Heima er bezt - 01.11.1960, Blaðsíða 12
En þótt erfiðleikarnir væru margir, þá var stritið og
hætturnar ríkulega launað með nýjum uppgötvunum.
Sífellt fundust þar nýjar og nýjar tegundir dýra, sem
ókunnar voru í vísindunum. Voru sumar þeirra hinar
furðulegustu, og bættu inn í eyðurnar í þróunarsögu
ýmissa spendýra. Þar voru leifar af svínategund
(Afrochoerus), sem hefur verið á stærð við nashyrn-
ing, er hún var með holdi og hamsi. Sauðkind (Pelor-
ovis) var þar einnig, og hafði hún verið sex feta há á
herðakamb, og gíraffi (Sivatherium) með horn, er
minntu á elgshorn, svo að eitthvað sé nefnt af furðu-
tegundum þeim, sem dregin voru fram úr fylgsnum
jarðlaganna. Furðulegastur allra var þó ef til vill risa-
vaxinn baviáni, en við hlið hans er górillan, stærsti nú-
lifandi api, hreinn dvergur. Þá hafa og fundizt þama
leifar af strútfugli, sem virðist hafa farið fram úr hin-
um 4 metra háa Móafugli á Nýja-Sjálandi. í leitinni
eftir þessum minjum urðu vísindamennirnir að sltríða
upp og niður snarbrattar skriður, eða klifra um kletta-
belti fram og aftur, og getur hver gert sér í hugarlund,
hve létt það muni vera í 40—50 stiga hita undir brenn-
andi hitabeltissól.
Steingervingaleit. — Fremst d myndinni eru Leakey-hjónin, en á milli þeirra aðstoðarmaður úr Kikuyu-þjóð-
flokknum. Til þess að ekkert týndist, þurfti að sálda möl og sand nákvcemlega. í baksýn sést fasta bergið, sem
myndazt hefur i vatni, en þegar Austur-Afrikumaðurinn lifði þarna, hefur hann átt bólfestu á vatnsbakka.
420 Heima er bezt