Heima er bezt - 01.04.1955, Page 17

Heima er bezt - 01.04.1955, Page 17
Nr. 4 Heima er bezt 113 Rímnaþáttur Oddhenda og fleira átti allt það land, sem Nesjar og Nesjavellir eiga nú. Þá var enginn byggð á Nesjavöllum. 1819 vildi það slys til í Nesjum, að Guðrún kona Þorleifs drukknaði í Þingvallavatni, of- an um ís við veiðiskap, 30. marz- mánaðar. Hún hafði verið að vitja um silunganet, en ísinn orðinn meir, og þar af leiðandi ótraustur. Eftir þetta fannst Þorleifi hann ekki geta verið í Nesjum, vegna þess, hvað bær- inn var nærri vatninu; hafði hann það jafnan fyrir augunum skammt frá bæjardyrunum. —- Efnir hann því til bæjarbygg- ingar á Nesjavöllum. Flutti hann svo þangað í fardögum 1820. Bjó hann þar síðan til dauðadags 1836. Þorleifur giftist í annað sinn um það bil sem hann flutti frá Nesjum. Síðari kona hans hét Guðný Bjarnardóttir. Hún kom til hans frá Kaldárhöfða í Grímsnesi. Ekki er mér kunnugt um ætt hennar. Bærinn á Nesjavöllum var fyrst settur norðast á vellina, en fyrsta veturinn, sem í honum var búið, fóru vellirnir í kaf af vatni, er myndaði þar stórt lón. Þetta stafaði af leysingarvatni, sem rann út á vellina, en síaðist út í hraunið og fjaraði, þegar upp stytti. Næsta ár varð Þor- leifur að færa bæinn á hærri stað — nokkra faðma norðar. Þar stóð hann svo þangað til að Grímur sonur Þorleifs færði hann syðst á vellina mörgum árum síðar. Annað nýbýli var byggt i Nesjalandi árið 1832. Það gerði Magnús sonur Þorleifs. Býli þetta var ýmist nefnt Nesjakot eða Botnadalur, eftir dal þeim, sem bærinn var settur í. Þar var byggð í 12 ár. Fyrst bjó þar Magnús Þorleifsson í 4 ár, og eftir hann Magnús Vigfússon í 8 ár. Mestur ókostur þar var vatnsleysi. Enginn uppspretta nálæg og ekki hægt að taka brunn, sem gagn var að. Allt vatn seig niður, þegar þurrkar voru. En á vetrum varð að bræða snjó til þess að fá úr honum vatn. Þorleifur Þorleifsson flutti frá Botnadal að Hofsstöðum í Garðasókn, en Þorleifur Vigfús- son árið 1844 að Lágafelli í Mos- fellssveit, og þá lagðist byggðin Þegar Bláland seint ég sá, sár var þrá míns hjarta. Aldrei má ég aftur sjá undrið háa, bjarta. (Síðasta vísa Einars Benedikts- sonar). Háttur þessi er náskyldur hringhendu, aðeins dýrari þó. Önnur fyrirmynd er háttur miklu eldri, sá hét áður odd- henda, en ég hef nefnt hann frumstiklu, sökum þess að nýja oddhendan hefur algerlega lagt nafnið undir sig. Frumstikla, eða oddhenda minni var þannig: Þegninn fær, sá þeim er kær, þakkar orðið blíða; hinn er ær, sem ekki slær alls kyns dansa fríða. (Griptur 5,2). Elzta hringhenda, sem ég þekki, er eftir Stefán Ölafsson í Vallanesi. Elztu oddhendur er ég hef rekist á eru eftir Stefán og Eirík bróður hans, ortar 1636. Ein er svo: Öngva baun hann leggur í laun, þó ljótan dauninn sendi, utan kaun og kviðarins raun, svo klæar hlaun og endi. Ekki man ég til að hafa séð aðrar vísur með þessum hætti frá seytjándu öld. Þorvaldur Magnússon frá Húsavík (uml670—1740) mun hafa fyrstur ort rímu undir hringhendum hætti. Hann ætla ég að einnig kvæði fyrstur odd- henda rímu; sú ríma er i rímum af Hávarði ísfirðingi. Rímur niður í Botnadal. Botnadalur er nú í Nesjavallalandi. En Nesjar áttu í, honum slægjuítak, og Nesjavellir skógarítak í Nesja- landi. Þorleifur þótti dugnaðarbóndi og merkur maður. Það þótti af- Þorvalds eru nýstárlegar að háttavali og ljóðstíl eða hrynj- andi, þar virðist um tímamót að ræða. Árni Böðvarsson var helzta rímnaskáld 18. aldar. Hann hélt fram stefnu Þorvalds í háttavali og léttleika í kveðandi. Menn geta séð þennan mismun ef þeir bera rímur frá 16. öld og eldri saman við nýrri rímur. Ekki veit ég dýpri rök til þessarar breyt- ingar, en vera kann að málfræð- ingar kunni einhver skil á því. Svo ég víki aftur að oddhend- unni þá varð hún algeng á nítj- ándu öld og áttu þeir mikinn þátt í því Árni Böðvarsson og Sigurður Breiðfjörð. Árni orti margt með oddhendum háttum og orti oddhent af fleiri brag- ættum en ferskeyttu. Fræg er langhenda oddhend, sem Árni mun hafa ort fyrstur. Bólu- Hjálmar kvað einnig rímu með þeim hætti og er mikið flug í henni, enda hef ég nefnt háttinn flughent. Öðling varpar eggjumskarpa, einvaldsharpan þegar sló, hnossir garpa í svanga sarpa svalg hin snarpa maktin þó. (Hjaðningarímur, 4,28) Kveðið var oddhent af mörg- um bragættum og verður ekki rakið hér. Nokkur skáld á átjándu öld kváðu oddhendar rímur og mörg á nítjándu öld. Talsvert er til af lausavísum með hætti þessum. Og enn er hann ortur. Sveinbjörn Benteinsson. reksverk, þegar hann handsam- aði Þorleif útileguþjóf. Það var á fyrstu búskaparárum hans í Nesjum, að vart varð við ó- kenndan mann á næstu bæjum beggja megin við Nesja. Hann ýmist stal eða rændi, eftir því

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.