Heima er bezt - 01.03.1956, Qupperneq 14

Heima er bezt - 01.03.1956, Qupperneq 14
HAKON GUÐMUNDSSON hœstaréttarritari BLAÐAÐí DÓMSMÁLUM ú Á tímum þykir það svo sjálfsagður hlutur, að íslenzkir menn og íslenzkir dómstólar dæmi í málum Islendinga, að mörgum gleymist, að í nærfellt hálfa sjöundu öld var æðsta dómsvald í málum íslenzkra þegna í höndum er- lends aðilja. Á lýðveldis- og þjóðveldistímabilinu fengu dóms- málin að sjálfsögðu fullnaðarúrlausn hjá dómstól- unum — fjórðungsdómum og fimmtardómi — á Al- þingi við Oxará. En þegar þjóðveldið leið nndir lok og ísland komst undir konungsvald, var tekið að skjóta íslenzkum dómsmálum undir erlendan dómstól til síðustu úrlausnar. Eftir að Jónsbók var lögtekin hér á landi árið 1280 voru lög til þess, að skjóta mætti dómum lögmanna og lögréttunnar undir dóm konungs og skyldi hann skera úr þeim málum með ráði vitrustu manna. Mun þar hafa verið átt við íslendinga. í framkvæmd fór svo um þessi málskot, að málin voru lögð undir ríkisráð konungs til úrlausnar, fyrst liið norska og síðar hið danska, og var þannig farið með íslenzk dómsmál allt til þess er Hæstiréttur Danmerkur var stofnað- ur. Eftir það fór sá dómstóll með æðsta vald í ís- lenzkum dómsmálum allar götur til ársins 1920, er Hæstiréttur íslands var stofnaður og æðsta dóms- valdið þar með flutt á íslenzkar hendur. Eins og að líkum lætur, var það ekki þrautalaust fyrir Islendinga að þurfa að sækja og verja mál sín fyrir erlendum eyrum. Krafan um flutning æðsta dómsvaldsins heim til íslands hlaut því að verða, og varð, eitt af þeim málum, sem hátt bar í sjálf- stæðisbaráttu íslendinga. Hér er ekki rúm til þess að rekja þá sögu til hlítar, en til nokkurs fróðleiks mætti það verða, að drepa á fá atriði þess máls. Benedikt Sveinsson sýslumaður, faðir Einars skálds, var ein af sjálfstæðishetjum nítjándu aldar- innar. Sat hann lengi á þingi og var aðsópsmikill þingskörungur og mælskumaður. Árið 1885 flutti hann á Alþingi frv. til laga þess efnis, að dómsvald Hæstaréttar Dana í íslenzkum málum skyldi úr lög- um numið. Framsöguræða Benedikts er bæði sköru- leg og skennntileg og mælti hann m. a. á þessa leið: „Það er ekki svo að skilja, að ég lýsi nokkru van- trausti til Hæstaréttar í sjálfu sér. En mitt traust nær ekki lengra en svo, að eigi sé ákjósanlegt eða hafandi af stjórnlagaástæðum, að Hæstiréttur (þ. e. Danmerkur) sé æðsti dómstóll landsins lengur en orðið er. Allar hinar sömu ástæður, sem mæla með innlendri stjórn yfirhöfuð, mæla og með því, og það í ríkulegasta mæli sérstaklega, að hafa æðsta dóm- stól í landinu sjálfu.“ Benedikt telur síðan fram ýmsa þá annmarka, sem séu á því, að æðsta dómsvaldið sé í framandi landi, svo sem fjarlægð og þann langa tíma, sem málarekstur þar taki, og heldur svo áfram á þessa leið: „Enn fremur bíður þjóðerni vort og helgustu landsréttindi alveg óbætanlegt tjón við það, að hafa 66 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.