Heima er bezt - 01.04.1955, Síða 24

Heima er bezt - 01.04.1955, Síða 24
120 Heima er bezt Nr. 4 Sigurður Kr. Draumland: Vordagur á öskuhaugnum Vorið kemur á fleygiferð eftir Glerárdalnum. Rokhvass hláku- vindurinn beljar niður árgilið og mætir mér á öskuhaugnum á hólaþyrpingunni fyrir ofan Lund. Heiður og hlýr aprílmorg- uninn varpar gullsljóma um Eyjafjörðinn og hérna stend ég á haugnum albúinn að hefj a dagsverkið. Embætti mitt er í því falið, að sjá um að sorphaug- urinn líti alltaf vel út, og þjálfa þá, sem koma þangað með rusl, í góðri umgengni. Fyrst verð ég að sauma hnapp í vinnugallann minn. Hann hrökk af, þegar ég stökk yfir lækinn. Og þar sem verkfræðing- arnir hafa sagt mér að taka líf- inu hér með stærðfræðilegri ró, breyti ég auðvitað eftir því með ánægju. En ég er feitur og stirð- ur og lurkum laminn, síðan ég dró fallhamarinn í gær, þegar verið var að ramma niður bryggjustólpana. Eg held þeir hefðu getað sent hann Júníus á fallhamarinn. Þ. e. tekið kraft- ana, þar sem þeir eru til, með stórt pund af blautu munntób- aki í nestið. Næst er að athuga skófluna. Þarna er kvistur í miðju skaft- inu. Fjandakornið að ég sætti mig við þetta, nema hann hafi verið þarna líka í gær! En alltaf er verið að skifta um skóflur og hvernig gæti líka bæjarvinnan gengið sæmilega án þess? Nú ræðst ég á sorphrúguna sem öskubíllinn hefir skilið eftir á haugbrúninni, sem tákn um dugnað öskuhreinsunarmann- anna. Samsafn allskonar félegra muna innan um hversdagslegan skít. Ekki moka ég þó lengi án þess að rekast á Morgunblaðið og Tímann og öll hin blöðin. Sumt af þessu þarf ég endilega að lesa, annað ekki. Svo eru sendibréf í tugatali. Réttast væri að taka þau og senda aftur sitt í hverja áttina, út um land! Byljirnir aukast. Vorið starfar í fjallinu við að bræða snjó. Það gáir ekki að því, að það gerir mér óleik í bréfaruslinu, þeytir því niður um öll tún og girðingar, og svo koma bændurnir og klaga, og má ég þá fara að tína. Þarna hleypur einn Þjóðvilji niður brekkuna, í áttina að Flúðum. Ef hann kemst inn á túnið þar, verður Friðrik vondur. Ég set þvottaklemmu í nef mér og stekk af stað að elta blaðið, en það vill ekki láta ná sér; og mér er sem ég heyri hláturinn í ritstjóran- um, innan í blaðinu. Þjóðviljinn steypir sér loks niður í ána neð- an við hólana. Mér datt aldrei í hug að hann kynni að synda, en svona endar þetta nú samt. Yfir hæðirnar ber háan reyk- strók sem þyrlast ákaflega fyrir vorvindinum. Eldurinn í ösku- haugunum er ákaflega umdeild persóna. Sumir vilja hafa hann, aðrir ekki; alveg eins og með þingmenn og ráðherra. Maður gerir bezt, að látast hvorki sjá né heyra hér efra. Vera á allra bandi, öllum sammála, sem þó hafa hver sína skoðun. Og glotta svo á eftir þeim, þegar þeir fara. Heill skipsfarmur af bréfadóti kemur í fang mér á leiðinni upp á hauginn aftur. Sortnar næst- um alveg fyrir sól. Vindurinn hlær og steypir sér kollhnís með veiðina, en ég hengi stein í hatt- barðið mitt og fer að moka. Þeg- ar ég hefi jafnað alla haugbrún- ina verður mér litið upp og sé að komnir eru nokkrir máfar. Bak við þá glittir í Tuliníus, með stærðar derhúfu. Hann ætlar auðsjáanlega heldur en ekki að fara að hreinsa til. Veður nú fram gegnum máfahópinn, sem rýkur út í veður og vind. Þrífur bréfsnifsi og kastar því fram af haugnum, beint á móti bylnum, sem þeytir því til baka austur í Vaðlaheiði. Tuliníus verður hissa, klappar mér svo á herðarn ar og segir: Þú hlýtur að vera duglegur, góurinn! — Mér þykir vænt um að fá hjálp við verkið og sting upp á því, að við sækjum Ásgeir líka. En hann ku þá hafa verið sendur í togara- vinnu í morgun. Enda engin skófla til handa honum fyrri en á fimmtudaginn, þegar þær koma úr viðgerð. Og Mangi Lúð- víks er hættur að lána. — Dýrð- in stendur ekki lengi. Og þó er blessuð lóan að syngja dírrin— dírrinn í loftinu þarna uppi yfir okkur. Hinn nýi vinnufélagi hverfur fljótar en hann kom. Og þetta er þá allt, sem hann hef- ur getað lært af mér. Ekki er að sökum að spyrja, þegar fyrir- myndirnar bregðast. Einn bíll af sandi fyrir morg- unkaffi! Ég fer nú að skjálfa í miðju vorinu. ef þið haldið ekki betur áfram. Eldurinn þiggur marga bílfarma af sandi á hauginn, áður en hann hættir að gefa reyk frá sér. Ég nefni þetta við bílstjórann. Hann er annars hugar og segir fátt. Nú man ég það, að Geiri var eitthvað að stríða honum í gær. Geiri hef- ir líka strítt mér og ég honum, svo að þetta er allt ein flækja og hvergi upphaf né endir, sem hægt sé að átta sig á. Þegar ég opna kaffitöskuna mína velta ósköpin öll af flugum út úr henni. Þær hafa komist inn um rifu á einu horninu og þykjast nú vera morgunmatur, en ég rek þær burtu. Sólin skín á heiðum himni og þeim er vor- kunnarlaust að halda sönsunum. Háttvirtu flugur! — sem persón- ur og hugtök! Gerið svo vel og hverfið héðan meðan tími er til, annars veiði ég ykkur í bréfpoka og held fyrir opið, svo lengi sem mér þóknast. Fram að hádeginu hefi ég eng- an frið fyrir viðskiptavinum. Allir þurfa að koma af sér rusli. Að vísu fá þeir það framan í sig að mestu aftur, meðan þeir eru að steypa því af bílunum, fram á hauginn. Ég get eigi annað en aumkvað þá menn, sem verða að fara til baka í bæinn með allt þetta mor í skegginu. Þori ekki að bjóða þeim vindla, þá getur kviknað í lubbanum, og nóg er áður um eld hér efra. Verð ég því bara að skemmta sjálfum mér, og ek í handbörum, til að njóta vinnugleðinnar á borð við Franklín. Klukkan tólf hleyp ég undan

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.