Heima er bezt - 01.04.1963, Side 23

Heima er bezt - 01.04.1963, Side 23
væri, og hvers vegna hún þyrfti að ganga fljótt fyrir sér, svo barnið kafnaði ekki. Það sem hann var annars að segja, fór reyndar inn um annað eyrað á mér og út um hitt. Hugur minn var dofinn, og aðeins ein hugsun komst þar að: — Aldrei skyldi ég gifta mig og eignast börn. Eg held að Björn hafi rennt grun í hugsanir mínar, því hann lagði hönd sína ofan á mína, þrýsti hana þétt og brosti hughreyst- andi til mín. „Svona, svona, ekki þessar áhyggjur, þær eru þarf- lausar,“ sagði hann aðeins, ofurlítið glettinn. Já, hann gat trútt um talað, fyrir hann var þetta daglegt brauð. „Svo heimsækjum við konuna seinna, og þá færðu aðra skoðun á málinu.“ Hann sleppti hönd minni, jók hraðann og tók báð- um höndum fast um stýrishjólið. Nú þurfti hann að flýta sér, því heima beið Dóra hans, og hann hafði lof- að henni fyrir löngu, að þegar hún dæi, skyldi hann halda í höndina á henni. Það heit varð hann að efna. Tveim tímum eftir að við komum heim, fór Dóra „heim“, eins og Anna gamla komst að orði. Mig lang- aði til að segja eitthvað eða gera eitthvað, en vissi ekki, hvað það ætti að vera, og þvældist bara fyrir sjálfri mér og öðrum. Það lá við að ég gleddist, þegar Björn bað mig að sjá um heimilið í nokkra daga, svo Anna gæti hjálpað veikri fjölskyldu úti í sveit. Mér var léttir í að vinna frá morgni til kvölds. Loks hafði ég þá eitt- hvað, sem ég varð að sjá um. Eftir 14 daga kom Anna aftur. Nú voru mislingarnir í rénun, enda veitti ekki af. Páll leit út eins og afturganga, og Björn var að niður- lotum kominn af þreytu og svefnleysi. Ég lá í rúminu daginn sem Dóra fór sína hinztu ferð úr kirkjunni upp í kirkjugarðinn, sem stóð á hæð ofan við þorpið. Ég hafði hjálpað Birni við að skreyta kist- una og undraðist, hve smekkvís og lipur hann var. Hann hafði næmt auga fyrir öllu fögru, bæði litum og tón- um. Eklú kom ég mér að því að spyrja hann, hvort Dóra hefði verið systir hans, og hann sagði mér ekkert um það, rifjaði aðeins upp nokkrar endurminningar, frá því hún var smátelpa. Það var auðheyrt, að honum hafði þótt mjög vænt um hana, hvernig sem skyldleika þeirra var varið. VII. Nokkrum dögum seinna heyrði ég þá feðgana Björn og Pál þrátta um eitthvað. Ég lagði eyrun að því, fyrr en ég heyrði, að þeir nefndu Hans. Rödd Björns var reiðileg og hörð, þegar hann sagði, að sér fyndist það fjandi hart að þurfa að láta heimili standa honum opið, hvenær sem honum þóknaðist að láta sjá sig. Og mætti hann ráða, sæist Hans aldrei fram- ar í þessu húsi. Páll gamli maldaði í mótinn. Ég heyrði að hann sagði, að loforð væru loforð, það vissi hann bezt sjálfur. Ég reyndi að heyra, hverju Björn svaraði, en hann talaði nú svo lágt, að ég heyrði ekki orðaskil. Ég lagði eyrað að veggnum og hélt niðri í mér andanum. „Við getum víst lítið gert í því, hún verður að ráða sér sjálft,“ sagði Páll. „Nei, nei, það skal aldrei verða, pabbi, þér getur ekki verið alvara.“ Birni var mikið niðri fyrir. „Hvernig getum við áfstýrt því, vinur minn,“ sagði Páll gamli þreytulega. En nú töluðu þeir svo lágt, að ég heyrði ekki meir, enda kom Anna inn í þessu, og ég fór með henni inn í eldhús. Alltaf voru einhver leyndarmál í þessu húsi. Ég varð að fá að vita, hvers vegna Björn hataði bróður sinn, og Páll umbar hann aðeins vegna gamals loforðs. Björn átti litla trillu, sem hann notaði í sjúkravitj- anir þangað, sem ekki var kominn bílvegur. Eitt kvöld- ið bauð hann mér á „skak“ með sér. Ég var upp til handa og fóta. Nú ætlaði ég að nota tækifærið og krefja hann sagna um óvináttu þeirra Hans. í bát gat hann ekki hlaupið frá mér, og ég skyldi svei mér fá að vita ástæðuna. Þessi von mín var sér þó til skammar. Þegar niður á bryggjuna kom, voru þau þar fyrir, Lóa, sem var ganga- stúlka á spítalanum, og Éeifur ráðsmaðurinn. Einmitt Lóa, sem sífellt góndi á Björn ástsjúkum augum, en til allrar hamingju veitti hann því víst enga eftirtekt. Ég tók líka eftir því, að hún sendi Leifi sams konar augna- ráð. Það gat vel verið, að hún beitti þessum grænu, hlæjandi augum á sama hátt á alla hlæjandi karlmenn. Við vorum ekki komin langt frá landi, þegar öll fýla var nr mér rokin, og ég var kát eins og þau hin. Við fiskuðum ekki mikið, en skemmtum okkur samt ágæt- lega. Lóa var kannski ekki sem allra verst, og í fyrsta sinn sá ég, að Leifur var vel þess virði að kynnast hon- um betur. Mér stóð samt ekki á sama, þegar Björn sleppti stýr- inu við Lóu og settist hjá henni. Heit bylgja af afbrýði- semi flæddi um mig alla. Því þurfti hann nú að vera svona kumpánlegur við hana. Ég var í sömu fýlunni, þegar ég steig á land, og ekki batnaði það, þegar Lóa hvíslaði að mér, um leið og hún kvaddi mig: „Það er engin hætta. Ég skal sjá hann í friði!“ Ég hefði getað barið hana í klessu og flýtti mér af stað heim, glóandi af vonzku og skömm. Gat stelpu- fíflið lesið hugsanir mínar? Björn náði mér ekki fyrr en heima við húsdyrnar. Ég bauð góða nótt og ætlaði beina leið upp, en hann tók þétt um handlegginn á mér og sneri mér að sér. „Svona býður maður ekki góða nótt eftir skemmti- lega samverustund,“ sagði hann alvarlegur, en ég sá brosið í munnvikjum hans og sleit mig lausa og hljóp upp á loft. „Asni, asni,“ tautaði ég og henti mér upp í rúmið. Ég vissi ekki, hvort ég átti við sjálfa mig eða Björn eða Lóu. Ég tönnlaðist bara á þessu eina orði, þangað til ég fór að skæla. Ég heyrði umgang niðri, og að einhver kom upp stigann. Mundi Björn kom inn til mín? Ó, guð, láttu hann koma. Hurðin opnaðist hljóðlega, ég lá kyrr og Heima er bezt 139

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.