Heima er bezt - 01.04.1955, Qupperneq 22

Heima er bezt - 01.04.1955, Qupperneq 22
/ 118 Heima er bezt Nr. 4 lokið á tóbaksdósunum með hinni, þegar maður vill fá sér nefdrátt. Aftur á móti er hægur vandi að taka tappann úr tóbaks- horni, bera það að nefi sér, hrista það á alla vegu og sjúga þetta ilmandi ódáinsduft fyrst upp í aðra nösina, en síðan hina. Þegar ég var á Maríubakka, bar þessi tóbakshorn á góma. Run- ólfur kom með sýnishorn af þeim og jafnframt drykkjar- horn, sem var eins að lögun og gerð. Ég lét þá þess getið við hann, hvort honum yrði aldrei sú skyssan á að bera drykkjar- hornið að nefi sér, en tóbaks- hornið að munni, og innti hann jafnframt eftir afleiðingum af slíkum misgáningi. Þó hló Run- ólfur, strauk höku sína og læsti hvorutveggja hornin niður. Ég er annars á þeirri skoðun, að ferðalangurinn, sem kemur til íslands, megi hrósa happi, ef svo vill til, að hann er ekki gef- inn fyrir þær ódáinsveigar, sem brennivínið er sumum mönnum, því að freistingarnar verða hon- um ella allt of miklar. Maður get- ur naumast áð við einhvern bæ- inn og þaðan af síður hitt „lags- mann“ sinn á förnum vegi án þess að vikið sé að manni spurn- ingunni: „Má ekki bjóða þér einn lítinn?“ Og ef spurningunni er ekki beint að manni í orðum, fer þessi eftirgrennslan fram með íbygnu depli með augunum, um leið og klappað er á pelann eða hornið í brjóstvasanum. Þegar bóndi er á heimleið úr kaupstað, er hann alveg sérstaklega til- neyddur að bjóða hverjum þeim, sem á vegi haris verður, að bragða á brennivínsbirgðum þeim, sem hann hefur meðferð- is. Ella á hann það á hættu að vera kallaður grútur. Sennilega á þessi siður rætur sínar að rekja til þess, að allir sýslungar þekkj- ast í þessu strjálbýla landi, og því finnst mönnum, að ekki verði undan því skorast að bjóða hressingu, er fundum ber saman. Leiðsögumaður minn yfir Breiðamerkursand, sem hafði sýnt það framan af degi, að hann var dugnaðarmaður, mun undir kvöldið, að því ég hygg, hafa gerzt íullkær að „brennivíns- horni“ sínu, og var því er á leið kvöldið allkátur. Kom þá í ljós í fari hans elskulegur barnaskap- ur, sem lýsti sér á eftirfarandi hátt, en hvort hann hefur staf- að af of innilegum skiptum við hornið eða verið honum áskap- aður, læt ég alveg ósagt um. En hitt er víst, að um kvöldið, þeg- ar við komum að Kálfafellsstað, — en svo hét prestssetrið, sem ég gisti á um nóttina —, spurði Þor- varður, en svo hét maðurinn, hvað ég héti. Ég fékk honum þá prentað nafnspjald, svo að hann ætti hægra með að muna það. Þá varð hann svo hjartanlega glað- ur, að hann tók markskilding upp úr vestisvasa sínum til þess að borga mér fyrir: „Sjálfsagt að borga þetta.“ Ég gat með mestu erfiðismunum fengið hann til að halda peningum sínum. Séra Bjarni á Stafafelli1) er einn hinna fáu íslenzku presta, sem ég hef séð, er minni hið ytra á prestastéttina í gömlu Svíþjóð, því að í fyrsta lagi var hann með dálitla prófastsístru og í öðru lagi ef til vill með þar til heyrandi — og stundum þar af leiðandi — virðuleik í fasi. En þess er að geta, að íslenzku prest- arnir eru ekki hempuklæddir á rúmhelgum dögum, fremur en starfsbræður þeirra í Danmörku, og ef til vill er það þessi vöntun hins kennimannslega einkennis- búnings, að nokkru leyti sök á því, hve habitus“2) klerkastétt- arinnar á íslandi og í Svíþjóð er ólíkt. Séra Bjarni er þekktur fyrir það, að hann hefði getað orðið valdur að ófriði milli smáríkisins Danmerkur og stórveldisins Frakklands. Hann á nefnilega dálítinn æðarvarpshólma, sem var rændur fyrir nokkru af skipshöfn franskrar fiskiskútu, en mikið er um þær umhverfis ísland, — en hérna fyrrum hefði ríkjum ekki orðið nein skota- skuld úr að fitja upp á styrjöld af minna tilefni. Nú á dögum hafa menn hins vegar komizt að þeirri niðurstöðu, að hagkvæm- 1) Séra Bjarni Sveinsson á Stafafelli (1813—1889) sat þar tvívegis og sagði af sér prestsskap 1877. Skáldmæltur gáfu- maður, en þunglyndur nokkuð. 2) hátterni, framferði. ara er fyrir báða aðila að láta, greiðslu koma fyrir og taka við henni, er um slíkar yfirsjónir er að ræða, — og kæra sig kollótta um sæmdina. Við megum vera guði þakklát fyrir það, því að hér hefði aðeins verið um sýndar- heiður að ræða. Séra Bjarni má því lofa guð fyrir að vera í heim- inn borinn á þessum menning- artímum, því að hann þarf nú ekki að hafa samvizkukvalir út af því, að hann hafi komið af stað styrjöld með þar til heyr- andi blóðbaði, — en hann lætur samt ekki hjá líða að hrakyrða stjórnina, sem ekki getur stutt hann til að ná rétti sínum. Og víst verður maður að játa, að er- indislokin eru hörmuleg, þegar hann sendir bát sinn út í Vigur- hólma eftir nýjum æðareggjum, en hann situr svangur heima og hefur ekki hugann af eggjarauð- unni kræsilegu, — kemur bátur- inn þá ekki aftur með forhlaðs- rytjur úr nokkrum frönskum eða enskum dagblöðum. Auk þess er Vigur sennilega aðaltekjulind hans, sem gefur honum ef til vill í aðra hönd 300—400 ríkisbanka- dali á ári fyrir æðardún og egg, og þegar á málin er litið frá þvf sjónarmiði, verður að játa, að það er sárgrætilegt að verða fyr- ir gripdeildum erlendra ræn- ingja. Fiskiduggurnar frönsku, sem lóna við íslandsstrendur tvö— þrjú hundruð talsins í fimm mánuði á ári að minnsta kosti, valda yfirleitt mikilli gremju, og má segja, að það sé minnst, þótt þeir ræni einn varphólma. Hlut- urinn er nefnilega sá, að Frakk- ar tálma veiðum landsmanna. Þegar duggur þeirra koma á ís- landsmið í aprílbyrjun og hefja veiðar, eru þorskveiðar lands- manna um sinn úr sögunni eða að minnsta kosti miklum erfið- leikum bundnar, því að þeir eiga ekki þilskip, aðeins opna róðrar- báta, sem ekki verða notaðir í miklum sjó, og mega þeir sín því lítils gegn velútbúnum frönsk- um sjómönnum. Þegar 40—50 franskar duggur liggja úti fyrir meðfram landi, — en þær mega samkvæmt alþjóða siglingalög- um vera í allt að fallbyssuskots fjarlægð frá landi, þ. e. um hálfa mílu —, þá sitja þeir að allri

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.