Heima er bezt - 01.11.1960, Side 23

Heima er bezt - 01.11.1960, Side 23
að leik. Nonni litli kemur fyrstur auga á föður sinn og hleypur glaður á móti honum. — Keyptirðu skóna handa mér, pabbi minn? hrópar hann í barnslegri eftir- væntingu. — Nei, ég keypti enga skó. — En mamma bað þig að kaupa skó handa mér, þeg- ar þú fengir peningana þína í dag. — Þú færð skó einhvern tíma seinna, strákur. — Á ég þá að vera í þessum görmum á morgun, svo allir krakkarnir hlæi að mér? Hvað keyptirðu þá fyrir peningana þína, pabbi? — Þegiðu, strákur! Hallur snarast reiðilegur inn um kjallaradyrnar, en drengurinn hans reikar einn aftur fyrir húsið, vonsvikinn, og grætur þar. Af hverju þarf hann að eiga svona pabba? Hallur kemur fasmikill inn í stofuna, en hann hægir brátt á sér. Þar inni hjá Rögnu situr ókunnug kona, sem hann hefur aldrei séð fyrr. Það er óvenjulegt að sjá gesti á heimili þeirra hjóna. En Ragna snýr sér þegar að manni sínum og kynnir frú Eygló fyrir honum. Þegar þau hafa heilsazt, segir Ragna við Hall: — Þetta er konan, sem gaf henni Lillu okkar pening- ana um daginn, þú manst að ég sagði þér frá því. — Já, ég man það. Hallur réttir frú Eygló höndina. — Ég þakka yður fyrir bamið mitt, segir hann. — Það er ekkert að þakka. Frú Eygló tekur hlýtt í höndina á Halli. Hún sér hvernig hann er á sig kom- inn og hefur djúpa samúð með honum. Ragna rís á fæt- ur og gengur fram úr stofunni. Hún ætlar að lofa Eygló að ræða við Hall í einrúmi, því það telur hún bezt til árangurs. Hallur lætur fallast niður á stól við borðið og virðir gestinn fyrir sér um sttmd. Þetta er bráðfalleg kona, eitthvað svo björt á svip, og hún fór að gefa barninu hans peninga. Slíkt er óvanalegt, að minnsta kosti hefur Ragna ekki sagt honum frá neinum peningagjöfum fyrr. Honum er þegar hlýtt til þessarar ókunnugu konu. Og það er hálfleiðinlegt, að hann skyldi koma svona drukkinn heim núna og láta hana sjá sig í þessu ástandi. En nú er of seint að fást um það. Hann verður bara að vera nógu kaldur fyrir öllu. Áfengið er tekið að stíga honum mikið til höfuðs. Hann hlær kæruleysis- lega, lítur á frú Eygló og segir: — Ég er svolítið mjúkur núna, frú mín. Þú dæmir það vonandi ekki hart? — Ég dæmi engan, til þess hef ég ekkert vald, svarar frú Eygló milt og alvarlega. — En ég hef djúpa samúð með þeim, sem neyta áfengis, því það er hræðilegt í mínum augum. Hallur hlær þvingaðan hlátur. — Heldur þú að við eigum svona bágt? Nei, þá líður manni einmitt vel. — Getur verið, meðan vitundin er ofurseld áhrifum áfengisins. En hvemig er líðanin á eftir, þegar áhrif þess vara ekki lengur? — Hún er nú ekki alltaf sem bezt. Þeir era ekkert mjúkhentir „timburmennirnir", og svo er þetta leiðinda veiklyndi að iðrast. Það er verst. Hallur nær í áfengis- flöskuna og fær sér sopa úr henni. Síðan réttir hann frú Eygló flöskuna. — Má ég bjóða frúnni snafs? — Frú Eygló hristir höfuðið. Slíkt hefur enginn boð- ið henni fyrr, en hún má ekki móðgast við Hall. Hún er hingað komin í öðrum tilgangi, og hún segir því hlýlega: — Nei, þakka þér fyrir. En það var þetta sem þú sagðir áðan með veiklyndið og iðrunina. Fylgir það alltaf eftir áfengisnautninni? — Því er nú verr, frú mín. Þegar runnið er af manni, þá fer rnaður að hugsa um kontma og krakkana, og hve maður sé mikill ræfill, og það er vond líðan, skal ég segja þér, alveg hræðileg. — En því þá ekki að hætta allri áfengisneyzlu og losna þar með við þessi hræðilegu eftirköst? — Hætta? Það er nú hægar sagt en gert. Þú þekkir víst ekki, frú mín, hve freistingin í áfengið er mögnuð. — Nei, en ég er þess fullviss, að engin freisting sé svo mögnuð, að ekki sé hægt að sigrast á henni með guðs hjálp og einbeittum vilja. Hallur horfir nú sljóum augum, en þó undrandi á frú Eygló, og orð hennar fara sem nýr straumur um sál hans þrátt fyrir sljóleikaástand hans, en hann segir drafandi: — Ég er svo djúpt fallinn. Hann tekur áfengis- flöskuna upp á ný og teygar úr henni. Frú Eygló finnur, að tilgangslaust er að ræða frekar um þetta við Hall svona á sig kominn. Hún verður að gera það við hann síðar allsgáðan. En hún segir þó: — Það er enginn svo djúpt fallinn, að hann geti ekki byrj- að nýtt líf, ef nægur vilji er fyrir hendi. — Þú ert bjartsýn, frú mín, en ég er ræfill, ég veit að ég er ræfill. Hallur rís á fætur og slagar fram úr stofunni og út. Frú Eygló horfir döpur á eftir honum, en þar sem baráttan er hörðust, verður sigurinn líka stærstur, og hún trúir örugg á sigur hins góða. Ragna kemur inn í stofuna til frú Eyglóar og segir raunalega við hana: — Jæja, hvernig lízt þér á manninn minn? — Vel, Ragna mín. Hann á bágt nú sem stendur, en það á eftir að lagast með Guðs hjálp. — Þá hlýtur líka að gerast kraftaverk. — Og það gerist líka. Ragna andvarpar í örvæntingu. — Nú er hann farinn eitthvað út, og guð má vita, hvenær hann kemur aftur. — Er hann vanur að vera lengi að heiman, þegar hann er í þessu ástandi? — Stundum. En svo liggur hann alltaf veikur eftir hverja helgi. — Þá ætla ég að koma hingað aftur á mánudags- morguninn og vita hvernig þá líður. — Vertu hjartanlega velkomin, þá verður líðanin sorgleg hjá Halli, ef ég þekki rétt. Frú Eygló rís á fætur og býst til heimferðar. Ragna fylgir henni út, hún ætlar að kalla á börnin sín inn um leið, því hún þarf að fara að hjálpa þeim í rúmið. Þau verða að komast í ró, hvað sem hennar sjálfrar bíður á Heima er bezt 431

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.