Heima er bezt - 01.01.1959, Page 43

Heima er bezt - 01.01.1959, Page 43
279. Nei, þetta var alveg ófært! Hvað sem það kostar verð ég að sporna við því, að mennirnir neyði húsbónda minn til að drekka með sér brennivínið. Ég þýt til og þríf glasið, er annar réttir að Nikulási, og skvetti úr því á gólfið. 280. Maðurinn glápir á mig stundar- korn steinhissa og verður síðan bálreið- ur. Hann þrífur þrælslega aftan í treyju- kraga minn, dregur mig fram að dyrum, hrindir mér út fyrir og skellir svo aftur hurðinni. 281. Úti er ennþá hvassara en áður og hellirigning. Hvað á ég nú til bragðs að taka? Ég hleyp ofan að sjónum í þeirri von, að Ólafur fiskimaður sé ef til vill ekki farinn ennþá. En það var um seinan. 282. Þegar ég kem ofan eftir sé ég það, að ég kem of seint. Langt undan landi sé ég vélbátinn á fullri ferð burt frá eynni. Ég reyni að kalla, en það er allt of langt. Ég reyni að veifa til Ólafs með tusku... 283. Ég sé, að hann veifar á móti. En hann heldur víst, að ég sé að veifa í kveðjuskyni og heldur áfram. Ég ríf þá tuskuna í tvennt og festi hvorn hluta á sprekbút og fer svo að senda merki: Hjálp, hjálp, hjálp! 284. En hvað ég er heppinn að hafa verið KFUM-skáti og lært að senda merkjamál! En skyldi nú Ólafur skilja merkin? Jú, ekki ber á öðru. Hann snýr bátnum í skyndi, stendur upp og veifar svo til mín. 285. Eftir stutta stund er báturinn kominn að bryggju og Ólafur stekkur á land. Ég segi honum í flýti, hvernig komið sé og bið hann blessaðan að hjálpa mér að bjarga Nikulási. 28. Ólafur er sjálfur mesti reglumaður, og honum þykir bara vænt um að geta nú hlaupið undir bagga með mér. Við hlaupum í spretti upp að húsinu, og Ólafur gægist þar inn um gluggann. 287. Það fýkur heldur en ekki í hann við það, sem hann sér, og hann kreppir hnefana. Annar þorparinn hefur tekið um herðarnar á Nikulási og reynir að neyða brennivíninu ofan í hann.

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.