Heima er bezt - 01.04.1963, Side 18

Heima er bezt - 01.04.1963, Side 18
inum. Ég reið folanum steingráa, sem var heldur þrótt- lítill og dettinn. Úti í miðri ánni hnaut hann og datt á hnén. Sú ein hugsun komst að þegar ég hnaut frarn af hnakknefinu, að ég mætti ekki vökna og varð það fyrir að grípa báðum höndum um eyru folans. Hann tók því vel, brölti á fætur og stóð eins og þúfa meðan ég mjakaði mér aftur upp í hnalckinn. Gaf ég honum væn- an brauðbita fyrir vikið í næsta áningarstað. Trippin rákust illa á sandinum, þar sem engin var gatan, svo ég reið oftast á undan, en þeir kumpánar ráku lestina. Einn folinn, sá rauðblesótti, var sérlega óþekkur og var Birgir búinn að hrópa svo oft að hon- um ókvæðisorð, að hann var farinn að gegna þeim, eins og hundur nafni undir ferðalok. Sprengisandur er mikil auðn, melöldur og sandlægðir og jöklar til beggja handa, en lækir, smáár og vötn eru víða og Fjórðungsvatn þeirra stærst. Sandbleytur eru víða með lækjum og ónotalegt að finna allt í einu hestinn sökkva í þar sem virzt hafði slétt og traust land. Af gróðri var fátt að sjá, músareyra, geldingahnappar og lambablóm á stöku stað milli steina, en hvergi til hagi fyrir kvikfé. Þegar við lögðurn af stað úr Eyvindarveri var bjart- viðri, hlýtt og þægilegt. Sólin gægðist úr skýjarofi og elti skugga um sandöldurnar, og brá bjarma á glamp- andi jökla. Allt virtist lifandi og aðlaðandi. En snögg- lega dimmdi í lofti. Jöklarnir urðu bládimmir og ógn- andi, sandurinn járngrár og dauður og nístandi vindur smaug inn að beini. Við áðum í dálítilli lægð, sem þó megnaði ekki að skýla okkur né hestunum, sem stóðu í höm, vonlausir á svip, þar sem hvergi var stingandi strá handa þeim að sjá, en þegar við tókum upp nestið og þeir fundu lyktina af brauðinu, komu þeir nær og þeir spökustu hnipptu mjúklega í okkur með flipanum, svo auðvitað fengu þeir bita með. Við vorum komin { öll okkar hlífðarföt til að halda á okkur hita, jafnvel olíufötin, þótt þurrt væri veður. Við héldum áfram norður auðnina, fórurn á skokki, skiptum alloft um hesta, urðum þreytt og syfjuð og fundum hvernig dró af hestunum eftir því sem á leið. Smám saman nálguðust norðlenzku fjöllin, þótt okkur fyndist urn lágnættisbilið að vonlaust væri með öllu að nálgast þau. Eg var svo þreytt, að stundum sá ég slóð- ina, sem ég átti að rekja, tvöfalda og var farin að kvíða fyrir því í hvert skipti, sem ég varð að fara af baki og handsama annan hest, skipta um reiðtygi og komast aftur á bak, en sú var þó bót í rnáli, að hestarnir voru orðnir of þreyttir til að vera styggir og nú mátti ganga að hvaða villing sem var. Norður undir Kiðagili beygðum við af slóð norðan- mannsins og stefndum á drög Mjóadals í stað þess að vitja áningarstaðar í Kiðagili. Mjóidalur hefst sem mosadrög á sandinum fram með lækjarsitrum, sem sam- einast í Mjóadalsá. Er það viðeigandi, sem haft er eftir ferðamanni, sem reið um Mjóadal: Allt tekur enda, nema eih'fðin. Smám sarnan dýpkar dalurinn og gróður vex og strax og komið var í viðunandi graslendi stönz- A Sprengisandi 27. júlí 1940. uðum við, menn og hestar jafnfegin. Var þá klukkan sex að morgni og sextán klukkustundir liðnar frá því við fórum úr Eyvindarveri, en röskur sólarhringur síð- an við fórum fyrst á stjá að hyggja að Helga og hest- unum. Þegar ég renndi mér af baki skalf ég af þreytu og þótti mér verst, að mér vafðist tunga um tönn þegar þeir félagar mínir ávörpuðu mig. Þótti þeim ég svo óburðug, að þeir heimtuðu að ég skriði strax í svefn- poka og hef ég aldrei fyrr né síðar upplifað það, að láta tjalda yfir mig, þar sem ég lá og skalf í pokanum. Þótti mér lítið leggjast fyrir kappann, að gerast ber að slíkri vesalmennsku. Þegar Einar og Birgir voru búnir að hefta hestana urðu þeir líka hvíldinni fegnir og sofn- uðum við fljótt og vel. Þegar ég vaknaði aftur fannst mér í fyrstu ég vera sárveik og fráleitt að ég myndi geta hreyft legg né lið, líklega yrði að flytja mig á kviktrjám það sem eftir væri til byggða. Lá ég nokkra stund og hugsaði um eymd mína og hlustaði á hrot- urnar í þeim félögum mínum. Allt í einu fann ég, að ég var alveg óttalega svöng. Hvað átti ég að gera? Vekja þá? Nei, skárra var að reyna fyrst hvort nokk- ur leið væri að hreyfa sig. Ég mjakaði mér hálf upp úr pokanum — jú, ég gat sezt upp og þama sá á kexpakka upp úr tösku. Ég seildist þangað og skreið aftur í pok- ann með fenginn. í því vaknaði Einar og spurði hvernig mér liði. „Agætlega,“ svaraði ég steinhissa, ég hafði nefnilega uppgötvað þegar ég hreyfði mig, að það var alls ekkert að mér. „Ég er bara voðalega svöng.“ — Einar seildist eftir fleiri matföngum og við borðuðum með beztu lyst og ræddumst við í hálfum hljóðum, þar til Birgir vaknaði líka og var ég þá orðin upplögð í að hita vatn í kjötseyði, sem var okkar eftirlætis drykkur í ferðinni. Klukkan sjö um kvöldið vorum við ferðbúin á ný og riðum niður Mjóadal, beygðum síðan yfir allháan háls að eyðibýlinu Ishóli. Þegar við vomm komin langleið- ina upp á hálsinn kom á móti okkur ríðandi maður. Var það Éinar yngri Sæmundsen, þá skógarvörður á Vögl- um í Fnjóskadal. Var hann farið að lengja eftir okkur og var þarna kominn á móti okkur. 134 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.