Heima er bezt - 01.03.1956, Blaðsíða 18
PÁLLBERGPÓRSSON
ve&urfrœ&ingur
VEÐRIÐ
í JANÚAR 1956
/"
meðalári er janúar-hitinn í Vestmannaeyjum
um frostmark, en lægri annars staðar, 2ja til
3ja stiga frost í innsveitum, en heldur minna
við norðurströndina. Úrkoman á láglendi er að
jafnaði mikil við suðausturströndina, hátt á annað
hundrað mm, mest rigning, en um 50 mm eða
minni á Norðurlandi, snjór að mestum hluta.
Þótt meðaltölin gefi stundum nokkuð glögga
mynd, eru þau oft ófullnægjandi ein saman, og má
sjá það vel á þeim janúar, sem nú er nýliðinn. Þá
skiptust á hörkufrost og hlýindi, sem jöfnuðust á
við meðalhita júlímánaðar sums staðar á landinu,
því að hann er í sumum útsveitum 8— 10 stig. Frost-
in voru þó svo miklu langvinnari, að þau höfðu úr-
slitaáhrif á meðaihitann. Einna kaldast mun hafa
verið í innsveitum ekki síður á Suðurlandi en Norð-
urlandi, um 5—6 stiga frost að meðaltali. Þykkviðr-
in, vindurinn og snjókoman á Norðuriandi hafa,
þótt hvimleið væru, dregið þar mjög úr frostum,
svo að þau urðu þar tiltöluiega vægari en hjá sunn-
anmönnum. Við ströndina var frostið nálægt 3 stig-
um til jafnaðar, eða 2 stigum kaldara en í meðalári.
Hefur því mánuðurinn, þrátt fyrir allt, orðið
óvenju kaldur, einkum á Suðurlandi. Eru 20 ár síð-
an janúar hefur verið svo kaldur í Reykjavík. Hins
vegar jafnast þessi janúar ekki við nafna sinn 1918,
þegar frostið í Reykjavík komst í 24.5 stig kl. 6 að
morgni þ. 21., móti 17 stigum nú. Meðalhitinn í
Reykjavík var nú —3.2 stig, en —3.8 á Akureyri.
Hver var kaldasti staður á iandinu, mun einhver
spyrja? Sennilegt er, að það hafi verið hæstu hnjúk-
ar landsins. Öræfajökuil eða Bárðarbunga. Sam-
kvæmt háloftaathugunum í Keflavík var frostið í
2000 m hæð um 14 stig til jafnaðar og er það iasgra
en nokkurt mánaðarmeðaltal síðustu ára. Má gera
ráð fyrir, að á Öræfajökli hafi meðalfrostið verið
minnst 14—15 stig. Vegna samgönguerfiðleika hefur
lítið borizt enn af veðurbókum frá Norðurlandi, en
þar var þetta harðindamánuður. Úrkoman á Akur-
eyri varð 100 mm, mest snjór, og er það um 130%
umfram meðallag. Er sennilegt, að svipaða sögu sé
að segja frá öðrum héruðum norðanlands. Á Vest-
fjörðum var einnig mikil úrkoma norðan til, 123
mm á Suðureyri, meðallag er 99. Á Fljótsdalshéraði
var úrkoman í meira lagi, þó ekki eins og á Akur-
eyri. En um allt Suðurland og til Vestfjarða var úr-
koman fremur lítil, víðast tveir þriðjungar af með-
allagi, t. d. á Fagurhólsmýri og í Reykjavík. Mán-
uðurinn var feikna snjóþungur á Norðurlandi.
Hitt er annað mál, að undramiklar leysingar komu
um mánaðamótin, og síðustu dagana hefur mönn-
um orðið tíðræddara um þau óköp, sem leysingun-
um fylgdu, en um snjóana. Janúar hófst með rosa-
veðrum og miklum hlákum, sem þíddu mest af jóla-
snjónum. Um þ. 5. gekk hann svo í norðrið og hóf-
ust þá hríðarnar á Norðurlandi og frosthörkur um
landið allt. Linnti þeim ekki fyrr en um 25. janúar,
þá dró til suðlægrar áttar og snjóa tók að leysa.
70 Heima er bezt