og kenndum, sem komið geta henni að gagni, fyrst ó- sjálfrátt en síðan sjálfrátt. Skyldur eru ýmist þær, sem við leggjum okkur sjálf á herðar eða þær, sem aðrir segja okkur að fara eftir. Við erum mun fúsari til að viðurkenna skyldur, sem fara að einhverju leyti saman við það, sem býr í huga okkar fyrir. Skyldur, sem eru okkur mjög fjarlægar andlega eigum við hinsvegar bágt með að viðurkenna. Tranekjær Ras- mussen, prófessor í sálfræði við Hafnarháskóla, talar um svipað atriði þegar hann talar um, að sá sem fær eitthvert viðfangs- efni, þurfi fyrst að viðurkenna það sem sitt viðfangsefni, áður en hugsanlegt sé að hann geti leyst það. í skólastarfi er áríð- andi, að nemendur viðurkenni viðfangsefnin, og öruggasta ráð- ið til þess að svo megi verða, er jákvæð afstöðumyndum til þess sem gera skal. Það var á skólaárum mínum í Reykjavík, sem saga þessi gerð- ist. Eitt kvöld lét ég að orðum frænda míns og heimsótti spá- konu. Hún bjó vestur í bæ, í litlu, lágu steinhúsi. Mig minnir helzt að húsið væri úr hlöðnum steini. Við gengum frá útidyrum upp brattan stiga. Mér kom til hug- ar skrúfstiginn, sem stúlkan hljóp, sú er lenti hjá uglunni í turninum. Það fór um mig ó- hugnaður. Og þá tók ekki betra við, er upp var komið. Þar varð fyrir manni lág, þröng og daun- ill kytra. Þar sátu tvær búldu- leitar yngismeyj ar. Hvísluðust þær á, kímdu og horfðu for- vitnislega, ef ekki græðgislega á hvað eina, líkt og sést stundum hjá ósettum unglingum, eða þeim, sem sólgnir eru í æfintýri. Um gólfið æddi eða öllu heldur tvísté roskin, flóttaleg kona, skinhoruð og veikluleg. Svo var gólfrýmið lítið þarna, að það þraut að mestu þegar við frændur bættumst í hópinn. Við urðum þess brátt vísari, að einhver var inni hjá spákon- unni, en hún bjó í innra herbergi loftsins. Mér leizt allt illa, sem þarna var, og var því feginn er frændi minn stakk upp á því, að við skyldum fara. Seinna sama kvöld gerðum við aðra tilraun við uppgöngu á Orminn langa, þ. e. a. s. reynd- um að gista dulheim hinnar margvísu konu. En það fór sem áður. Biðstofan var troðfull. Við hurfum frá. Það var komið vor. Eitt hlýtt kvöld og kyrrt, lá leið mín, af hendingu, fram hjá húsi spákon- unnar. Þar urðu þá fyrir mér tvær stúlkur, sem voru að fara þaðan. „Er frúin heima?“ spurði ég. „Já, og enginn hjá henni“, sögðu þær. Ég þakkaði og kvaddi dyra. Gömul, forneskjuleg kona kom og spurði höstugt um erindi mitt. „Er spákonan heima? spurði ég. — „Hér er engin spákona“, sagði kerling. „Hér mun þó vera kona, sem leggur spil“, ítrekaði ég. „Haugalygi, — þvættingur“, hvæsti kerling og hvessti á mig augun. „Verið þér sællar og afsakið ónæðið“, sagði ég og snéri frá. En þá var þar kominn maður. „Bíddu kunningi“, sagði hann. „Hún er aldrei betri en þegar hún byrjar svona. Ég þekki á gamla brýnið“. Þegar kerling heyrði þetta vatt hún sér á hæl inn í húsið og skellti í lás. Komumaður hló hátt og mik- ið. — „Við skulum láta þá gömlu eiga sig“, sagði ég. „Hún lokaði húsinu“. „Lokaði kofanum“, sagði mað- urinn. „Lokaði, segir þú. Sjáðu“. Hann gekk að hurðinni og hratt henni upp. „Komdu", kallaði hann til mín og hljóp upp stigann. Ég sneri frá. Þessi frekja átti ekki við mitt skap. Nokkrum dögum síðar lá leið mín suður Bræðraborgarstig- inn. Út úr búð, sem var í senn brauð- og mjólkurbúð, kom gömul kona með mjólkurkönnu í annarri hendinni og allstóran böggul undir handleggnum. Ég sá, að henni veitti erfitt að bera hvorttveggja, könnuna og bögg- ulinn. Þyngdin var fyrir sig, en þetta tvennt samrýndist illa. Böggullinn fyrirferðarmikill, mjólkurkannan full. „Á ég ekki að halda á böggl- inum meðan við eigum samleið?“ spurði ég. Konan leit til mín snöggt, ef ekki hörkulega. Svo rétti hún mér böggulinn þegjandi. Við gengum suður stiginn. Hvorugt mælti orð. Allt í einu beygði hún til vinstri handar, þá var ég kom- inn úr leið en fylgdi henni samt. Og senn stóðum við við dyr

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.