Heima er bezt - 01.01.1959, Side 31

Heima er bezt - 01.01.1959, Side 31
húsið. Henni hefir tekizt að ná fullkomnu valdi yfir tilfinningum sínum og látbragði, en hún er enn hálf óstyrk eftir yfirliðið og öll hin miskunnarlausu atvik dagsins. Hún lítur á ldukkuna, og henni bregður óþægi- lega, er hún sér hve áliðið er orðið tímans. Eftir nokkr- ar mínútur, á miðdegiskaffið að vera komið á borðið, og enn er hún ekki byrjuð á því. Hvað skyldi frú Hildur segja um slík vinnubrögð. Ásta brosir sársaukafullu, köldu brosi og tekur óðara til starfa. Vanlíðan hennar víkur brátt með öllu fyrir skyldurækninni, sem ávalt er ríkasti þátturinn í hverju starfi eldhússtúlkunnar, og á skammri stundu er allt komið í sitt vana horf. XVI. Kvöldsólin ritar gullinrúnir sínar á heiðbláan him- ininn og græna, angandi jörðina. Sumardýrðin er voldug og heillandi. Stór, gljáandi Reykjavíkurbifreið rennur í hlaðið á Ártúni og nemur þar staðar. Hafsteinn kaup- maður og fjölskylda hans stíga út úr bifreiðinni og ganga heim að húsinu. Sýslumannshjónin og Valur koma út á hlaðið til móts við gestina og fagna þeim innilega. En í hæfilegri fjar- lægð innan við eldhúsgluggann stendur Ásta og horfir með djúpri athygli á það, sem gerist frammi á hlað- inu. Enginn má sjá hana, en þó eru augu hennar frjáls og í fullum rétti. Dýpsta athygli eldhússtúlkunnar beinist fyrst og fremst að sýslumannssyninum og því sem honum við- kemur, en þetta er henni alveg ósjálfrátt. Hún sér unga og fallega kaupmannsdótturina ganga til Vals og rétta honum hönd sína. Handaband þeirra er langt og innilegt, og bros ljómar á andlitum beggja, og varirnar bærast í brosinu, en Ásta greinir ekki ekki orðin, sem þær bera fram, enda eru þau henni vissulega alveg óvið- komandi. Hún beinir nú athygli sinni að hinu fólkinu. Næst sér hún stóra og föngulega frú faðma sýslumanns- frúna með mikilli blíðu, og vináttan er auðsæ á báðar hliðar. En Ástu stendur á sama um kærleika þeirra og lítur brátt af þeim aftur og sér þá ungan mann, sem gengur til Vals og heilsar honum innilega, og þeir eru auðsjáanlega miklir vinir. Að síðustu sér hún Þórð sýslumann og Hafstein kaupmann heilsast með látlausu, en virðulegu handabandi, og svo ganga þeir fyrstir inn í húsið. Ásta hefir séð nóg af þessum samfundum í bili, og snýr frá glugganum. Nú bíða hennar nýjar eldraunir, og sú næsta er að bera fram kvöldverðinn handa gest- unum. í fyrsta skiptið síðan hún kom á sýslumanns- setrið kvíðir hún fyrir því starfi, en hjá því verður ekki komist. Hún á heldur engan vin, sem hún getur flúið til með áhyggjur sínar og vandræði. — Frú Hildur kemur brátt fram í eldhúsið, og gleðin Ijómar í svip hennar. Hún snýr sér að Ástu og segir hlýlega: — Er kvöldverðurinn tilbúinn, Ásta mín? — Já, hann er tilbúinn. — Þá skaltu bera hann inn í aðalstofuna. Þú sækir svo blóm út í garðinn og setur þau á borðið, og lætur mig svo vita, þegar öllu er lokið. Eg sit hjá gestunum inni í dagstofunni. — Ég skal gera það. Frú Hildur hefir sagt nægilega fyrir að sinni, og hraðar sér út úr eldhúsinu aftur, því að gestirnir bíða hennar. Ásta dúkar borðið í aðalstofunni og ber kvöld- verðinn þangað. Hún er ekki í neinum vanda með að leysa það verk af hendi eftir ítrustu kröfum nútímans, því að hún lærði bæði matargerð og framreiðslu á full- komnasta hátt, meðan hún vann í kaupmannshúsinu á Sæeyri. Og þar lærði hún einnig að umgangast hið svo- kallaða heldra fólk. En það var henni aldrei ljúft. Tókst henni þó óaðfinnanlega að læra þær listir, og nú var hún þakklát fyrir það. Nýr metnaður vaknar hjá Ástu og gefur henni auk- inn kjark. í kvöld skal hún sýna frú Hildi, að hún er starfi sínu vaxin, og hikar hvergi. Ómur af fjörugum samræðum og bergmál glaðra hlátra berast niður í eldhús til Ástu og hljómar létt í kyrrðinni. Gestirnir sitja í dagstofunni og ræða við sýslumannshjónin og Val. Ásta keppist við störfin, og enginn ónáðar hana, og því er hún fegin. Hún hefir lokið við að bera kvöldverðinn á borð og hraðar sér þvínæst út í blómagarðinn, til að uppfylla síðustu fyrir- skipanir húsmóður sinnar. Þar velur hún fullþroskuð, angandi blóm og ilmrík, sefgræn reyniviðarblöð og býr úr þeim stóran vönd. Sætljúf blóma- og viðarangan blandast hreinum kvöldblænum, sem fyllir vit hennar. Ásta er sem ölvuð af dásemdum náttúrunnar og gleymir sér um hríð. Djúpur unaður fyllir sál hennar. En svo man hún skyndilega, í hvaða erindum hún er hér í blómagarðinum, og að henni er ekki ætlaður blóma- ilmurinn, heldur gestunum inni í stofunni. Hún hraðar sér því inn og kemur blómunum smekklega fyrir á kvöldverðarborðinu, og að því loknu gengur hún að dagstofudyrunum og kallar á frú Hildi. Sýslumannsfrúin fylgist með Ástu inn í borðstofuna -og lítur með strangri athygli yfir matborðið, en hún er fullkomlega ánægð með útlit þess, og gleðin Ijómar í svip hennar. Engin fyrrverandi eldhússtúlka hennar hefir búið gestum hennar jafn smekklegt veizluborð sem Ásta, og frú Hildur er því mjög hamingjusöm í kvöld. Hún snýr sér að Ástu og segir: — Þér hefir tekizt þetta með ágætum, og nú kalla ég á gestina til kvöldverðar. Sýslumannsfjölskyldan og gestir hennar ganga að vistlegu matborðinu og setjast að snæðingi. Frú Hildur réttir fram hvern ilmandi veizluréttinn af öðrum og býður gestum sínum með stoltum, en þögulum metn- aði yfir ágæti þeirra, en í huganum dáist hún jafnframt að mikilli fjölhæfni eldhússtúlkunnar sinnar í matar- gerð og frábærri smekkvísi hennar í framreiðslu og skreytingu á veizluborði. En það er ekki frú Hildur ein, sem þannig hugsar í kvöld. Sýslumannssonurinn hefir einnig næmt auga fyrir því, hve vel Ástu hefir tekizt í starfi sínu, og vekur það hjá honum djúpan fögnuð og sælan metnað; Heima er bezt 27

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.