Heima er bezt - 01.11.1960, Page 27

Heima er bezt - 01.11.1960, Page 27
GUÐRÚN FRÁ LUNDI ÞRÍTUGASTI OG FIMMTI HLUTI „Hvaðan kemur þú, kona?“ spurði Kristján. „Ekki langt að. Hérna ofan frá Mclhrygg, þar hef ég verið síðan gömlu hjónin fluttu héðan. Eg var búin að hírast hjá þeim í húsmennsku í nokkur ár. Ég hef verið í kaupavinnu á sumrin, en nú hefur mér hrakað svo til heilsunnar, að ég treysti mér ekki lengur til að vera við heyvinnuna. Mér datt í hug hvort ég gæti fengið að vera hér áfram. Ég kann svo vel við mig hérna. Þess vegna skildi ég eftir koffortið mitt og fata- kistuna. Þú hefur líklega seð það í stofugarminum.“ Já, hann hafði séð það. „Okkur fannst óviðkunnanlegt að sjá þennan mikla reyk upp úr eldhúsinu leggja langt út á sjó,“ hélt Val- borg áfram. „Hverju voruð þið að brenna?“ „Við vorum að brenna heyinu úr rúmunum. Kven- fólkið óttaðist að það væri fullt af flórn og einhverju enn þá verra,“ sagði Kristján. „Og eins og þú hlýtur að vita, kona góð, verðum við karlmennirnar alltaf að vera auðmjúkir þrælar kvenfólksins, ef vel á að fara. Og nú er komið nýtt hey í alla bálkana.“ „Jæja, svo þið létuð ykkur detta í hug að gamla húsmóðirin hefði haft flær í rúmunum sínum, önnur eins þrifamanneskja,” sagði Valborg. Hartmann varð fyrir svörum: „Við þekktum hana náttúrlega ekkert, en ekki sýnist mér gólfið líta svoleiðis út, að hún hafi kunnað að skúra. Þú hefðir átt að sjá gólfin hjá henni Geirlaugu á Hofi, kona góð.“ „Einu sinni þekkti ég þá stúlku. Ekki var hún nú svo sem álitin nein sérstök manneskja þá, en henni hefur víst farið fram eftir að hún kom að Hofi, eins og fleir- um,“ sagði Valborg. Svo bætti hún við og beindi tali sínu til Kristjáns: „Ég svaf alltaf í þessu rúmi bak við hurðina. Mig langar til að flytja í það aftur.“ „Við sjáum nú til,“ sagði Kristján. „Ég þarf að bregða mér ofurlítið frá, áður en ég svara þér.“ Hann ráðfærði sig við föður sinn. Hann var oft ráð- hollur. Hann vildi láta hann taka kerlinguna. Hún gat orðið hjálpleg í bænum. Ásdís gæti þá göslað úti, það átti bezt við hana. Það yrði lítið úr þeirri gömlu að vera ein í bænum. Valborg var búin að taka sundur prjóna, sem hún hafði haft meðferðis og farin að prjóna þegar Kristján kom inn aftur. „Ég er að hugsa um að lofa þér að flytja í rúmið þitt aftur, kona góð. Ef þú verður ekki á sífelldu ferða- lagi sé ég að þú getur verið mömmu til skemmtunar og gagns, þegar við erum við útivinnuna. Hún hefur víst aldrei verið samtíða þeirri manneskju, sem hún hefur ekki getað lynt við, svo þú mátt vera slæm til geðsmunanna ef það getur ekki blessazt. Þú hefur frítt fæði og kannske eitthvað meira, ef allt gengur að ósk- um,“ sagði Kristján. Hún þakkaði honum fyrir. „Það var ekki Iengi að bætast í búið hjá dreng,“ sagði móðir hans ánægð. Ásdís vissi ekkert hvort henni ætti að líka betur eða verr, að þessi kerling væri að troða sér inn í heimilið. Hún hefði helzt viljað að þau væru ekki nema fjögur í heimilinu. „Ég er þessu fegin,“ sagði Valborg, „því ég kann hvergi eins vel við mig og hérna á Bakkagreyinu.“ „Þú hjálpar svo mömmu að taka upp búslóðina, Ás- dís, og koma henni fyrir. Ég þarf að þekja básana í fjósinu áður en kýrnar koma,“ sagði Kristján. „Hafið þið margar kýr?“ spurði aðkomukonan. Ásdís varð fljót til svara: „Fjórar og kvígu og kálf. Þetta er nú svo sem ekkert smábú, skal ég segja þér.“ „Það eru margir gripir,“ sagði Valborg. „Þau höfðu aldrei nema tvær kýr hjónin gömlu, en túnið fóðrar fleira. Ég held þið komizt tæplega fyrir hérna.“ „Við erum nú svo stórhuga að okkur nægir ekld minna,“ sagði Ásdís og hló. „Hvað er gert með að hafa svona margar kýr handa svona fáu fólki?“ spurði Valborg. „Við búum til skyr og svo var stundum farið með mjólk út á Eyri og svo náttúrlega selt smjör,“ sagði Ásdís. „Það þarf víst ekki að segja við,u sagði Arndís gamla, „því að Geirlaug gerði það allt. Ég sé nú ekki hvernig ég fer að gera skyr, það er víst gleymt eins og fleira.“ Heima er bezt 435

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.