Heima er bezt - 01.01.1959, Blaðsíða 23

Heima er bezt - 01.01.1959, Blaðsíða 23
von á því á hverju augnabliki, að tröllaukinn skuggi kæmi í ljós rétt fyrir framan mig, og satt að segja var ég engan veginn viss um hvernig ég mundi bregða við, þegar ég stæði augliti til auglitis við risa frumskóg- anna. I dögun héldum við aftur heim fremur rislágir. Um miðaftansleytið kom vörubíll allt í einu heim að hús- inu. Þar var þá Schmourlo ekrueigandi kominn ásamt nokkrum af nágrönnum sínum og góðum birgðum af drykkjarföngum, og var þá brátt sezt að sumbli. „Það er engin ástæða fyrir ykkur til að missa kjarkinn strax,“ sagði Valon, franskur uppgjafaliðsforingi. „Þið hafið ekki verið hér nema í tvo daga, og hafið þó þegar séð í rassinn á fíl, og það er meira en flestir hér geta hælt sér af, því að í sannleika sagt eru flestar sögur héðan úr Afríku um fíla og önnur dýr meira eða minna ýktar. Hér er naumast nokkur maður, sem komizt hefir í kast við fíla. Ég hefi nú búið hér í 20 ár. Fílar hafa oft gert vart við sig í nágrenni mínu og jafnvel brotizt inn á mínar eigin ekrur, en sjálfur hefi ég aldrei öll þessi ár séð svo mikið sem eyrnasnepil af fíl.“ Margt var rætt um fílaveiðar. Jafnvel þótt menn hafi hina þungu nýtízku riffla, er bezta færið til að skjóta fíl 5—6 metrar, og það verður að hitta nákvæmlega á réttan blett. Tuttugu inetrar er hámarksfæri, og ef maður hittir ekki rétta staðinn í fyrsta skoti, er vonin um undankomu ekki mikil. Ég sagði þeim sögu, er franskur Elsassbúi hafði sagt mér, en hún var á þá leið, að einu sinni hefði hann fundið dauðadrukkinn svertingja liggjandi á þjóð- veginum við landamæri Líberíu. Þegar komið var á sömu slóðir næsta morgun, var ekkert eftir af svert- ingjanum nema skinin beinin. Manja-maurarnir höfðu bókstaflega étið hann upp til agna. Valon kunni samt frá flestu að segja. En margar voru sögur hans harðla ótrúlegar eins og t. d. þessi: „Fíla- veiðari nokkur festi hengirekkju sína upp á milli tveggja trjáa að kveldi dags eftir að dimmt var orðið. Síðan lagð- ist hann til svefns og uggði ekki að sér. En honum brá heldur í brún, er hann vaknaði næsta morgun í alger- lega ókunnu umhverfi, þar sem hann hafði aldrei stigið fæti. En meiri var þó undrun hans, er hann sá hvernig í öllu lá. Trén, sem hann hugði vera í náttmyrkrinu, voru tveir fílsranar, en um nóttina höfðu fílarnir haldið áfram leiðar sinnar og borið rekkjuna milli sín alla leið- ina.“ Ein saga hans held ég þó, að hafi verið sönn. Hún var á þá leið, að svertingi nokkur hefði eitt sinn skotið fíl, að því er hann hélt til bana. Hann skar framan af rana hans og bar ranastúfinn heim í þorpið til að sanna sögu sína. En þegar komið var á vettvang næsta dag, til að sækja skrokkinn af fílnum, var hann allur á bak og burt, cn hafði látið eftir sig greinileg verksummerki þess, að hann hefði farið af sjálfsdáðum. Það er staðreynd, sem gerzt hefir í dýragörðum að minnsta kosti tvisvar síðustu 80 árin, að fílar hafa lifað það af, þótt rana- broddurinn væri skorinn eða rifinn af þeim. Morguninn eftir gleðskapinn fórum við seinna á fætur en venjulega. Að þessu sinni lá leið okkar niður að ánni, en þar var okkur sagt, að á tilteknum stað væri eini báturinn á margra mílna svæði. Svertingi einn, sem ekki skildi orð í Evrópumáli, fylgdi okkur. Við vorum um þrjár stundir að komast á áfangastaðinn við ána, enda þótt svertingjarnir hefðu sagt að það væri ein- ungis hálftíma ferð. Það var augljóst, að fílarnir höfðu notað troðninginn sem við fórum meira en svertingj- arnir. Sums staðar í mjúkum leir voru spor eftir svo tröllslegar fílsfætur, að þar hlaut Tiemoko sjálfur að hafa verið á ferðinni. Þegar við komum til árinnar, var engan bát að sjá, en á hinum bakkanum var bananaekra og tveir svertingja- kofar. Við kölluðum af öllum kröftum, og var svarað með köllum að handan. Síðan hófst langt samtal milli svertingjans okkar og nokkurra kvenna á hinum bakk- anum. En niðurstaðan af því varð sú, að enginn bátur væri fáanlegur. Karlmennirnir væru að heiman, og kon- urnar hræddar við okkur. Sporin, sem þegar var getið, vöktu grun minn um, að ef til vill væri Tiemoko ekki langt undan, hinum megin árinnar. Og það hvarflaði aldrei að mér að láta af fyrirætlun minni. Þótt allir væru slegnir ótta við fíl- tröllið, skyldi ég samt verða mér úti um traust sönn- unargögn fyrir tilveru hans, og þar var mynd vitanlega eina óræka vitnið. Við ákváðum því að fara yf>r ána, þótt enginn væri báturinn, afklæddum okkur i snatri, bundum síðan myndavélina á höfuð svertingjanum, og með sólhjálmana eina klæða syntum við síðan yfir ána. Þegar yfir um kom, héldum við til húsanna, og nú hófst skringilegt samtal við kvenfólkið á alls konar Heirna er bezt 19

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.