Heima er bezt - 01.07.1958, Blaðsíða 29

Heima er bezt - 01.07.1958, Blaðsíða 29
í lundinum gróðursæla uppi við fossinn verður allt henni fjarlægt í Ijósi veruleikans og vekur djúpan sárs- auka í sál munaðarlausu eldhússtúlkunnar. En hún verð- ur að leyna tilfinningum sínum trúlega og reyna að starfa á sýslumannssetrinu þann tíma, sem hún er ráðin. Þegar Ásta hefir jafnað sig að fullu eftir hin snöggu geðbrigði, gengur hún aftur fram í búrið til Elínar. Starfið heldur áfram. Þær keppast við brauðgerðina, og kvöldsólin sendir broshlýja geisla sína inn um búr- gluggann til þeirra. VII. Valur stígur út úr Iangferðabílnum og hraðar sér með ferðatöskur sínar heim að Ártúni. Hann er kominn heim. Angandi faðmur heimahaganna breiðir fegurð sína og unað móti sveininum unga, og fögnuður hans er samstilltur vorinu. Sýslumannshjónin ganga út til að fagna syni sínum, og ber fundum þeirra saman rétt fyrir utan eldhússgluggann, en hann stendur opinn, og glaðvær og þróttmikil karlmannsrödd berst skyndi- lega inn um hann til eyrna eldhússtúlkunnar, sem vinn- ur af kappi að skyldustörfum sínum. Hún þekkir þegar röddina, og blóð hennar tekur að streyma hraðara. Ósjálfrátt færir hún sig nær glugganum og lítur út. Valur faðmar móður sína frammi á hlaðinu. Ásta horf- ir á hann um stund og virðir hann fyrir sér. Nú er hann ekki klæddur einkennisbúningi, heldur ljósum sumarfötum, og bjarta hárið hans ekki falið undir valdsmannlegri húfu, heldur bylgjast það frjálst yfir hvelfdu enni hans. Valur er óneitanlega fallegur piltur. Sveinn og Elín koma líka út til að fagna Val, og gleðin ljómar í alúðlegum svip hans, þegar hann heilsar þeim. En augu hans leita stöðugt heim að hússdyrun- um. Hann vonast eftir fleirum út að heilsa sér, en sú von bregst honum algerlega. Ásta færir sig frá glugganum aftur, og sár, óljós kvíði gagntekur hana. Sýslumannshjónin fylgja syni sínum inn í húsið og ganga með honum til stofu. Síðan kemur frú Hildur fram í eldhúsið til Ástu og segir: — Valur minn er kominn heim, þú færir okkur kaffið inn í stofu. — Já, það er tilbúið. Ég skal koma með það. — Þær ganga báðar inn í stofuna. Valur rís á fætur við komu þeirra, og bjart bros blikar í augum hans. Hann gengur til Ástu og réttir henni hönd sína. — Komdu sæl, Ásta. — Sæll. Frú Hildur lítur snöggt á son sinn, og djúp undrun í svip hennar sameinast roðanum, sem leitar fram í kinnar hennar. Hvenær hefir Valur kynnst eldhússtúlk- unni? Og hvað er það í brosi og augnaráði sonarins, sem vekur hjá henni einhverjar óþægilegar kenndir? Sízt kemur frú Hildi það til hugar, að Valur hafi feng- ið Þórdísi móðursystur sína til þess að ráða þessa stúlku að Ártúni. En sýslumannsfrúnni er óvenjulega órótt, þótt henni takist að leyna því. Ásta hefir lokið við að bera fram kaffið, og hraðar sér fram úr stofunni. Sýslumannshjónin setjast að kaffidrykkju með syni sínum. Þau hafa um margt að spjalla, og smám saman gleymist eldhússtúlkan þeim algerlega. Störfum dagsins er lokið. Ásta hallar sér fram á eld- hússborðið og horfir út um gluggann. Kvöldsólin er að hníga bak við Árfellið, og gullnum bjarma hennar slær yfir tún og engi. Glaðvært samtal hljómar í kveld- kyrrðinni og berst inn um gluggann til Ástu. Valur og Sveinn ganga heim stéttina og ræðast við. Ásta heyrir Val segja: — Alltaf verð ég jafn glaður yfir því að vera kom- inn heim, hve gamall sem ég verð, Sveinn minn. — Og Sveinn svarar alúðlega: — Já, þú gleðst yfir því að koma heim, og við fögn- um þér í hvert sinn. Og nóg bíða þín verkefnin, hérna heima í Ártúni. — Valur hlær glaðlega: — Já, nóg eru verkefnin. Og á morgun færi ég mig í verkamannsfötin og nýt þess að starfa á gróandi jörð- inni og teyga angan moldarinnar. — Þú hefðir átt að vera bóndi, segir Sveinn og brosir ánægjulega. Nú er hann ekki lengur einn við vorverkin, fyrst Valur er kominn heim. Samtalið fjarlægist, og Ásta heyrir aðeins óminn af því, og loks hverfur það alveg. En eldhússhurðin opn- ast, og Valur stendur í dyrunum. — Gott kvöld, Ásta, segir hann glaðlega. — Gott kvöld. — Er kaffið orðið kalt á könnunni hjá eldhússtúlk- unni? segir hann glettnislega, og brosið blikar bjart í augum hans. — Það held ég varla, segir hún. — Viltu þá vera svo góð að gefa mér dálítinn sopa hérna við eldhússborðið hjá þér? — Já, það er velkomið, svarar Ásta. Valur sezt við borðið, og Ásta hellir upp kaffi handa honum. — Þú drekkur mér til samlætis, Ásta, segir hann. Hún lætur að vilja hans og nær í bolla handa sér. Svo drekka þau kaffið. Valur lítur til Ástu og segir: — Jæja? Hvernig líkar þér staðurinn, sem ég valdi handa þér? — Þakka þér fyrir, mér líkar hann vel. En ekki kom mér það til hugar, að þú ættir hér heima. — Valur brosir og segir: — Ekld það? Mér fannst heldur ekkert liggja á því að segja þér það, meðan þú varst á Sæeyri. Finnst þér ekki fallegt hérna, Ásta. — Jú, hér er dásamlega fallegt. — Hefir þú farið nokkuð um nágrennið hérna til að litast um? — Það er nú fremur lítið. — En nú er ég kominn heim í ríki mitt, og nú er það ég, sem ætla að sýna þér Ártún. — Ásta brosir dauflega. — Ég er nú ráðin hér eldhússtúlka, og tími minn til skemmtiferða auðvitað fremur takmarkaður. Framhald. Heima er bezt 247

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.