Heima er bezt - 01.04.1955, Page 20

Heima er bezt - 01.04.1955, Page 20
116 Heima er bezt Nr. 4 Suðurlandi, og einnig austan- lands og norðan. — Til Vestur- landsins hef ég ekki komið, en auðvitað efast ég ekki um, að þar sé líka fallegar stúlkur að hitta. Hjá séra Birni í Holti undir Eyjafjöllum. Ég hef komið á fleiri en eitt prestssetur, þar sem blessuð óhreinindin höfðu fengið að liggja lengi á stofugólfinu, þar sem smjör, mjólk og rjómi var svo fullt af hárum og óhreinind- um, að ekki var mönnum bjóð- andi og hreinlæti á öðrum svið- um í réttu hlutfalli við þetta. í Holti átti ég hins vegar ekki slíku að mæta, en þar gisti ég á þriðja degi ferðar minnar. Hús- bóndinn, hinn glaðværi séra Björn,1) hafði heimili sitt í heiðri, enda þótt hann ætti við bændakjör að búa. Eftir að ég fór frá Odda, kom ég ekki á neitt herramannslegt prestssetur fyrr en ég kom austur á land.2) Það er nauðsynlegt að benda á þetta vegna einkenna landsins, enda þótt jafnframt megi geta þess, að hérað það, sem ég nú átti leið um, er með fátækari héruðum landsins. Auðyitað er langt frá því, að ég vilji niðra hina heiðr- uðu gestgjafa mína á Suðurlandi, mér er þvert á móti skylt að bera á þá hið mesta lof og vera þeim þakklátur fyrir alla þá góðvild og ósérplægni, er fram við mig kom. Athugasemdir mínar hér að Um þessar mundir sat séra Björn Þorvaldsson í Holti (f. 1805, d. 1874). Hann var sonur hefðarklerksins séra Þor- valdar skálds Böðvarssonar í Holti. Séra Björn var kunnur íþróttamaður, en þótti af sumum óheflaður í framkomu, ef svo bar undir. 2) Odda sat þá séra Ásmundur Jónsson (1808—1880). Það var séra Ásmundur, sem dómkirkjuprestur var í Reykjavík, er hið margumrædda „dómskirkjuhneyksli:: átti sér stað, er séra Sveinbjörn Hallgrímsson, þá ritstjóri Þjóðólfs, hóf máls af svölum dómkirkjunnar eftir guðsþjónustugerð og héimtaði, að klerkur segði af sér sökum þess, hve illa til hans heyrðist, en hann var lágróma mjög og fljótmæltur. Þetta gerðist skömmu eftir Norðurreið Skagfirð- inga, sem mjög er fræg, en séra Ásmund- ur kærði hana fyrir stiftamtmanni. Nokkr- um árum síðar flutti séra Ásmundur að Odda. framan eiga ekki við fólkið, heldur tilhögunina. Varla verður því neitað, að það yrði hagur fyrir ísland, að fleiri synir þess stunduðu guðfræðinámið við Hafnarháskóla, en þegar á það er litið, hve rýrar tekjur prest- anna eru eins og er, verður þess ekki af þeim krafizt, að þeir leggi í slíkan kostnað. Flestir þeirra, sem um brauðin sækja, eru því brautskráðir frá prestaskólanum í Reykjavík, sem ekki veitir há- skólamenntun, enda þótt hann kunni að hafa margt sér til ágætis. Gestaskálinn í Holti er nýsmíð- að herbergi, en ómálað og án veggfóðurs, eins og venjan er. Innanstokksmunirnir eru, auk rúmsins, kista til að sitja á og ómálað borð. En allt var þetta snyrtilegt og hreinlegt og disk- urinn með hrísgrjónagrautnum, sem mér var borinn á miðnætti, var slíkt hið sama og maturinn lystugur. Séra Björn í Holti gat ekki mælt á dönsku fremur en granni hans í Skógum,1) og skildi hana heldur ekki, að ég hygg. Hér varð ég því í fyrsta skipti að reyna leikni mína í íslenzku. Hún var að vísu ekki mikil, en fyrir við- leitni mína í þessa átt voru mér þó þegar daginn eftir slegnir gullhamrar, og vakti það síðan þó nokkra undrun á íslandi, er ég mælti á tungu landsmanna. Ekki læt ég þessa getið mér til lofs, því að þekking mín í ís- lenzku var af mjög skornum skammti, og hví skyldi það ann- ars vera lofsvert að nema mál eins og íslenzku, sem býr yfir þeim bókmenntaauði, sem er sí- streymandi lind nautnar og ánægju? Ég hef aðeins látið þessa getið til að sýna fram á, hve hreiminum í íslenzku svipar mikið til hins sænska, því að það, sem ég kunni, bar ég rétt fram, og því heyrði ég oft sagt, að ég mundi geta talað málið eins og innborinn íslendingur, ef ég dveldist eitt ár í landinu. Eins og íslendingar furðuðu sig á hinum íslenzka málhreimi mínum, eins ') Þá var þar Kjartan Jónsson, prestur til Eyvindarhóla, en bjó í Ytri-Skógum frá 1839. Hann lézt 1895, rúmlega niræð- ur. undraðist ég sænskuhreiminn í tali þeirra, því að oft var það, er ég heyrði stuttar, íslenzkar setn- ingar, sem svipaði til sænsku, að mér þótti sem þar væri Svíi að tala. Ég átti að bera séra Birni kveðju frá Fríðu1) dóttur hans í Reykjavík, en ég er þess fullviss, að hvorki þessi meðmæli né nokkur önnur þurfti til þess að fá þennan heiðursmann til að taka ókunnum ferðalang opnum örmum. Um morguninn, þegar ég lagði af stað, lét hann söðla hesta sína og reið með mér ásamt ungum syni sínum að Skógum, en þar ætlaði ég mér að gista næstu nótt. Hann gerði mér líka þann greiða að söðla hest handa mér, svo að ég gæti hvílt mína hesta. Þetta var reiðhestur dóttur hans, ég sat því sem sagt á Fríðu- Rauð, þegar við létum spretta úr spori í áttina að Skógum. Á þessari leið bar fyrir augu ýmis náttúrufyrirbrigði, og er þar einkum að nefna hella, sem hér og þar gengu inn í snarbratt fjallið neðanvert, og gerði ég mér í hugarlund, að sjávarbrim hafi ráðið gerð þeirra endur fyrir löngu, er landið var lægra eða áður en sléttan, sem nú er nið- ur af fjallinu, varð til. Hellar þessir koma í góðar þarfir bæði sem fjárhús og heyhlöður. Fyrsti hellirinn, sem við komum að, er íhvolfur, um áttatíu fet á lengd- ina og fjórtán fet á hæð. í munnanum, þar sem ljóss nýtur, er hvelfingin alsett fíngerðum, en eigi að síður gróðurmiklum burknum í hressandi, fagur- grænum lit. Timburskilrúm lok- ar hellinum innanverðum. Ann- ar hellirinn var einungis gat, sem lá þversum undir hamravegginn, og var það ekki að neinu merki- legt. Þriðji hellirinn var að nokkru leyti mannaverk. Hann var að gerð eins og hálfur sívaln- ingur, um sjötíu fet á lengd, tuttugu og fjögur á breiddina, en hæðin hólf fet. Hér var og hvelf- ing til hliðar við hellinn, og náði hún upp í annan helli, sem var ofan á hinum. í hvolfinu er op l) Hér á höfundurinn við Hólmfríði, er séra Björn átti við fyrri konu sinni. Hún átti Ólaf leikfimiskennara Rósenkranz.

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.