Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1963, Qupperneq 15

Heima er bezt - 01.04.1963, Qupperneq 15
HALLGRIMUR FRA LJARSKOGUM: Svipleiftur af söguspföldum Veturinn 1960—61 efndi Heima er bezt til getraunar, til að kanna, hversu spakmæli og orðtök íslendinga sagna væru les- endum þess tiltæk og kunnug. Þátttaka var mikil og ánægju- leg, og margir sendu okkur þakklæti fyrir að hafa valið þetta getraunarefni. Enginn tók þó eins myndarlega á málunum og Hallgrímur skáld frá Ljárskógum, sem sendi blaðinu heil- an ljóðabálk, þar sem ekki einungis getrauninni er svarað, heldur einnig brugðið upp skáldsýn af sögu þeirri, sem að baki orðunum var. Væntum vér að lesendum Heima er bezt þyki fengur að þessum sérkennilegu og frumlegu svörum, og ljóð Hallgríms megi verða til að festa mönnum efni forn- sagna vorra enn betur í huga. Kunnum vér honum þakkir fyrir hugkvæmnina. Sonurinn Bolli er barnið sem bendir í spurn yfir hjamið. Móðursvar meitluðum orðum fluttist af einurð forðum: Þeim var eg verst er áður unna eg mest. Kærleikur konunnar vakir. Kvikublæðandi sakir fölna með fallanda degi en fyrnast aldrei á vegi. Við ölturu Guðrún grætur. í vökulok veitast bætur. Þeim var ég verst - Ein á ferli, ein í kirkju. — Öldruð nunna að bæn sig hneigir, líf sitt helgar hvíta-Kristi, höfuð sitt í lotning beygir, — lífsins ólga er langt að baki, lífsins þrá er brotin niður, lífsins hljóða kvöld er komið, kyrlát sorg og trúarfriður. Helgafell Guðrún gistir, gengnar skartmeiri vistir, gömul og gráhærð kona við grafir dýrustu vona. Hljótt er við hrundar borgir, svalt við fjötraðar sorgir. Harmsagnir Laxdælu leika logsárt á strengina veika, stormsveipir stórlátrar ævi, stunur í djúpsins blævi, hjarta með svíðandi sárum, ofraun í órunnum tárum. Að dagslokum dagsýnir myndast, að dagslokum stundir vindast, í raunsæi þræðir rekjast, í rokviðrum kraftar vekjast. í harmleik sjást hetjur fara. Við dagslok skal dirfð til svara. Harmsagnir Laxdælu leika logsárt á strengina veika. — Kinnhestur Bogastrengur er brostinn, bikar í grunn er tæmdur, hugur er heiftum lostinn. — Hver er veginn ög dæmdur? Bogastrengur er brostinn. Hallgerður harðlynd og fögur, í hrakviðrum þrekuð, í leynd, stendur í styrr hjá bónda, stefnir sinn veg — í reynd. Bogastrengur er brostinn. Kalið er konuhjarta, kælt við ýmissra gjöf, harðnað í skapraun og hreggi, hrakið á yztu nöf. Eigi það endast mátti út yfir dauða og gröf. Bogastrengur er brostinn. Muna skal kaldan kinnhest. — Kona er sýn á hefnd. — Hirði eg lítt hvort þú hjarir. Heit eru veitt — og efnd. Bogastrengur er brostinn. Ávörp og andsvör berjast, eitraðar tungur særa, helgustu leyndir herjast, — hatur má endurnæra — spjótlögum vaskir verjast. Vandi er einn að kæra. Bogastrengimir bresta. Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.