Heima er bezt - 01.04.1963, Blaðsíða 13

Heima er bezt - 01.04.1963, Blaðsíða 13
MAGNUS GUNNLAUGSSON: Hvíslié á Almenninoum að mun hafa verið um miðjan október 1915, að fregn barst um það utan frá Úlfsdölum (vest- an Siglufjarðar), að þar væru nokkrar kindur, innan úr Fljótum, sem æskilegt væri að yrðu sóttar sem fyrst. Ég var þá vinnumaður á Hraunum í Fljótum ásamt mörgu fleira fólki, hjá þeim merkishjónum Ólöfu Ein- arsdóttur frá Hraunum og Guðmundi Davíðssyni frá Hofi í Hörgárdal. Nokkuð af þessu starfsliði var unglingar, er komið hafði verið fyrir í vist þangað yfir lengri eða skemmri tíma, einkum frá Siglufirði. Sumt af þessum unglingum var í eðli sínu vandað bæði í orði og athöfn, annað miður eins og gengur. Þau hjón voru þekkt að því, að vilja hafa siðbætandi áhrif á unglingana, bæði til orða og verka, þó stundum vildi þetta mistakast einkum þar sem margt fólk er sam- an komið. Á þessum árum var draugatrúin eða þjóðtrúin enn í fullum gangi, að segja mætti, enda var fólkið óspart að blása að þessum glæðum, með því að segja hvoru öðru meira eða minna mergjaðar sögur. Um Búðar- tungudrauginn, er hafðist við í Búðartungugilinu skammt fyrir sunnan túnið og Þorgeirsbola, sem einatt dvaldi í svokölluðum Hálstóftum örstutt neðan við túnfótinn. Báðir þessir aðilar höfðu það til — að sögn — að gera vegfarendum marga skráveifu, einkum ef einn var á ferð eftir að skyggja tók. Loks voru svo skeljaskrímslin við sjávarsíðuna með öllum sínum hrikaleik og ógnarafli, sem öllum stóð hinn mesti stuggur af. Auðvitað vorum við ungmennin hráðsólgin í þessar sögur og aðrar slíkar, enda þótt það gerði okkur svo myrkfælin, að við þorðum varla að þverfóta eftir að skuggsýnt var orðið. Eitt af því sem okkur var sagt í sambandi við sjó- skrímslin var, að eitt sinn hafi Guðmundur Einarsson, afi Ólafar húsfreyju, bjargað sér á skautum á Mikla- vatni undan sjávarskrímsli. Hvað, sem þessari þjóðsögu líður munu það ekki hafa verið nein ósannindi, að Guðmundur Einarsson hafi verið einn mesti skíða- og skautagarpur síns tíma, en nóg um það. Eins og getið er um í upphafi þessa þáttar, barst fregn urn, að úti á Dölum væru kindur innan úr Fljót- um. Eigi var þess getið, hve margar þær væru, né á hvaða bæ þær væru geymdar. Það féll í minn hlut að fara þessa ferð og mun hafa verið allmikill geigur í mér, þar sem vegurinn út Hrauna-Almenninga lá sums staðar eigi langt frá sjó, en leiðin löng og því nokkurn veginn víst, að ég myndi lenda í myrkri til baka, og samkvæmt framanskráðu mátti trúgjarn og kjarklítill unglingur búast við ýmsu miður skemmtilegu eftir að dimmt væri orðið. Ég lagði af stað árla dags í logni og björtu veðri. Loft var nokkuð skýjað en tungl í fyllingu og var það auð- vitað bót í máli, því að þá yrði myrkrið ekki eins geig- vænlegt á heimleiðinni. Ég held sem leið liggur út svokallaðan Dalaveg, út yfir „Heljartröð" og hér blasa við mér innri- og ytri- Eggjabrekkur ásamt ýmsurn fleiri vinalegum örnefn- um, sem smalinn er vanalega býsna fljótur að kynnast. Brátt er ég kominn út í mynni Hraunadals og þarna sést upp í Siglufjarðarskarð, Éellin og Göngudalinn, já, og þarna er gamla selið, þar sem ég var stundum með ærn- ar um sumarið. Ég get ekki komizt hjá því, að rifja upp einkennilegt atvik, sem þarna henti mig. Það var svarta þoka, en gott veður að öðru leyti. Ærnar eru spakar á beit í kring um selið, svo að mér er sjálfsagt alveg óhætt að fá mér blund. Þá dreymir mig, að til mín kemur maður, sem ég þykist kannast vel við. Hann ávarpar mig í mildum tón og þykist ég skilja, að hann vilji að ég fari af selinu. Ég anza engu og fer hvergi. Eftir nokkra stund kemur hann aftur og er þá verulega höstugur í máli. En það fer á sömu leið. Ég fer hvergi. Loks kemur hann í þriðja sinn og er þá ekki mannsrödd, heldur Ijót og digur bolaraust og þá vaknaði ég, en þá var ég búinn að fá „martröð“, svo að ég gat mig hvergi hreyft. Það má nærri geta, hversu notalegt það hafi verið að vakna undir þessum kringumstæðum og geta ekki rót- að sér. Þarna lá ég lengi, að mér fannst, án þess að geta hreyft mig (mun þó ekki hafa verið nema stutt stund). Loks get ég lítið eitt lyft annarri hendinni og er þá um leið laus úr þessari prísund. Ég rís nú á fætur, geng í kringum selið og rýni út í þokuna í leit að þessari ein- kennilegu draumveru, en sé auðvitað ekki neitt. Aldrei var ég hræddur, að koma á þessar stöðvar eftir þetta og aldrei varð ég var við neitt, hvorki í svefni eða vöku, nema í þetta eina sinn. Að sjálfsögðu var mér Heima er bezt 129

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.