Heima er bezt - 01.07.1958, Page 17

Heima er bezt - 01.07.1958, Page 17
bæjar, áhöld, verkfæri, kistur, matvæli, rúmföt, bækur, skemmdist og ónýttist með öllu. Hálft hey, sem stóð við bæinn, þverkubbaðist sundur, sem hnífskorið væri, og í rústunum var allt í samblandaðri hrúgu, snjórinn, heyið, viðarbrotin, moldimar og grjótið. Fjósið, hlaða og öll önnur útihús stóðu ósködduð. Þennan dag tjáist að í KoIIsvík hafi verið allgott veður bæði fyrir og eftir. En hér í Flatey var austan stórviðri og kafald.“ — Þjóðólfur. Flutningar að og frá íslandi. „Til íslands gengu árið sem leið (1857) 100 kaupför, 4330 lestarrúm að stærð, og færðu þau hingað 4130 vörulestir. Þetta var 8 skipum fleira en árið 1856 og 390 vörulestum frekara en það ár var. Aftur gengu frá íslandi til Hafnar 1857 samtals 84 skip með 3588 lesta- rúm og færðu héðan 2843 lestir vöru, það var 225 lest- um minna en héðan fluttist til Hafnar 1856.“ (Því má bæta hér við, að þetta ár fluttist inn brennivín fyrir 124.582 ríkisdali, en rúgur og rúgmjöl fyrir ca. 203.000 rd.). — Þjóðólfur. Slys. „Bóndi nokkur á Þistilfirði, Jón Marteinsson á Svein- ungsvík, aldraður maður, gekk einn dag í vetur til vatnsmylnu á bæ sínum að hyggja að, hvernig hún mal- aði. Hafði hann lotið undir kvamarstokkinn til að troða í rifur á honum, svo mjöl spilltist eigi; en af því að veður var kalt, hafði hann bundið sér stórklút í strút og tókst svo óheppilega til að klúturinn hafði flækzt um járnmöndul mylnunnar og reyrzt þannig að hálsi honum, og fannst hann örendur.“ — Norðri. Spaug. ' „Einn gamansamur málaflutningsmaður sagði einu sinni frá því, hvernig hann hefði komizt í þessa stöðu sína. Þegar ég var strákur var ég ólmur að hlaupa, svo faðir minn hélt ég væri hæfastur til að vera hlaupari. Hann setti mig í skóla til að læra þessa íþrótt, og nú átti að taka úr mér miltað, svo ég yrði þolnari. En læknirinn, sem átti að gjöra það, var sá erkiklaufi, að hann tók samvizkuna í staðinn fyrir miltað. Jæja, hvað var þá til ráða? Nú var ég til einskis nýtur nema að verða málaflutningsmaður.“ — Norðri. Úr grein um verzlunarnauðina. „----íslendingar ættu því sem fyrst að koma svo ár sinni fyrir borð, að þeir þurfi ekki að leita til kaup- staðarins nema að sumrinu og haustinu og allt ráp í kaupstaði að vetrinum ætti öldungis að hætta. Þetta smáráp og smákaup í kaupstað hefur ætíð verið lands- mönnum til hins mesta skaða, því auk þess sem menn fyrir lítil erindi tefja af sér tíma, fá þeir oftast vöruna sem þeir sækja með lakara verði, svo að skaðinn er þannig tvöfaldur.“ (Hvernig lízt mönnum á þessa ráð- leggingu í dag?). — Norðri. Þegar í öfgar fer. Hinn 7. sept. 1857 byrjaði hálfsmánaðarritið „Hirðir“ að koma út undir ritstjóm þeirra Jóns Hjaltalíns land- læknis og Halldórs Kr. Friðrikssonar yfirkennara. Það fjallaði nær eingöngu um fjárkláðann, hið mikla böl bændastéttarinnar á þessum árum, og hóf skelegga bar- áttu fyrir útrýmingu hans með lækningum. í 18. tbl., sem út kom um mánaðamótin marz—apr. 1858, stendur þetta á eftir fréttum af veikinni í Húnavatnssýslu: „Aður en vér skiljum við þetta mál, ætlum vér að setja hér nokkrar smásögur, sem oss eru ritaðar að norðan, til að sýna, hversu skynsemi manna getur af- vegaleiðzt, og hversu sérvizkan og heimskan eru ríkar í héraði, þar sem þær ná fótfestu. Einn bóndi af þrem- ur frá Eiríksstöðum í Svartárdal fór vestur að Stóradal; en þá hann kom aftur heim, flettu hinir bændurnir hann fötum úti á hlaði og létu hlandþvo þau; en meðan hann gaf fé sínu drápu þeir tík hans, er með honum hafði farið vestur yfir ána, allt af ótta fyrir kláðamaurn- um, og þó er hann ekki enn kominn í Svínavatnshrepp. — Kerling ein kom vestur yfir Blöndu, að Æsustöðum í Langadal; hún var leidd inn undir loft og afskrýdd þar, lepparnir þvældir og henni kembt; hafði hún bor- izt illa af með það; því hún hafði ekki verið vön því, og hár hennar allflókið; síðan var henni sleppt í hálf- votum leppunum, að sögn hálfkjökrandi. — Guðmund- ur hreppstjóri á Guðlaugsstöðum vestan Blöndu vildi gefa fátæklingi austan árinnar soðið slátur úr nokkrum kindum, en hann mátti ei flytja það yfir ána. Klemenz í Bólstaðarhlíð var bannað að fara til smíða vestur yfir Blöndu. Hér lýtur margt að því að menn séu orðnir vitlausir í þessu kláðamáli.“ Til eru skoplegar hliðar, jafnvel á ömurlegustu at- burðum. — Hirðir. Slys. „Skömmu fyrir næstliðin jól fóru tvær mæðgur vest- ur í Bolungarvík þar á annan bæ, er að Skálavík heitir, og er háls á milli, en á heimleiðinni datt kafaldsbylur á á hálsinum, svo þær gátu ekki hitt bæinn, urðu því úti og fundust skammt þar frá, báðar örendar.“ — Þjóðólfur. (Ég hef fylgt þeirri reglu, að segja sem allra minnst öðruvísi en með beinum orðum blaðanna sjálfra.) Jóhami Bjarnason. Heima er bezt 235

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.