Heima er bezt - 01.01.1959, Page 16

Heima er bezt - 01.01.1959, Page 16
Ur lnélum Hannesar á NúpsstaS Síðan ég vann að Söguþáttum landpóstanna fyrir all- mörgum árum, hef ég öðruhvoru átt bréfaskipti við hinn landskunna póst og ferðamann Hannes á Núpsstað. Meðan „Heima er bezt“ kom út fyrir sunnan, birti ég smákafla úr bréfum þessum. Hér fara á eftir tveir kaflar úr einu síðasta bréfi Hannesar, og segja þeir sínar sögur sjálfir. En í sam- hengi við þá segir Hannes á þessa leiðt „Eg hef oft orðið þess var á lífsleið minni, að það er for- sjón Guðs, sem ræður, enda hefur hann títt haldið yfir mér hlífiskildi, er allar bjargir virtust bannaðar, og hefur rétt mér hönd sína á úrslitastundum, er tæpt fótmál hefur virzt á milli lífs og'dauða.“ — Þannig hefur það eflaust verið í þau tvö skipti, er nú skal greina, og hefur sennilega ekki mátt tæpara standa. — „En Guð hefur ávallt hjálpað," segir Hann- es að lokum. — Helgi Valtýsson. Á HELJARSLÓÐUM í LÓMAGNÚPI r L A r i ð 1898 var ég eitt sinn að ná sauð úr svonefnd- /\ um Morskoru-fláum, sem eru austan í Lóma- / gnúp, ofanvert við mitt bergið. Ætlunin var að koma sauðnum þangað, er svo hagaði til, að takast mætti að höndla hann. En hann hugðist sjálf- ur ráða ferðum sínum eftir eigin geðþótta. Enda hafði hann verið þarna í tvo vetur, og var nú komið fram á þann þriðja. Þetta var stór sauður og styggur, fimm vetra gamall og í tveimur reyfum. Sauðurinn stökk inn í botnrák eina, en svo hagaði þar til, að þegar kom svo sem rúman faðm inn í rákina, virtist þar vera slétt berg eða klöpp um hálfan feðm- ing á breidd, og sá þar niður yfir allt bergið ofan í skriður, og ill-geng rákin sitt hvorum megin við klöpp- ina. Var því engin Ieið að hlaupa þama yfir. Ekki var heldur hægt að fóta sig á klöppinni án þess að styðja sig við bergið fyrir ofan. En er kom lítið eitt inn fyrir fláa þennan, var þar mosabrekku-flái allvíður, sennilega um 20 metra inn í rákarbotn. Hér var ókleift að komast inn í rákina. En með því að festa snæri um steinsnös rétt uppi yfir og Iáta það hanga niður á klöppina, gat ég notað það sem handvað yfir hana. Þó var mér ljóst, að varasamt myndi að treysta algerlega á snærið. Allt gekk þetta samt vel yfir klöppina. En í sömu svifum kemur sauðurinn á rokna spretti og stefnir beint á mig. Þarna gefst ekkert undanfæri. Ég gat hvorki vikið mér neitt undan, né sauðurinn komizt fram hjá mér. Var þá ekki annað sýnna, en að ég hlyti að hrapa ofan fyrir a. m. k. um 200 metra hæð, því að ekki myndi nokkur leið að standast áhlaup sauðarins, þar sem naum- ast var gengt lausum manni. í ofboði þreif ég upp f bergið, sem víða var mjög laust, og varð fyrir hendi mér laus steinn, sem ég naumast gat einhent, og nú þeytti ég honum af þeirri orku, sem ég hafði aðstöðu til, og hitti hann á millum horna sauðarins, en hann var stórhyrndur haustgeldingur. Gerði steinninn það að verkum, að sauðurinn hentist ofan í mosa-fláann, og mátti nær engu muna, að hann færi ekki fram af og ofan fyrir, og blóðboginn stóð fram úr nösum hans. Ég fór svo fyrir sauðinn og rak hann úr fláanum og vonaði, að nú myndi allt ganga vel. Ég tók í snærið til að handstyrkja mig á ný yfir klöppina, en er ég er kominn nær miðja leið, finn ég að steinsnösin, sem snærinu var brugðið um, gefur eftir, og er viðbúið, að hún hrapi ofan á mig. Ég sleppi snærinu, og steinsnösin hangir, þótt hún hallaðist töluvert. En hvernig á ég nú að komast yfir um? Það eru aðeins tærnar, hnén og fingurgómarnir, sem ég hangi á við klöppina, og þó finn ég enga festu fyrir neitt' af þessu. Éini vegurinn var að reyna að mjakast áfram með hægð. — Það tæki fljótt af, gæfi eitthvað eftir. — Með Guðs hjálp fikaði ég mig áfram, þumlung eftir þumlung. Og yfir komst ég — og var það ekki mér að þakka. Sauðinn vildi ég ekki skilja eftir lifandi, svona illa leikinn eftir mig. En það fór þó svo slysalega, að hann hrapaði ofan fyrir. Var það honum þó sársaukalaust, því að hann kom hvergi við fyrr en neðan við alla kletta. Þar kom hann niður á sléttan stein og varð að klessu. II. Á þorra rétt eftir aldamótin síðustu var ég að leita að kindum, er vantaði eftir snjóbyl, sem snögglega brast á. Undanfarið hafði verið gott veður, og fé því lítið haldið við hús í þá daga, og því síður gefið hey, þegar vel viðraði. Leið mín lá upp klettabelti hér inn með Lómagnúp að vestanverðu, og þurfti að fara um bratta hvamm- kvos, sem skeflt hafði fulla í bylnum. Þegar ég var kominn spölkorn út í skaflinn, fann ég að gömul fönn var undir nýja skaflinum, og ætlaði ég því að snúa við og reyna fyrir mér á öðrum stað, því að skaflar vilja títt losna (hlaupa), þegar rás myndast þvert vfir þá. í sömu andránni fer skaflinn af stað og tekur mig auðvitað með sér, en sökum þess að ég var utarlega í skaflinum, lenti ég þar í þröngri klettaskoru. Var hún svo þröng, að ég hefði naumast komizt niður úr henni sjálfviljugur nema með því að renna mér á hliðinni. (Framhald á bls. 14). 12 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.