Heima er bezt - 01.09.1958, Blaðsíða 35

Heima er bezt - 01.09.1958, Blaðsíða 35
243. Síðan fleygir Nikulás dýnuræfli og hrafli af rúmfötum niður til mín. Ég af- klæði mig, hengi fötin til þerris og leggst útaf. í bítið morguninn eftir sé ég út um kjallaragluggann, að „vinir“ Nikulásar halda af stað frá eynni. 244. Skömmu síðar er gólfhlerinn opn- aður, og Nikulás kemur ofan til mín. „I dag áttu að fara með mér á bátnum út í skerjagarðinn," segir hann rámur og hastur. „Við förum á veiðar og tínum egg, og þú verður að hjápa til við það.“ 245. Nú fékk ég brauðsneið og bolla af kaffi hjá karli, og svo var haldið af stað í seglbát Nikulásar. Við erum fáorðir á leiðinni. Mér er hálfilla við að sjá Niku- lás alltaf öðru hvoru súpa duglega á vasapela sínum. 246. Um hádegisbil leggur Nikulás upp að snarbratri klettaeyju. Hann skjögrar eftir klungrinu með byssu í hendi. Allt í einu fljúga upp nokkrar endur og fara framhjá okkur. 247. Nikulás bregður byssunni og hleyp- ir af, og tveir—þrír fuglar steypast niður milli klettanna. Nikulás er heldur en ekki hreykinn, hleypur af stað til að ná í veiðina, en verður illa fótaskortur. 248. Hann missir jafnvægið, steypist fram af klettabrúninni og hrapar niður hamarinn, en þar fyrir neðan er stór- grýtisurð í fjörunni. Ég þýt af stað til að reyna að koma honum til hjálpar. 249. En ég verð of seinn á mér. Niku- lás hrapar. í dauðans angist þrífur hann dauðahaldi í nokkrar feysknar trjárætur í klettaskoru og hangir þar dálitla stund — dauðhræddur og skjálfandi. 250. Skyndilega heyri ég brest og sé, að trjáræturnar hafa brotnað, og Nikulás hverfur ofan fyrir bunguna. Ég flýti mér dauðhræddur fram á brúnina og gægist fram af henni niður í gljúfrin. 251. Skyldi Nikulás hafa steypzt ofan í urðina? Nei, þarna er dálítill stallur í hamrinum. Ég sé, að Nikulás hefur lent á honum og heldur sér þar dauðahaldi. Skyldi ég nú geta bjargað honum?

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.