Heima er bezt - 01.11.1960, Page 11
rannsóknum á þessum slóðum, eða síðan 1931. Kona
hans, María, hefur tekið þátt í leiðangrum hans um
óbyggðir Kenya og Tanganyika, og hin síðari árin er
einnig ungur sonur þeirra með í ferðalögunum. Upp á
síðkastið hafa rannsóknir hans einkum beinzt að hliðar-
dal við sigdalinn mikla, þar sem heitir Olduvai-gljúf-
ur, en þar er ótrúleg gnótt steinrunninna leifa af dýr-
um, sem uppi voru á Jökultíma. Leifar þessar eru í um
100 metra þykkum leirsteinslögum, sem orðið hafa til
í vatni á sínum tíma.
Enginn skyldi halda, að rannsóknir á þessum svæð-
um séu nokkur gamanleikur. Svo er þurrt þarna utan
regntímans, að leiðangursfólkið hefur þurft að flytja
neyzluvatn sitt um 35 mílna leið. Mikil mergð villtra
dýra er þarna, og heimsóttu þau leiðangurinn oftsinnis.
í þeim hópi voru meðal annarra, Ijón, hýenur og nas-
hyrningar. ÖIl virtust dýrin vera að leita vatns, og var
engu líkara en þau fyndu þefinn af vatnsbirgðum leið-
angursmanna. Svo voru þau nærgöngul, að einu sinni
t. d. vissi matsveinninn ekki fyrri til en að hlébarði
næstum því rak í hann trýnið, þar sem hann sat við
hlóðin að eldamennsku, úti fyrir tjaldskörinni.
Heima er bezt 419