Heima er bezt - 01.06.1962, Blaðsíða 33
ViIjiS J)ér ekki vei(\a einn af þeim neppnu
sem vinna málningavörur
a<\ samanlc igáu verSmæti kr. 5.500.00
1. verðlaun: Málningavörur fyrir kr. 3.500.00
2. verðlaun: Málningavörur fyrir kr. 1.500.00
3. verðlaun: Málningavörur fyrir kr. 500.00
Hér birtum við þá þriðja og síðasta hluta verðlauna-
getraunarinnar, þar sem verðlaunin eru fyrsta flokks
málningarvörur frá Efnaverksmiðjunni Sjöfn.
Og eins og tekið hefur verið fram, þá getur sigur-
vegarinn sjálfur valið sér hvaða málningu sem er af
þeim fjölbreyttu vörum, sem Efnaverksmiðjan Sjöfn
framleiðir. Svo að næst þegar þér komið í málningar-
vöruverzlun, þá ættuð þér að fá að skoða hið fjöl-
breytta úrval af málningarvörum frá Sjöfn, og þá
munuð þér ekki verða í neinum vandræðum með að
finna einmitt þær tegundir af málningarvörum, sem
yður kann að vanhaga um.
Hér neðst á síðunni birtum við nú þrjár síðustu for-
síðumyndir „Heima er bezt“ af níu, og þá er allur
vandinn sá, að segja nú til um, hvaða heiðursfólk það
er, sem hefur prvtt forsíðu blaðsins í þessi níu skipti.
Þegar þér hafið gengið úr skugga um, hverjir þessir níu
karlar og konur eru, þá ritið þér nöfn þeirra á biað og
sendið ráðninguna til „Heima er bezt“, pósthólf 45, Ak-
ureyri — Ráðningarnar þurfa að hafa borizt afgreiðslu
blaðsins í síðasta lagi þann 20. júlí næstk. Berist margar
réttar ráðningar, verða nöfn sigurvegaranna dregin út.
Nr. 7
Nr. 8
Nr. 9
Ileima er bezt 217