Heima er bezt - 01.11.1960, Page 20

Heima er bezt - 01.11.1960, Page 20
enda tímdi hann varla að selja þá, þegar á átti að herða. I júnímánuði vorið 1915, er ungarnir voru rúmlega ársgamlir fór hann með þá í blíðu veðri upp í Öskju- hlíð og sleppti þeim þar út í heiðloftin blá, og taldi hann að þeir hefðu orðið frelsinu fegnir. Þetta var „arnapar“, kvenfugl og karlfugl. Þeir virt- ust vera fullþroska um áramót, eða fyrr, og var kven- fuglinn stærri, — og svo mun það ætíð vera með erni. Ef til vill er þetta arnapar enn á lífi, en um það getur enginn vitað. Einn minjagrip á Þorsteinn Kjarval enn um ernina, en það er stór og sterkleg flugfjöður af öðrum ernin- um, því að þeir höfðu þegar fellt fjaðrir inn í „búrinu“. En búrið þeirra var, eins og á myndinni í október- heftinu sézt, tágakarfa utan af leirvöru á stærð við hrip. A sjóferðinni til og frá Englandi, var fuglabúrið (karfan) bundið niður ofan á stjómpalli, nema þegar veður var allra grimmast, var farið með körfuna ofan í lest. Á útleið fékk skipið mjög vond veður og var fulla 9 sólarhringa á leiðinni til Hull. 2. Tregasteinn. Á meðfylgjandi myndum af Tregasteini, sézt hvað kletturinn er gífurlega stór. Þegar borin er saman hæð mannsins, sem stendur við klettinn á einni myndinni, þá sér maður, að ekki er fráleitt að telja að kletturinn sé um tuttugu mannhæðir, eins og í sögunni segir. — Hæðin sýnist varla vera minni en 16—18 mannhæðir, eða um 30 metrar. — Aldrei mun sagan um barnsránið og Tregastein verða sönnuð. Eins og oft er með þjóðsögur, þá skortir staðreyndir. Enginn af sögumönnum mínum vissi um nöfn hjónanna, sem barnið áttu. Sesselja Erlendsdóttir, sem fyrst sagði mér söguna, sagði að bóndinn, sem barnið og konuna missti, hefði strax klifið klettinn og steypt undan erninum, en aðrir hafa sagt mér að maður hafi verið fenginn til þess. En vissa er fyrir því að föðurbróðir Hólmfríðar í Seljalandi steypti undan erni í Tregasteini á árunum 1860—1870, en varla getur það hafa verið í sambandi við barnsránið. Hvergi mun sagan um Tregastein vera skráð í annál- um eða þjóðsögum. Hún hefur aðeins lifað á vörum fólks í Suður-Dölum og þó sérstaklega í Hiirðudal. Eftir frásögn Sesselju Erlendsdóttur vorið 1933, reikn- .aði ég út að atburðurinn hefði átt sér stað á árunum 1790—1820, en sönnunin fyrir því eða rökin er mér úr minni fallið. Um aldamótin átján hundruð held ég að lítil ritöld hafi verið á íslandi. Móðuharðindin nýliðin hjá og fátækt og alls konar armæða þjáði fólkið. Ekki er það víst að barnsrán frá fátækum, ættlitlum hjónum, hafi vakið mikla athygli út fyrir næsta nágrenni. Þá var enginn sími og engin blöð, sem fluttu daglegar fréttir um landið. Þess vegna verður sagan fyrst og fremst minnisstæð þeim, sem næstir bjuggu. En nafnið á stein- inum, þessum risavaxna drang, geymir minninguna um atburðinn, og það er í einu skáldlegt og tregablandið. A i —| "t,"-** "Wi " f w -i J ■ Wr -ÁÁEA: Mftp D4EGUS LLAGA^ Hanna og Helga, Bryndís, Lilja Ragnars og Guðrún biðja um ljóðið: „Við gefwnst aldrei uppu. Höfundur er Jón Sigurðsson, starfsmaður í Búnaðarbankanum. Erlingur Ágústsson hefur sungið Ijóð og lag inn á hljómplötu. Um forfeður okkar, búin til var saga sú, þeir sátu út í Noregi og áttu börn og bú, en Haraldur með frekju fór að þröngva þeirra hag, þeir þutu út í skipin sín og kváðu þennan brag. Við gefumst aldrei upp þó móti blási. Á íslandi við getum verið kóngar allir hreint, og látum engan, yfir okkur ráða, þó ýmsir vilji stjórna okkur, bæði ljóst og leynt. Og Ingólf þeir eltu hingað austan yfir haf, og allir þóttust garpar bera hverjum öðrum af, og síðan hafa allir verið öllum fremri hér, þó við höfum aldrei ráðið nema dönskum her. Við gefumst aldrei upp o. s. frv. Og seinna kom Tyrkinn, með sinn Tyrkjalega her, og Tyrkja-Guddu rændu þeir, og höfðu burt með sér, og eftir sátu í sárum margir seggir þennan dag, en samt þeir undir kvöldið fóru að kyrja þennan brag. Við gefumst aldrei upp o. s. frv. Nú Bretinn, sem vinur, kom að vernda okkar mið, þeir vildu ekki að Islendingar dræpu þorskgreyið, en varðskip okkar skildu ekki að Bretinn mikið má, og mikið meira en áður fóru að elta og pína þá. Þó afdalasnáða vilji ýmsir telja okkur og hugsa sér íslendinga geta ekki neitt, við gefumst aldrei upp þó móti blási, því ennþá streymir norrænt blóð í æðum okkar heitt. Sigga og Bára, N. D. H. á Skatastöðum o. fl. biðja um Ijóðið: „Ég vil fara“. Höfundurinn er Jón Sigurðs- son, en Ellý Vilhjálms hefur sungið Ijóð og lag í út- varp og á hljómplötu. Eg vil fara upp í sveit, þar í sumar vil ég vinna, 428 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.