Heima er bezt - 01.07.1958, Blaðsíða 2

Heima er bezt - 01.07.1958, Blaðsíða 2
rar ^ •» moa Sú var ein af sýnum skáldsins og stjórnmálaskörungs- ins Hannesar Hafsteins í Aldamótakvæði hans, að akrar hyldu móa landsins. Vafalítið er, að mörgum hafa þótt spásagnir hans í því kvæði furðu draumórakenndar um aldamótin síðustu. En svo bregður við, að nú að öldinni rúmlega hálfnaðri, hafa flestar spár skáldsins rætzt að meira eða minna leyti. Sumar virðast þó eiga langt í land og þar á meðal, að akuryrkja verði snar þáttur í íslenzkum landbúnaði. Vér íslendingar erum einkennilega samsettir að því leyti, að í aðra röndina erum vér nýjungagjarnir, en á hinn bóginn oft furðulega fastheldnir við gamla for- dóma. Þetta kemur skýrt fram í landbúnaðarmálum vorum. Islenzkir bændur hafa á 3—4 áratugum unnið slíkt þrekvirki í framkvæmdum og framförum að ævin- týri er líkast. Svo má kalla, að allur húsakostur hafi verið endurnýjaður frá frumstæðum torfbæjum í ný- tízku steinhús. Ræktun hefur margfaldazt, og í stað ófullkominna handverkfæra, sem oft voru af skornum skammti, hefur komið nýtízku vélakostur, fullkomlega sambærilegur við hið bezta, sem notað er erlendis. Framleiðslan hefur stóraukizt, þótt fólkinu hafi fækkað. Vafalaust má finna einhverjar skuggahliðar á þessum framförum. Benda má á, að oft mun fjárfesting í húsum og vélakosti hafa farið fram úr því, sem jarðirnar geta borið með góðu móti, og ýmsar ræktunarframkvæmdir hafa verið gerðar af meira kappi en vandvirkni um und- irbúning og frágang. En slíkt heyrir til umbrotatímum og eru eins konar bamasjúkdómar, sem læknast, þegar fram Iíða stundir. En í öllum þessum framförum gegnir það furðu, hve fastheldnir menn hafa verið við vantrúna á gagnsemi komyrkjunnar á íslandi. Þar hefur ótrú og mér liggur við að segja vonleysi það, sem einkenndi liðnar aldir, haldizt óbreytt. Ekki vantar þó, að tilraunir hafi verið gerðar. í fullan aldarþriðjung hefur Klemenz á Sáms- stöðum ræktað korn með góðum árangri, og á sama tíma hafa kornyrkjutilraunir í Gróðrarstöð Ræktunar- félags Norðurlands á Akureyri heppnazt vel, þótt í smærri stíl væru en á Sámsstöðum. Klemenz hefur ekki eingöngu ræktað korn í tilraunaskyni. Kornræktin hef- ur verið og er liður í búskap hans, ekki síður en naut- gripahald og garðyrkja, og hefur hún gefið góðan arð. Hann hefur framleitt nægilegt korn í fóðurbæti handa búi sínu og selt nokkuð bæði til útsæðis og annarra nota. Og það, sem Klemenzi á Sámsstöðum hefur tekizt, getur hverjum öðrum bónda um mikinn hluta landsins heppnazt, ef gengið er til verks með kunnáttu og forsjá. En er til nokkurs að vinna með því að hefja kornrækt? myndi þá ef til vill einhver spyrja. Því er fljótsvarað, að fátt mundi verða meiri vinningur íslenzkri jarðrækt, en ef kornræktin yrði almenn, jafnvel þótt í smáum stíl væri. Eitt höfuðeinkenni gömlu íslenzku sveitaheimilanna var, hversu þau voru sjálfum sér næg. Kröfurnar voru að vísu ekki mildar, en heimilin fengu fullnægt þeim að verulegu leyti með eigin framleiðslu og vinnu. Þetta er gjörbreytt sem mest má verða sakir aukinnar sérhæfing- ar í þjóðarbúskapnum öllum og breyttra viðhorfa. Nú þarf að kaupa flest að, og framleiðsla sveitanna hvílir að verulegu leýti á möguleikunum á aðkeyptum efnum, svo sem áburði og fóðurbæti. Framleiðslan er einhæf, og það um of, ef þess væri nokkur kostur að gera hana fjölbreyttari. Aukin matjurtarækt og einkum þó korn- yrkja mundi valda straumhvörfum í þessum efnum. Að vísu er hæpið að gera ráð fyrir kornrækt til manneldis, svo að um muni, en lítil vorkunn ætti oss að vera að rækta korn til fóðurbætis, til að fullnægja þörfum vor- um að mestu. Þarf ekki að eyða orðum að því, hverjar hagsbætur það væru þjóðarbúskapnum, og hversu það veitti landbúnaðinum aukið öryggi. Og þá kann ég illa skaplyndi íslenzkra bænda, ef þeim þætti ekki búmann- legra að eiga nokkra sekki af heimaræktuðum fóðurbæti í skemmu sinni, en að sækja hann allan í kaupstaðinn. En fleira en fjölbreytni í framleiðslu kemur til greina, og það eigi síður mikilvægt. Kornyrkjan er hinn bezti skóli sem getur í allri jarðrækt. Það er staðreynd, að jarðyrkja er annað og meira en vélrænt erfiði. Hún er einnig andlegt starf. Enginn verður góður jarðyrkju- maður, nema hann leggi nokkuð af sál sinni í starfið, vinni það af alúð og þekkingu og ást á moldinni og því, sem úr henni vex. Engin jarðyrkja skapar þann anda jafn vel og kornræktin. Hún krefst skilyrðislausrar kunnáttu í starfinu og fyllstu natni og nákvæmni um alla framkvæmd. Grasræktin getur heppnazt, þótt smá- syndir séu framdar í þeim efnum, en jafn víst er það, að hún gefur því betri ávöxt, sem meiri alúð er við hana lögð og á því traustari fræðilegum grundvelli sem hún er rekin, því vert er að hafa það hugfast, að öll jarð- yrkja krefst vísindalegra starfsaðferða. En kornræktin er allri jarðrækt betur fallin til að skapa hverjum og einum þann grundvöll. Það verður hverjum list, sem hann leikur, og þjálfun sú, sem kornyrkja veitir, gerir aðra jarðyrkju að list. Ekki verður því neitað, að nokkur vandhæfni er á um 220 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.