Heima er bezt - 01.12.1958, Page 36

Heima er bezt - 01.12.1958, Page 36
Kvæðin eru vel gerð að gömlum sið, enda er höfundur enginn nýjabrumsmaður. Hann er alvörumaður, enda er í flestum kvæð- nnum nokkur undirtónn trega og saknaðar. Hvergi bregður fyrir léttúð né gázka. Myndir eru dregnar af dagsins önn og umhverfi. Höfundur er aldrei langorður um of en kann að stilla orðum sín- um í hóf og skapa heilsteypt kvæði. Hins vegar má segja, að ekki sé kveðið á margbrotna strengi. Höfundur hefur yrkt lítinn reit en yrkt hann vel, þar er ekkert illgresi né vanhirða, og þá er vel af stað farið. St. Std. Minningar á hlaðinu í Skógum Framhald af bls. 424. --------------------------- Þær verða margar sögurnar frá bernsku og æskudög- um skáldsins, sem gamla fólkið heima sagði mér. En hver saga fær sitt líf þarna á bæjarhólnum í Skógum meðan sumarhúmið færist yfir fjöllin, dalinn og fjörð- inn. Það væri freistandi að skrifa um þetta langa bók og það gerir einhver síðar, sem hefur bæði tíma og gáf- ur til. Þar má ekki gleymast að segja frá, þegar Matti litli flæddi á skerinu á Kleifastöðum, en húsbóndinn kom á síðustu stundu, þegar skerið var komið í kaf, en lítill kroppur stóð einn upp úr sjónum. Ekki heldur sagan um Fríðu, sem gaf honum fyrstu hugmyndir um ástina. Þar verður líka sagt frá, þegar hann dvaldi á Stað og fögur augu Ingveldar prestsdóttur fjötruðu hann ævi- langt í viðjum vona og drauma. Sagt frá hvernig hún beið og beið árum saman, frétti um frama hans í skól- um og hjá heldra fólki höfuðstaðarins, frétti um gift- ingu hans og Elínar — og nokkru síðar lát þessarar ungu Reykjavíkurstúlku. Og svo þegar hann kom aftur heim að Stað, heim til hennar og hún sagði nei — en þá sann- aðist sem oftar, að nei er meyjar já. Og svo þegar hún steig á bak fannahvítum hesti vð hlið hans og þau lögðu af stað upp tröðina. upp undir fjallið þar sem fossinn syngur enn um örlög þeirra. En allt í einu var hann horfinn — horfinn af hestinum við hlið hennar. Hann hafði gleymt í gleði og birtu vonanna og ástar- innar að kveðja gamla konu, sem leyndist ein í laut. Þau fundust þar úti á túni á Stað, en hún hafði verið mjög döpur í bragði á þessari gleðistundu hans, þótt hún reyndi að dyljast. Hafði þeim foreldrum skáldsins orðið þungir og erfiðir draumar þær nætur, enda var þessi fögnuður ekki annað en undirbúningur sárasta æviharms prestsins unga og forspilið að Ijóðinu ódauð- lega, sem hann nefnir Sorg. En þá tæpu ári síðar var brúðurin fagra frá Stað, sem þótti ein fegursta konan við Breiðafjörð, liðin brott af þessari veröld. Þarna varð hinzta kveðja mæðginanna frá Skógum. Þau sáust aldrei framar. En í flestum ljóðum hans og sálmum lifir trú hennar, von hennar og ást. Og í síð- ustu geislum sólarlagsins gegnum tár kvöldsins yfir Skógum brosa þau við gestunum á hólnum. Árelius Níelsson. II I I I I I I I „Bókin, sem allir ættu að lesa er Leiðin til þroskans." „Þessi bók hefur að geyma mikla lífs- speki.“ ólafur Tryggvason á Hamraborgum. Dagur 24. sept. 1958. Bókin er 217 bls. Verð kr. 140.00. LEIÐIN TIL ÞROSKANS Eftir Guðrúnu Sigurðardóttur Bók þessi er næsta nýstárleg í íslenzkum bókmenntum. Hún er til komin á þann hátt, að höfundurinn, Guðrún Sigurðar- dóttir frá Torfufelli, hefir lesið hana fyrir á meðan hún var í miðilssvefni — trance. En orðin af vörum hennar voru tekin á segulband jafn óðum og hún mælti þau fram. „Ekki er það nokkurt vafamál, að höfund- urinn sér og heyrir það sem hún segir frá. . . Margur gæti haft gagn af að lesa þessa bók. . . “ Snæbjörn Jónsson, Vísir 17. okt. 1958. BÓKAFORLAG ODDS BJÖRNSSONAR

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.