Heima er bezt - 01.07.1960, Síða 29

Heima er bezt - 01.07.1960, Síða 29
ISLENZKT GÖLFTEPPIFRÁ „VEFARANUM" IVERÐLAUN . TAKIÐ ÞÁTTI GETRAUNINNI í síðasta blaði birtist fyrsti þátturinn í nýrri verð- launagetraun*fyrir áskrifendur „Heima er bezt“, og eins og ykkur er nú kunnugt, þá eru verðlaunin 4. ekki af verra taginu, tólf fermetra, glæsilegt gólf- teppi frá hinu viðurkennda fyrirtæki „Vefaranum“ h.f., Kljásteini, Mosfellssv., að verðmæti kr. 4800.00. Nú er því um að gera að vera með frá byrjun og láta ekki happ úr hendi sleppa. Eins og skýrt var frá í júní-blaðinu, er getraunin í því fólgin að þekkja myndir af nokkrum kunnum þjóðskörungum, sem allir góðir íslendingar ættu að kunna nokkur deili á. í hinni fróðlegu og skemmti- legu bók Jónasar Jónssonar frá Hriflu, „Aldamóta- menn“, eru sögð æviágrip allra þessara manna. í síðasta hefti birtum við myndir af tveimur merk- u,m „Aldamótamönnum“, og hér sjáið þið aðra tvo í viðbót. Hverjir eru þeir? Skúli Thoroddsen Trvggvi Gunnarsson Elín Briem Magnús Stephensen Hannes Hafstein Þorsteinn Erlingsson Stefán Stefánsson, skólameistari Arnljótur Olafsson Þorbjörg Sveinsdóttir Benedikt Sveinsson Björn Jónsson Valtýr Guðmundsson Getraunin verður í þremur tölublöðum, myndir af tveimur „Aldamótamönnum" (eða konum) í hverju blaði. — Þegar þið eruð viss um að þekkja alla sex mennina, sem myndir verða birtar af, þá sendið þið svörin í lokuðu umslagi, merkt „Aldamótamenn“, til „Heima er bezt“, pósthólf 45, Akureyri. Munið að það er til mikils að vinna. Gólfteppi frá „Vefaranum“ h.f. er unnið úr íslenzkri ull af ís- lenzkum kunnáttumönnum og glæsileg prýði á hverju íslenzku heimili. Hver veit nemá einmitt þú, lesandi góður, verðir hinn lánsami sigurvegari í getrauninni. Heima er bezt 245

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.