Heima er bezt - 01.12.1958, Blaðsíða 22

Heima er bezt - 01.12.1958, Blaðsíða 22
Skógar i Þorskafirði. oft á þeim, og varð þeim það efni í marga glaða hlátra og skemmtilegar sögur. Ekki skorti heldur uppátæki og ævintýri í þessum gáfaða systkinahópi í Skógum, en börnin urðu 14 alls, þótt aðeins níu næðu fullorðinsaldri. Urðu slík afrek að mörgum og skemmtilegum sögum í frásögn mömmu þeirra, svo sem þegar Matti stökk fram af baðstofu- burstinni af eintómum metnaði og ætlaði svo að tætast sundur af sársauka, sem mamma hans ein gat sefað. En nú sjáum við í anda inni í ljórna minninganna, hvar unga konan í Skógum leiðir litla uppáhaldssoninn út í túnjaðarinn. Hann heldur á ofurlitlum fataböggli í hönd og í treyjuvasanum er kandísmoli, sem mamma iét þar um leið og þau gengu út úr bæjardyrunum. Hann er að fara að heiman í fyrsta sinn 11 ára gamall til smalamennsku í Hlíð. Stór, heit og höfug tár glitra í augum hans, en hún reynir að harka af sér, en er þó mjög þungt fyrir hjarta. Svona varð hún að fylgja þeim fyrstu sporin að heiman einu eftir annað. Þau urðu að vinna hjá öðrum löngu fyrr en kraftar leyfðu í mis- jöfnum vistum vinaraugum fjær. Hún signir drenginn sinn, hughreystir hann og legg- ur honum lífsreglur um trúmennsku, dug og hlýðni, fullvissar hann um, að góðir englar muni vaka yfir hon- um í hjásetunni, kveður hann heiturn kossi. Hann labb- ar stuttstígur og lítill út móana og hrasar öðru hvoru blindaður af tárum. Hún flýtir sér heim á hlaðið án þess að líta til baka og lokar sig stundarkorn frammi í búri. Margt fallegt sá hann af gnípum og geigvænni brún í smalamennsku sumarsins, og nú urðu Vaðalfjöll að verndarvættum litla bæjarins heima, þangað sem hann horfði með þrá fyrst á hverjum morgni, síðast á hverju kvöldi. Einu sinni hélt hann samt, að þar byggju tröll og útilegumenn, en nú urðu þau heilög kirkja í augum hans, þegar hann horfði á þau gegnum tárdöggvar heitrar heimþrár. En um haustið var hann magur og röddin brostin af gráti og sársauka. Framh. á bls. 438. Illlllllllllllllll 6. Árna-bókin k undanfömum ámm höf- um við gefið út fimm bækur í þessum flokki: Falinn fjársjóður, Týnda flugvélin, Flugferðin til Englands, U ndraflugvélin, Leitarflugið. Hver bók er sjálfstæð saga, en persónur og að nokkm leyti atburðaráðin tengja þær þó saman. FRÆKILEGT SJÚKRAFLUG Eftir Ármann Kr. Einarsson Árna-bækurnar hafa notið slíkra vinsælda allt frá því að fyrsta bókin í þeim flokki kom út, að einstætt má teljast. Þessi nvja Árna-bók skiptist í eftirfarandi kafla: Frostrósir á glugga óþekkt hleypur í jeppann Jólin í Hraunkoti Seglsleðinn Snjóavetur Teflt á tvær hættur Frækilegt sjúkraflug Góðar fréttir Vor eftir langan vetur BÓKAFORLAG ODDS BJÖRNSSONAR

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.