Heima er bezt - 01.04.1955, Page 16

Heima er bezt - 01.04.1955, Page 16
112 Heima er bezt Nr. 4 Kolbeinn Guðmundsson frá Úlfljótsvatni: Bændur í Nesjum og Nesjavöllum á nítjándu öld I. Frá Þorleifi Guðmundssyni Þorleifur er fæddur í Norður- koti í Grímsnesi 1770. Faðir hans, Guðmundur Brandsson, mun hafa verið ættaður úr Öl- fusi. Var hann bóndi í Norður- koti, þegar Þorleifur fæddist. Ekki er mér kunnugt um móð- urætt Þorleifs. 1773 vildi það til, að bærinn í Norðurkoti brann og köfnuðu þar í reyk 5 manns, og þar með báðir foreldrar Þor- leifs. En af komust gömul kona og Þorleifur. Faðir hans hafði borið hann út, farið svo inn aft- ur og vildi bjarga fleirum, en kom ekki út aftur. Þegar þetta var bjó á Úlfljótsvatni Halldór Brandsson föðurbróðir Þorleifs. Honum var því komið þangað ásamt kerlingu þeirri, sem bjargaðist með honum úr eldin- um. En búið í Norðurkoti tók sýslumaður, sem þá var Stein- dór Finnsson, í sína umsjá. 1 kvíga var látin fylgja Þorleifi úr Norðurkotsbúinu upp í með- gjöf með honum til Halldórs frænda hans. Þetta átti svo að flytja yfir Sogið á ferjustaðnum á Úlfljótsvatni, og sá Halldór bóndi um flutninginn. Hann átti bát, sem hann áleit færan til að skipleggja á honum stórgrip. Þótti verra fyrir kvíguna að láta hana synda yfir. Ekki er annars getið, en að ferðin gengi vel að ferjustaðnum. En þegar Þor- leifur sá bátinn og kvíguna í honum, varð hann hræddur og grenjaði svo að af tók. Lagði þá kerlingin það til, að farið væri með kvíguna fyrst, og hún og strákurinn yrðu sótt á eftir. Þetta var gert. Halldór fór með kvíguna og maður með honum, í bátnum. En það endaði á þann veg, að bátnum hvolfdi á miðju vatninu. Halldór komst á kjöl, en kvígan og sá, sem með hon- um var, drukknuðu bæði. Kona Halldórs sá frá bænum hvernig komið var, tók bátskrifli, sem stóð uppi á landi á Úlfljótsvatni og gat komið því á flot og bjarg- að bónda sínum. Þótti þetta þrekvirki af konu. Líklega hafa Þorleifur og kerlingin verið flutt vestur yfir, þegar búið var að drösla Halldóri í land. En hvernig sem það hefur gengið til, þá er það víst, að þau kom- ust að Úlfljótsvatni og settust þar að. Þetta var á áliðnu sumri eða um haust, því að bæjar- bruninn var nálægt sláttulokum. Þessi tvö stórslys þóttu mikil og varla einleikin. — Nú leið haustið og næsti vetur svo að ekkert bar til tíðinda. Þorleifur var hjá Halldóri föðurbróður sín- um, ásamt kerlingu þeirri, sem kom með honum, var hún þá orðin sjónlítil eða jafnvel hér- umbil blind. Þá var það um vor- ið, að allt fólkið af bænum fór í stekkjartún, sem var skammt frá bænum, en þó í hvarfi, svo ekki sást bærinn frá stekkjar- túninu. En áður en Halldór bóndi fór að heiman, setti hann pottbrot með eldi undir næsta rúm við rúm Þorleifs og kerling- ar, með þeim ummælum, að volgra flónni, sem í rúmunum væri og alltaf væri verið að kvarta undan. Þorleifur og kerl- ingin voru ein heima, og bæði inni í baðstofu. Sér hann þá að farið er að rjúka úr öðru rúm- inu og segir það kerlingunni. Getur hún komið honum út um glugga, en sjálf brann hún inni, og baðstofan til kaldra kola, með því sem í henni var. Þorleif sakaði ekki. Hann var að vappa á hlaðinu þegar fólkið kom frá stekknum. Nú var Halldóri nóg boðið, var sannfærður um að ógæfa þessi stæði í einhverju sambandi við Þorleif. Sá orðrómur var líka kominn á manna á milli, að sending hefði verið send Guð- mundi föður Þorleifs, og hún mundi hafa valdið bæjarbrun- anum í Norðurkoti og öllum ó- höppunum. Það var orðin al- menn sögn, að um vorið áður en brann í Norðurkoti — þegar hann kom úr verinu, fór hann á ferju yfir Sogið hjá Alviðru, en þegar hann kom austur yfir hraunið að Norðurkoti, flaug titlingur á undan honum eftir götunni alla leið heim að túni. Þessu var enginn gaumur gef- inn þá í fyrstu, en þótti samt óvanalegt. En þegar óhöppin fóru að koma hvert af öðru, sá fólkið hvers kyns fugl þetta mundi hafa verið. Halldór fer nú til sýslumanns, sem var fjár- haldsmaður Þorleifs, og biður hann að ráðstafa honum. Ekki hefi ég heyrt neitt um orða- skipti Halldórs og sýslumanns. En sýslumaður tók Þorleif til sín og ólzt hann upp hjá honum, og var hjá honum þar til hann fór að búa í Nesjum, 24 ára gamall. Sýslumaður hefir varðveitt vel erfðafé Þorleifs, því að hann kaupir fyrir það jörðina Nesja í Grafningi, sem þá var 20 hundr- uð, og nægilegan bústofn. Hall- dór á Úlfljótsvatni lét í ljós gleði sína yfir að losna við Þorleif og þau óhöpp, sem honum fylgdu, og sagði að hundrað melir hefðu verið í hverju álnarvirði, sem hann fékk í meðlag með honum. Um það bil sem Þorleifur reisti bú í Nesjum, giftist hann fyrri konu sinni, Guðrúnu Magnús- dóttur frá Sýrlæk í Flóa. í Nesj- um höfðu búið fátækir bændur áður, svo langt sem menn mundu, og sumir fengið sveitar- styrk. En það kom brátt í ljós að nú var komið dugandi fólk þangað, sem gat og vildi bjarg- ast án annarra hjálpar. Nesjar voru þá óhemju landstór jörð,

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.