Heima er bezt - 01.07.1958, Qupperneq 4

Heima er bezt - 01.07.1958, Qupperneq 4
KLEMENZ KR. KRISTJÁNSSON á Sámsstöhum F^ögur er hlíðin, bleikir akrar og slegin tún.“ Svo mælti Gunnar forðum, eða Njáluhöfund- ur fyrir munn hans. En tímarnir liðu, akur- yrkja týndist með þjóð vorri. Þverá hamaðist á landi Fljótshlíðarinnar, og braut árlega fagurt land og frjósamt. En jafnframt týndu menn trúnni á, að korn mæti vaxa á íslandi. En loks, að liðinni hálfri 20. öld, má aftur líta sömu sjónina í hlíðinni fögru, og þá, er heillaði Gunnar forðum. Víðáttumiklir akrar og fögur tún skrýdd skjólbeltum af björk og víði, blasa nú við í Fljótshlíð. En sá maður, sem skapað hefir þessa nýju mynd, er Klemenz á Sámsstöðum. Klemenz Kr. Kristjánsson er fæddur 14. maí 1895, að Þverdal í Norður-ísafjarðarsýslu. Svo vill til, að ekki einungis bernskuheimili hans, heldur öll fæðingarsveit- in, Sléttuhreppur, er nú í eyði. Foreldrar hans voru: Jítdit Þorsteinsdóttir og Bárður Kristjá?i Guðmundsson. Móður sína missti Klemenz þriggja ára að aldri, og dvaldist hann á ýmsum stöðum til 8 ára aldurs, er faðir hans kvæntist öðru sinni og fluttist suður á land og hóf búskap á hinu forna höfuðbóli Bræðratungu. Ekki varð þó dvölin þar löng, því að tveimur árum síðar fluttust þau að Brekku á Álftanesi og síðan til Reykja- víkur, og dvaldist Klemenz þar næstu árin. Ekki slitn- uðu þó með öllu tengsli hans við mold og ræktun, því að hann réðist í vinnumennsku til bændahöfðingj- ans Guðmundar Þorbjarnarsonar á Stóra-Hofi og var þar í 3 ár. Var Klemenz þá tvítugur að aldri, og var nú ráðinn í að fara utan, sér til menntunar í búvísind- um, en til undirbúnings utanförinni var hann einn vetur við nám í lýðskólanum í Bergsstaðastræti. Til Danmerkur lá svo leiðin 1916. Ekki hóf Klemenz þó skólanám, heldur réðst hann fyrst til vinnu á dönsk- um búgörðum, og mun hann þá þegar hafa verið ráð- inn í að nema hagnýt ræktunarstörf, engu síður en bók- leg vísindi, enda voru léttir sjóðir við að styðjast. Vann hann nú á ýmsum stöðum og lærði vinnubrögð og korn- yrkju, og mætti þá ýmsu misjöfnu, eins og gengur og gerist. Um 9 mánaða skeið dvaldist hann við nám í bún- aðarskóla, og telur hann sig hafa haft mikið gagn af þeirri dvöl, þótt ekki væri hún lengri. Að loknu því námi réðst hann til Foreningen af Jydske Landbofor- eninger, og vann á tilraunastöð félagsins, bæði að utan- hússstörfum og við bókleg störf og úrvinnslu tilraun- anna. Einnig vann hann á tilraunastöð við mýraræktun. En haustið 1919 hvarf hann heim til fslands aftur, því að faðir hans var þá andaður, en heimilið forsjárlaust. Næstu árin dvaldist Klemenz að mestu í Reykjavík, en vann þó einkum ýmis ræktunarstörf, bæði í Gróðrar- stöðinni og víðar. En 1921 fór hann á ný til Danmerkur til frekara náms. Dvaldist hann fyrst í Visborggaard Græsmarksskole, þar sem einkum voru kenndar að- ferðir við grasrækt, bæði verklega og bóklega, og braut- skráðist hann þaðan með I. ágætiseinkunn. Ferðaðist síðan nokkuð um Danmörku, og dvaldist einn vetur, 1923-24 sem óreglulegur nemandi í Landbúnaðarhá- skólanum í Ási í Noregi og lagði þar einkum stund á grasafræði, arfgengi, efna- og eðlisfræði, tilraunatækni, svo og allar greinir jarðræktar, nema skógrækt. Féleysi hamlaði þvþ að hann fengi stundað þar nám lengur og lokið kandidatsprófi, og mun honum í bili hafa fallið allþungt að hverfa frá námi. En annars var ekki úrkosti en hverfa til íslands og taka til starfa. Enda þótt náms- ferill Klemenzar væri þannig furðu slitróttur, mun hann samt hafa hlotið flestum íslendingum betri mennt- un til undirbúnings lífsstarfi sínu, sem eins og kunn- ugt er, eru tilraunir í þágu jarðræktar. Kom þar bæði til glöggskyggni hans og næmi, og að hann hverju sinni sneið nám sitt eftir því, sem hann hugði sér bezt henta í framtíðinni, en þá þegar var honum ljóst, hvaða starf hann skyldi velja sér. Þegar heim kom, réðst hann til Búnaðarfélags íslands, og var aðstoðarmaður við Gróðrarstöð þess í Reykja- vík næstu 4 árin. Áður en þetta gerðist, hafði nokkuð verið rætt um það innan Búnaðarfélags íslands, að þörf væri á inn- lendri frærækt. Sáðsléttumar vora óðum að ryðja sér til rúms og fræ-þörfin óx óðfluga. Vann Klemenz nú um hríð að ýmsum tilraunum í Gróðrarstöðinni í Reykjavík, og jafnframt að undirbúningi þess, að sett yrði á stofn sérstök fræræktarstöð. Jafnframt þessu gerði hann gróðurathuganir á túnum suðvestanlands. Eru athuganir hans í því efni hinar merkustu, og hinar fyrstu og víðtækustu, sem enn hafa verið gerðar í því efni. Er það mein mikið, að slíkar rannsóknir skuli hafa niður fallið. f allmiklu þófi gekk um stofnun tilrauna- stöðvarinnar, og gekk svo langt, að Klemenz bauðst sjálfur til að setja hana á stofn, ef hann fengi til þess nokkurn styrk frá Búnaðarfélaginu, en því var synjað. Loks kom að því, að Búnaðarfélagið tók jörðina Mið- Sámsstaði í Fljótshlíð á leigu, til þess að setja þar upp tilraunastöð í frærækt, og var Klemenzi falin forstaða hennar, sem vænta mátti. Þetta var 1927. Með stofnun tilraunastöðvarinnar á Sámsstöðum má 222 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.