Heima er bezt - 01.12.1963, Blaðsíða 6

Heima er bezt - 01.12.1963, Blaðsíða 6
vanti sárlega. Það getur ekki talizt auðugt að „gömlum bókum“. Blaðasafnið er mikið og gott og merkilegt. Allstórt filmusafn er til, og eykst það vonandi á kom- andi árum. I því eru nær allar prestsþjónustubækur landsins, manntöl, Æfir lærðra manna eftir Hannes Þorsteinsson, Prestaæfir Sighvats Borgfirðings, Ættar- tölubækur Snókdalíns og ýmislegt fleira af því tagi. Gaman væri ef safnið gæti orðið dálítil miðstöð norð- lenzkra fræða í framtíðinni. En svo munu ýmsar endurbætur og breytingar vera á prjónunum? Fyrir rúmu ári var safnið lokað í fjóra mánuði með- an verið var að gera nokkrar endurbætur á húsnæði þess og fyrirkomulagi, lesstofa og afgreiðsla voru mál- uð, fengin ný húsgögn, skipt um bækur í lesstofu og komið á sjálfbeina, þannig að menn ganga sjálfir í hill- urnar og velja sér bækur. Virðast þessar breytingar hafa fallið mönnum vel í geð, því að aðsókn hefur aukizt verulega, en annars er ókleift að hugsa um nokkrar verulegar breytingar í núverandi húsnæði. Verður það að bíða þangað til flutt verður í hið nýja hús, sem byrjað var á sl. sumar. Langmesta og mikilvægasta breytingin er sú, að við erum nú að byrja að skipta því í tvær deildir, útiánadeild og geymsludeild. Sam- kvæmt lögum fær safnið eitt eintak ókeypis af öllu prentuðu máli á íslenzku, og ber skylda að varðveita það. Þetta hefur ekki verið hægt á liðnum árum sakir féleysis, nema að nokkru leyti. Nú er ætlunin að breyta þessu, og frá og með árinu 1962 verða allar bækur, sem safnið fær frá Landsbókasafni skráðar sérstaklega og geymdar, og ekki lánaðar út úr safninu, nema í fræði- legum tilgangi eða sérstakar ástæður séu fyrir hendi og þá gegn betri tryggingu en venja er um útlánabækur. Þegar aldir líða, á geymsludeild safnsins að verða minn- isvarði um íslenzka menningu, og hið eiginlega bóka- safn. Auðvitað er kostnaðarauki að þessari breytingu, bæði kostar hún aukin bókakaup og alimjög aukna vinnu, því að starfið við geymslusafnið krefst enn meiri nákvæmni og alúðar, en þörf er á í venjulegri útlána- deild. Bækur útlánadeildar mundi ég reikna fremur sem rekstrarkostnað en eign. Þær ganga úr sér og týna töl- unni. Erlendis er talið, að bók þoli um 60 útlán að meðaltali og varla er sú tala hærri hérlendis. Ef til vill má eitthvað gera til þess bækurnar endist betur, t. d. taka bók úr umferð til aðgerðar um leið og hún byrjar að bila, því að þá gengur eyðileggingin jafnan fljótt, ef ekkert er að gert. Sennilega er einnig hagur í að klæða allar bækur í forlagsbandi í plastpappír, þótt hann sé að vísu nokkuð dýr. Þú kallaðir bækur útlánadeildar reksturskostnað, kaupið þið allar bækur hennar? Já, þetta 1—4 eintök af hverri íslenzkri bók, flestar í bandi, þótt ónýtt sé, því að annars kæmu þær of seint í hillurnar. Einnig kaupum við talsvert af erlendum bókum árlega, en þetta er allt dýrt eins og þú veizt. Hvaðan fær safnið rekstrarfé? Bæjarsjóður Akureyrar ber í raun réttri allan þung- ann af rekstri safnsins. Framlag bæjarins er 365 þúsund krónur í ár, ríkissjóður leggur til 37 þúsund og Eyja- fjarðarsýsla 12 þúsund krónur. En með nýju bókasafns- lögunum hækkar framlag ríkissjóðs í rúm 200 þúsund krónur. Annars er öll okkar framtíð komin undir skiln- ingi fjármálayfirvaldanna. Borgararnir eiga að heimta góða bókasafnsþjónustu, en hún kostar mikið fé. En þetta er að mínu áliti eyðsla, sem borgar sig, eins og skólarnir. Skólar og bókasöfn eiga í framtíðinni að sitja við sama borð enda er markmið beggja hið sama. Er ekki samvinna milli bókasafnanna í landinu? Nei, ekki er það enn, en það finnst mér knýjandi nauðsyn, að þau tækju upp náið samstarf og ættu bóka- fulltrúi og Landsbókasafn að hafa forystu þar um. T. d. ættu öll bókasöfn að hafa sameiginlega innkaupastofn- un á öllum erlendum bókum og rekstrarvörum. Sú stofnun ætti einnig að sjá um bókband fyrir öll söfn- in. Landsbókasafnið ætti að taka upp útgáfu skráning- arkorta, sem öll bókasöfnin gerðust áskrifendur að. Ár- bók Landsbókasafnsins, hið ágæta rit, þyrfti að birt- ast miklu örar en nú, enda er henni of þröngur stakk- ur skorinn. Komið gæti til mála, að jafnframt henni væri gefið út missirisrit, sem Landsbókasafn og bóka- fulltrúi stæðu að, þar sem birtar væru bókaskrár og fróðleikur er bókasöfn varðar. Já, og nú er byrjað að byggja yfir safnið, hyggur þú ekki gott til þess? Jú, loksins, loksins er bókhlaðan tekin að rísa af grunni. Og nú verður ekki aftur snúið. Kannske verð- ur hún mörg ár í smíðum. En einhvern tíma verður hún fullbúin, og við flytjum. Þetta mun verða mikil bygging og góð? Já, svo mikil og góð, að mér næstum óar við að flytja úr þessari blessaðri holu, sem við nú erum í og í þessa höJl. Húsið er um 30 m á lengd og 16 m breitt, tvær hæðir. Útlánadeild verður á neðri hæð, en lestrarsalur og filmusafn á efri hæð. Bókageymslur og vinnuher- bergi eru á þrem hæðum bakatil í húsinu, og verður Eléraðsbókasafnið á efstu hæðinni. Ég vona að þetta verði gott hús, sem gegni því menningarhlutverki, sem því er ætlað. Hafa þessi byggingarmál verið lengi á döfinni? Víst um það. Áreiðanlega hátt á sjötta áratug. Þegar amtsráðið afhenti sýslu og bæ safnið var það sett að sldlyrði, að byggt yrði yfir það, eldtraust hús með bókageymslu og lestrarstofu. Borgarafundur, sem hald- inn var um málið 1905, samþykkti að verða við þess- ari kröfu. Og efnt var til samskota og hálfum mánuði síðar voru komnar inn í loforðum 975 krónur, sem var mikið fé í þann tíma. Þetta mundi nálgast hundrað þúsund krónur í nútíma fé, og hefur þá verið meira en tíundi hluti alls byggingarkostnaðar. Heldurðu að við gætum núna safnað 500 til 600 þúsund krónum á örskömmum tíma til bókasafnsbyggingar? Ég held varla, en þó er ekki gott að segja, en hvernig fór þetta svo? 410 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.