Heima er bezt - 01.04.1962, Síða 17

Heima er bezt - 01.04.1962, Síða 17
litla, fagra og kyrrláta bæ, Sórey á Sjálandi,1) og gegn- ir lektorsembætti um þessar mundir við „akademíið“ og kennarastörfum við lærða skólann þar. Þeir Jónas og Steenstrup höfðu kynnzt á háskólaárunum í Kaup- mannahöfn og tengzt vináttuböndum. Steenstrup hafði ferðazt tvö sumur um Island i rannsóknarskyni, og Jónas verið með honum á því ferðalagi seinna sumar- ið. Nú höfðu þeir vinirnir í hyggju að vinna saman úr rannsóknum sínum frá þessum íslandsferðum. í bréfi til Steenstrups, vinar síns, dagsettu í Kaup- mannahöfn 23. júní 1843, víkur Jónas að þessari fyrir- ætlun og segir m. a.: — Tak for dit Brev og sig mig saa omtrent, naar jeg skal komme. Hvis du ikke alt vidste det i Forvejen vilde jeg nú fortælle dig som en Sag af Vigtighed, at jeg er bleven meget fed og nærved at smelte i den kære Sommer, alligevel holder jeg mig temmeligt tapp- ert eftersom jeg er en stor Ven af Lys og Varme. Vi har dog en Del at arbejde sammen, naar vi fprst tænker os ret om, og desuden trænger jeg specielt til din prpvede, aandelige Bistand, for at fange og kultivere en Mængde forvildede Fakta og Forestillinger, som Ipber l0se blandt hinanden i mit ellers fortræffelige Hovede. — Þó að Jónas beri sig karlmannlega í bréfinu og seg- ist vera orðinn svo feitur, að hann bráðni næstum í sumarhitanum, er fjárhagur hans þó ekki blómlegri en svo, að nokkrum dögum seinna, hinn 14. júlí 1843, skrifar hann Jóni Sigurðssyni forseta svohljóðandi bréf: Klæðabúðum,2) 3. hús, 2. 1. 14/7 ’43. Jón minn! Ef þú gætir með nokkru móti léð mér svo sem 1 eða 2 dali, væri mér mesta þökk á; ég sit í fullkominni sveltu, af því horngrýtis Rkm. (Rentukammerið) dregur mig. Verði ég svo óheppinn, að stelpan nái þér ekki heima, þá ætla ég að biðja þig blessaðan að senda mér einhver skeyti með Sörni í fyrra málið. Þinn J. Hallgrímsson. 1) Dr. Matthíasi Þórðarsyni farast m. a. svo orð um Sórey í ævisögu sinni um Jónas Hallgrímsson: „Sórey er yndislegur smá- bær inni í miðju Sjálandi, um 75 km fyrir útsunnan Höfn. Hann er nú eltki á ey, eins og nafnið bendir til og eins og hann var í fomöld, en hann stendur við allmikið stöðuvatn. Skógar eru umhverfis og náttúrafegurð mikil, einkum þegar allt er í blóma. — Á miðöldunum var munkaklaustur í bænum og lét Absalon erkibiskup reisa þar merkilega kirkju, sem stendur enn í dag, og þar var hann jarðaður og mörg önnur stórmenni fyrr og síðar. — Einnig er svo sagt, og haft eftir Brynjólfi biskupi Sveinssyni, að Ögmundur biskup Pálsson hafi verið grafinn að þeirri kirltju. — Fyrrum var þar aðeins „akademí"; við það hafði Jón Eiríksson verið prófesspr 1759—71.“ 2) Klæðabúðir: Gatan, sem Jónps bjó við, nefndist á dönsku Klædeboderne. (2. 1. merkir loftið í húsinu, þar sem Jónas bjó>. En nú er mestu bágindum og fjárhagsáhyggjum Jónasar lokið í bili. Hann er á leið til vinar síns í Sór- ey, og Kaupmannahöfn er að baki. Framundan eru margar, langar sælustundir við hugljúft starf og margs konar gleðskap og skemmtanir í fögru umhverfi meðal glaðværra vina. Það er því eðlilegt, að skáldinu sé létt í skapi og gleði og hýra skíni úr stórum, brúnum aug- unum, er það situr í póstvagninum þennan sólfagra síðsumarsdag og virðir fyrir sér unaðslegan gróður Sjálands. Jónas hugsar gott til þess að dveljast um sinn í ró og næði við hið kyrrláta, skógum kringda stöðu- vatn, sem Sórey stendur við, róa um vatnið og reika um skógana, en horfa þess á milli yfir hina „lifandi kornstangamóðu“, sem bylgjast í blænum á hinum frjósömu, sjálenzku ökrum. Þarna getur hann áreiðan- lega komið miklu í verk, fyrst og fremst fengizt við islandica með Steenstrup, en ef til vill líka komið betra lagi á hið erfiða, en heillandi og stórbrotna verk, ís- landslýsinguna, sem enn er í hálfgerðum brotum. Og þess á milli, þegar bezt liggur á honum, getur hann svo máske fléttað fáeina ljóðasveiga til Fjallkonunnar í norðri, sem ávallt er hjarta hans kærst, og einnig til hennar, sem þar þreyr, og hann harmar alla daga. II. A dögum Jónsar Hallgrímssonar, á fyrri hluta 19. aldar, höfðu menn ekki uppgötvað né tekið hin dá- samlegu og mikilvirku fréttatæki nútímans í þjónustu sína. Þá þekktist hvorki sími né útvarp né önnur þau tæki, sem nú þykja sjálfsögð og ómissandi. Helzta fréttatæki þess tíma var sendibréfið, sem um aldaraðir hafði gegnt því mikilvæga hlutverki, að bera boð milli manna og flytja hugsanir þeirra. Og svo er sendibréf- unum fyrir að þakka, að í þeim hefur varðveitzt marg- víslegur fróðleikur, sem hvergi hefði annars verið skráður og glatazt hefði því komandi kynslóðum, hefði hann eigi verið skráður í sendibréfsformi. Af gulnuð- um og máðum síðum þeirra er sem við heyrum raddir löngu liðinna kynslóða, jafnt skáldsins og snillingsins og hins óbreytta alþýðumanns. Jónas Hallgrímsson hafði ekki dvalizt lengi í Sórey, þegar hann greip pennann og skrifaði vinum sínum bréf, til þess að láta þá frétta af högum sínum, og svo til þess, að fá fréttir frá þeim og biðja þá að útvega sér eitt og annað, einkum handbækur, kort og annað, sem hann þurfti að hafa undir höndum, til þess að geta unnið úr rannsóknargögnum sínum. — Fyrsta bréf Jónasar frá Sórey er til Þórðar Jónassens,1) dagsett 26. 1) Þórður Jónassen, dómstjóri, (f. 2ó. febr. 1800, d. 25. ágúst 1880), varð stúdent frá Bessastaðasltóla 1820, tók próf í lögfræði við Hafnarháskóla 1830. Hann gegndi ýmsum mikilvægum emb- ættum hér á landi, var m. a. yfirdómari í landsyfirdómi og dóm- stjóri. Einnig gegndi hann landfógetaembætti og stiftamtmanns- embætti og var konungsfulltrúi á alþingi 1861—65. Meðal barna hans var Jónas Jónassen landlæknir. (íslenzkar æviskrár P. E. Ö.) Heima, er bezt 125

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.