Heima er bezt - 01.04.1962, Blaðsíða 23

Heima er bezt - 01.04.1962, Blaðsíða 23
sömu bréfi þessa sömu frásögn af ferðalagi drottning- arinnar. Hvort Jónas hefur orðið fyrir beinum áhrif- um af skáldskap Ingemanns eða Hauchs, skal ósagt lát- ið. Ekki þarf það að vera um annan eins snilling og Jónas var, enda hafði hann allöngu áður fengizt nokk- uð við fleiri skáldskaparform en Ijóðagerðina eina, þar eð hann hafði samið smásöguna Grasaferð og fleiri smásögur og ævintýri. En ekki er ólíklegt, að kynni þessara góðskálda og hin margvíslegu ritstörf hinna dönsku skáldsnillinga, er Jónas komst þarna í bein kynni við, sérstaklega sagna- og leikritagerð Hauchs, hafi ýtt undir Jónas að skrifa eitthvað meira í því formi. í bréfi til Páls Melsteðs yngra, dagsettu í Kaup- mannahöfn 5. júlí 1844, bregður Jónas upp skemmti- legri svipmynd af skáldunum Hauch og Ingemann. Honum farast svo orð um þá: -------Þú spyrð mig um þá Ingemann og Hauch. H. er allra-elskulegasti maður; hann er hár og grannur og ólánlega vaxinn, allra manna svartastur, blakkur og suðrænn í útliti, og sérlega fallega-ljótur, eins og þú þekkir, með fjarska stórt nef og efra tanngarð, og allra manna stóreygðastur og úteygðastur; og samt sem áð- ur þarf ekki nema líta á hann, til að sjá hann er flug- gáfaður. Hann er svo mikill ákafamaður í tali, að hann varla kemur öllum orðum út, og blæs þá eins og móð- ur hestur; og svo er hann stundum líkur Shakespeare, að hann segir t. a. m. á einum stað í Sveini Gratha: „fpr skal du fange Vindens Hest paa Heden, og binde den til Maanens blege Horn, end du formaar“ o. s. frv. Honum mættu tveir harmar í vetur; hann rnissti dóttur sína, og konan hans skrifaði Novelle. Ingem. er allra-mesti spilagosi, stuttur og stubbaralegur, með mik- ið hár og úfið, sem hefur verið bjart, en er nú farið að grána; hann hefur breitt andlit, flatt, bratt og lágt nef og mikið enni, lítil, grá, lífleg og skýrleg augu; hann er afar-fljótmæltur og veður svo hvað úr öðru, að það er oft illt að fylgja honum; hann er fyndinn og smáertinn, og ófús á að tala um skáldskap. Hann seg- ir, að einu sinni hafi þeir verið á ferð saman, vindur- inn og djöfullinn, og þegar þeir komu að horninu á húsinu hans Hjorts2) (þar er ævinlega götusúgur), þá 2) Peter Hjort („þýzki Hjörtur11) var kennari við „akademí- ið“ í Sórey. Hinn meinyrti „brandari" Ingemanns um Hjort skilst, ef það er haft í huga, að deila mikil reis upp milli kenn- ara skólans um stjórn og fyrirkomulag hans, en mikið agaleysi hafði ríkt þar. Vildi Hjort láta aðskilja „akademíið“ og lærða skólann, en það vildu hinir kennaramir ekki. Fór stjórnin sarnt að tillögum Hjorts og gekk skilnaðarmálið fram 3. marz ’44. „Breyttist þá skólahaldið og féll allt í ljúfa löð meðal kennara og nemenda, nema að því leyti, er Hjort snerti," segir M. Þ. í ævisögu J. H. hafi djöfullinn sagt: „Bíddu mín hérna, vinur minn! meðan ég bregð mér inn til kunningja míns,“ — en hann er líklega ekki kominn út aftur enn!--------- Efalaust hefur Jónas Hallgrímsson kunnað vel að meta þær fáu unaðsstundir, sem örlögin leyfðu honum að njóta þessa skammvinnu sæludaga í Sórey. Þarna hefur hann m. a. kynnzt ungu og glaðværu fólki, sem Iheillazt hefur af honum engu síður en hann af því, og sennilega hafa sumar stúlkurnar, sem hann réri með á báti um vatnið, ekki látið hjarta hans með öllu ósnort- ið. Af því fara hins vegar fáar sögur. Eina heimildin um það eru þrjár stökur á dönsku, sem hann sendir vini sínum, Konráði Gíslasyni, í bréfi 3. marz 1844. Stökurnar eru svohljóðandi: Ja, vidste Du, Ven, hvor mangefold man pröver i fremmede Lande! Han1) kasted í Natten en gvlden Bold og traf min glpdende Pande. Og nu — jeg ved hverken ud eller ind — jeg styrter igennem Slcoven, og spger min hvide, min dejlige Hind, mens Stjernerne blinke foroven. O Guder! Saa skuer jeg Skovens M0 i S0en bak skyggende Lunde. Hallo! Det er ude — ak, jeg maa d0! Nu jage mig Nymfernes Hunde. Og skáldið bætir við: — Þetta kemur nú út af því að vera að flana á vikivaka á föstunni, og rétt gerði Krist- ján 6., að taka þá af á íslandi. Hún heitir, held ég, jómfrú Jessen frá Slagelse, og þó er, satt að segja, fallegri prestsdóttirin með sunnan- og norðan-brjóstin sín. Þetta, um prestsdótturina með sunnan- og norðan- brjóstin, skýrist, ef lesið er annað bréf, sem Jónas skrif- ar Konráði, (sennilega 1—2 dögum fyrr) einnig í byrjun marz 1844. Þar segir hann m. a.: — Enginn ykkar hefur orðið svo frægur að sjá prestsdótturina í Munkebjerg-by. Eg ræðst ekki í að lýsa henni (henni jómfrú Louise), því þið þarna bæjarmenn forstandið ykkur ekki uppi á landið, en ég segi ykkur svona í trúnaði, að hún sagði mér sér þætti undarlegt, Jótar þeklttu ekki hægri né vinstri hlið og miðuðu allt við veraldaráttirnar, svo að til að mynda prestskonur á Jótlandi segðu við brjóstbörn: Nu slap det, din Patte- sjæl! Saadan, kom saa her over paa det nörre Bryst! 1) Sennilega ástarguðinn Eros. (Framhald.) Heima er bezt 127

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.