Heima er bezt - 01.04.1955, Síða 25

Heima er bezt - 01.04.1955, Síða 25
Nr. 4 Heima er bezt 121 VALDABARÁTTA í HEIM- SKAUTALÖNDUM Stór landsvæði, sem enginn hefur augum litið. — Er Suðurskauts- landið ríkt af verðmætum málmum? brekkunni austur af hólunum. Það er hálftíma gangur heim og verkamannafélagið vill láta aka mér á bíl til og frá mat, þar sem vinnustaðurinn er langt ofan við svonefnda „línu“. Ég get ekki verið að bíða eftir öllum þeim fjölda af bílum, sem þyrfti til þess, yfir langa æfi. Ég ætla að verða 100 ára, eins og afar mín- ir. Skýin þjóta um loftið. Þau eru vist að mæla tímann. Upp úr hádeginu tekur að lægja. Svo er líka um mannsæfina. Blátt vormistur hrannast í suðri. Bak við móðuna er him- ininn djúpgrænn. Brátt fer jörð- in að sýna sama lit. Hrafninn er búinn að verpa. Hreiðrið er í gljúfrinu beint á móti ösku- haugnum. Stundum sitja bæði krummahjónin á haugnum, þeg- ar mig ber að. Þau virðast vera að leika „legg og skel“, eða jafn- vel „fífil og hunangsflugu". Það eru tómstundir. Mestu af tíman- um verja þau til búskapar, eða aðdáunar á fjölbreytni matarúr- gangsins á haugnum. Þau ráðast á rottur og ketti og biðja slíkan þrælalýð aldrei þrífast. Svona er stríð lífsins, þar sem þroskinn er fjarlægur. Möngu gleymir heimskur smalagvendur á steðja tilverunnar, og er hræddur við Skugga-Svein. Það var líka einu sinni Sfinx, sem var ákaflega þögul, mælti aldrei orð. Einu sinni brá hún vana sínum og sagði við farand- söngvarann í eyðimörkinni: Horfðu langt yfir skammt, þang- að sem sést í heiðan himininn gegnum ofurlítið skýjagat. Láttu söng þinn hljóma yfir auðnina kring um þig, án þess að virða hana viðlits. Hallandi degi fylgir notaleg værð. Flugurnar suða á haugn- um. Sorpið angar. Reykurinn verður að ljúflyndum kúf, eins- konar dalalæðu. Hverfur loks alveg, þegar ég er búinn að aka nógu í uppsprettu hans. Þá er hérumbil nón. Uppi á hólaslétt- unni er Finnur að plægja kart- öflugarðana, sem bærinn leigir út. Blik vordagsins er yfir borg- inni og töfrar verkamennina, sem staddir eru svona hátt upp í fjalli. Fj arlaajgðjn gerir fjöllin blá og mennina mikla, sagði Jó- hann Sigurjónsson. Okkur Finni Það er langt síðan, sæfarendur uppgötvuðu stórt, ísiþakið land umhverfis Suðurskaut jarðar. Land þetta, sem er stærra en Evrópa, er allt ísiþakið, nema þar sem háfjöll risa upp úr jökl- inum. Þarna mitt í ísauðnunum eru stórkostleg eldfjöll, svo sem Erebus, sem gýs með stuttu milli- taili, en lítið af landinu er kann- að, nema helzt strendur þess. Sjálft Suðurheimskautið liggur á hásléttu um 3 þús. metra yfir sjávarmál. Það var lengi keppi- kefli landkönnuða. Mörgum er minnisstætt kapphlaupið til Suðurskautsins á fyrsta og öðr- um áratug þessarar aldar, sem lauk með því að Roald Amund- sen komst á heimsskautið þann 14. des. 1911. Um þetta einstæða afrek lét Friðþjófur Nansen þau orð falla, að af því myndi lýsa langt fram í aldir, enda er Am- undsen nú viðurkenndur sem einn af hinum miklu landkönn- uðum veraldarsögunnar. Leið Amundsens til skautsins lá yfir hrikalega skriðjökla og stórkost- lega fjallgarða á hæð við Alpana. Lýsing hans á þessu ferðalagi er einna líkust spennandi skáld- sögu, svo ævintýralegt var þetta ferðalag allt, þó að hinn góði ár- angur þess næðist aðeins vegna frábærrar útsjónarsemi og þrautseigju Amundsens, en það átti ekkert skylt við spila- mennsku ævintýramannsins. finnst bærinn svo fallegur héðan að sjá, og þykir frá þessum sjón- arhól skoðað, sem mannlífið þar sé engu líkt að gæðum. Nú skýt- ur Tuliníusi upp aftur og hann gefur okkur „snaps“ með síð- degiskaffinu. Svo spásserum við svolítið og tölum um vinnuna, sem fyrir hendi er. En hvað læt- ur fólk sig varða hvað við hugs- um þessir þrír? Við sem stundum förum í „snjókast" með dauðum rottum! Á þessum vetri hafa heims- blöðin rætt talsvert um Suður- skautslandið, og fjölmennur vís- indaleiðangur heldur til þar syðra um þessar mundir. í þetta skipti eru það Ameríkumenn, sem hafa falið vísindamönnun- um að sýna flaggið á þessum slóðum, ef til vill meðal annars til þess að sýna Englendingum, Chilebúum og Argentínumönn- um að fleiri hafi áhuga á þess- um ísauðnum en þeir. En fyrr- nefndar þjóðir hafa sent marga leiðangra til heimsskautslands- ins síðustu árin og sýnt talsverð- an áhuga á löndunum þar. Einn- ig hér á Norðurlöndum láta menn sig þessi mál skipta, því að Norðmenn vilja gjarna fá við- urkenningu á, að þeir hafi yfir- ráð yfir landsvæði því, sem kennt er við Maud drottningu þeirra, og Amundsen gaf nafn á sínum tíma. En það, sem einkum fær Bandaríkjamenn til að skipta sér af löndum þessum, er þó víst aðallega sú staðreynd, að Rússar hafa látið sjá sig á þess- um suðrænu slóðum við hlið annarra þjóða. Deilur þær milli ríkja um land- svæði þetta, sem er eins og áður er sagt, stærra en öll Evrópa, og að mestu leyti algerlega óþekkt, eiga rót sína að rekja til þeirra möguleika, sem finnast þar frá hernaðarfræðilegum sjónarmið- um. Ef svo færi, að Panama- Samt erum við samnefnarar fyrir allt hitt fólkið. Við og allt hitt fólkið höldum áfram braut starfs og dáða, hvert í sinni stöðu. Nýr dagur tekur sífellt við af liðnum. Minningarnar um okkur safnast í hauga sögunnar, eins og glóandi málm-dallar með fáeinum ryðblettum hér og þar, unz klukka tímans hættir að lokum að ganga og líkaböng ei- lífðarinnar hringir okkur til moldar í gröf aldanna.

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.