Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.1963, Qupperneq 7

Heima er bezt - 01.12.1963, Qupperneq 7
Bæjarstjórnin treysti sér ekki til frekari framkvæmda, og málið lá niðri um langan tíma, þótt öðru hverju væri á því bryddað. Þannig var samþykkt 1915 að fá upp- drátt að bókasafnshúsi, og það ítrekað tveimur árum síðar. Um 1930 tók bókasafnsnefnd fjörkipp og ákvað nú að hefjast handa, en ekkert gerðist. Þá var það að Stúdentafélagið gekk í málið, og hóf forgöngu um, að á aldarafmæli síra Matthíasar yrði reist bókhlaða til minningar um hann. Hét það 30 þús. króna framlagi, og fékk bæ og ríki til að heita 30 þúsundum hvort. En þá var áætlað að bókhlaða mundi kosta um 100 þús- und. Efnt var til samkeppni um beztu teikningu og hlutu fyrstu verðlaun þeir arkitektarnir Gunnlaugur Halldórsson og Bárður Isleifsson, sem báðir voru þá kornungir menn. Þá fékkst einnig samþykkt, að bær- inn legði lóðina vestan Brekkugötu og norðan Odd- eyrargötu til bókhlöðubyggingar, þar sem byggingin' er nú hafin. Þegar svona langt var komið hefði mátt ætla að öllu væri siglt í trausta höfn. En nú fór sem fyrr, málið tafðist, fyrst vegna kreppuáranna og banns við fjárfestingu í bili. En síðar kom verðhækkun, og fé það, er safnazt hafði varð sífellt verðminna. Bætt var úr bráðabirgðaþörf safnsins með því að kaupa húsnæði það, sem það nú er í. Loks gerist það 10. maí 1960, að bæjarstjórn Akur- eyrar gerir svofellda samþykkt á fundi þann dag: „Bæjarstjórn samþykkir að minnast 100 ára af- mælis bæjarins m. a. með þeim hætti að láta reisa hús yfir Amtsbókasafnið á Akureyri. Verði undir- búningi hraðað eins og unnt er, og að því stefnt, að framkvæmdir verði hafnar á 100 ára afmælinu.“ Því miður seinkaði undirbúningi svo, að framkvæmd- ir hófust ekki fyrr en sl. sumar. Arkitektarnir, sem verð- laun hlutu fyrir aldarfjórðungi fyrir Matthíasarbók- hlöðuna, hafa nú teiknað bókhlöðuna á ný í nýjum stíl og eftir nýjustu kröfum nýrra tíma. Þú nefndir áðan héraðsskjalasafn. A það að verða ein deild safnsins? Já, það vona ég, og ekki sú ómerkasta. Því er ætlað- ur staður á efstu hæð hússins, og filmusafnið verður í nánum tengslum við það. Þarna er ætlunin að verðveita allt sltjalasafn kaupstaðarins ásamt öllum skjölum sýslu- manns- og bæjarfógetaembættisins, og verða öll þau skjöl, sem nú eru í Þjóðskjalasafninu frá þessum aðil- um, flutt hingað. Einnig viljum við safna hingað öll- um skjölum og skilríkjum, sem snerta Eyfirðinga og Akureyringa, annað hvort sem frumritum eða film- um, sé ekki annars kostur. Af þessum hlutum má nefna auk hinna eiginlegu opinberu skjala, bæjar, sýslu og sveitarfélaga, gerðabækur og reikninga alls konar fé- laga og stofnana, bæði þeirra, sem enn starfa og dáið hafa út, handrit alls konar, byggingarbréf og önnur jarðaskilríki, sendibréf, dagbækur, ljósmyndir og ann- að það, sem fróðleik geymir um sögu og menningu hér- aðsins, á liðnum tímum og í nútíð. Mér þykir trúlegt, að enn sé margt af slíkum hlutum úti um héraðið, en hver seinastur mun nú verða að ná þessu saman. En ekkert plagg er svo vesælt, að það geti ekki haft ein- hverja þýðingu seinna. Vænt þætti mér um, ef þú vild- ir láta það berast út um héraðið, að Amtsbókasafninu væri mjög kært að ná sambandi við áhugamenn víðs vegar um héraðið, sem hafa vildu forystu um söfnun þessara gagna, hver í sínu nágrenni. En þetta þolir enga bið. Safnið mun taka allt, sem berst, til góðrar geymslu þegar í stað, en tæpast er unnt að skrá það eða raða því fyrr en nýja bókhlaðan er fullbúin og í hana flutt. Mér skilst að skjalasafn þetta verði ekki síður sýsl- unnar og héraðsins en bæjarins. Þú nefndir áðan styrk úr sýslusjóði. Eiga þá allir Eyfirðingar rétt til afnota af safninu ef þeir kjósa? Amtsbókasafnið er sjálfseignarstofnun, undir stjórn, sem bæjarstjórn Akureyrar kýs. Og eins og ég gat fyrr ber bæjarsjóður meginþungann af rekstri þess. Þó get- ur það ekki talizt hreint bæjarbókasafn. Og það væri mér mikil ánægja, ef fólk úr grannsveitunum vildi nota sér þá þjónustu, sem safnið veitir. Að sönnu þori ég varla að auglýsa það mikið, því ef aðsókn ykist mikið frá því, sem nú er, gætum við varla sinnt öllum sem skyldi vegna bókaskorts. En ég vona og trúi því, að þetta standi allt til mikilla bóta. Eg er líka sannfærður um, að á komandi tímum mun safnið víkka starfssvið sitt. Einhvern tíma verður það gert að miðsafni fyrir allt Norðurland, sem sinnir þörfum lestrarfélaga og sveitabókasafna á svæðinu. Ég spái því einnig, að eftir aldarfjórðung hafi Amtsbókasafnið 2—3 bókabíla í þjónustu sinni, sem flytja þennan háskóla alþýðunnar út um dreifðar byggðir Norðurlands. Er það nokkuð fleira, sem þú vildir segja mér um safnið og þær vonir, sem við það eru tengdar? Ég gæti áreiðanlega haldið áfram að rabba við þig um þessa hluti miklu lengur en þú entist til að hlusta eða skrifa, en bezt mun vera að láta staðar numið. Ég vil einungis bæta þessu við. Ég el í brjósti miklar vonir um framtíð safnsins. Þegar það flytur í hina nýju bók- hlöðu verða mikil og góð þáttaskil í sögu þessarar elztu menningarstofnunar kaupstaðarins. I hálfa aðra öld hef- ur hún verið á hálfgerðum hrakhólum, og lengstum bú- ið við kotungskjör. I hinni nýju bókhlöðu ætti Amts- bókasafnið á Akureyri að geta orðið höfuðból, traust athvarf norðlenzkra mennta. — Draumar kynslóðanna rætast stundum seint — en þeir rætast. Ég þakka Árna Jónssyni fyrir góð og greið svör. Og vil að endingu taka undir þá áskorun hans til Eyfirð- inga og Akureyringa, að þeir bregðist vel við um söfn- un skjala til héraðsskjalasafnsins. Með því er unnið mik- ið menningarstarf, og það ætti að verða okkur Eyfirð- ingum metnaðarmál, að slíkt héraðsskjalasafn yrði sem fullkomnast. Að svo mæltu óska ég þess Amtsbókasafn- inu til handa, að það fái sem lengst notið síns dugmikla og hugmyndafrjóa bókavarðar, og draumar hans um framtíð safnsins og hlutverk rætist sem fyrst. St. Std. Heima er bezt 411

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.