Heima er bezt - 01.12.1963, Side 8

Heima er bezt - 01.12.1963, Side 8
GUÐMUNDUR J. EINARSSON: DRAUMUR HELGU og draumleiðsla Sigurðar Ola Sigurðssonar Sumarið 1916 og veturinn þar á eftir dvaldi ég í Flatey á Breiðafirði hjá merkishjónunum Guð- mundi kaupmanni Bergsteinssyni og Jónínu Eyjólfsdóttur konu hans. Kynntist ég þá hjón- um, er búsett voru þar í eynni. Hét maðurinn Sigurður Óli, og var einatt nefndur báðum nöfnunum. Ekki man ég ætt hans né uppruna, en maðurinn var skynsamur vel og dágóður hagyrðingur. Hafði hann flutzt til Flateyj- ar norðan frá Isafjarðardjúpi. Er hans m. a. getið í bók Gunnars M. Magnúss: „Skáldið á Þröm“. Kona Sigurðar hét Helga og var dóttir Þórðar, merk- isbónda, er lengi bjó á Kletti í Kollafirði. Var hún bráðvel gefin kona og drengur góður. Hún var yfir- setukona í Flateyjarhreppi og hafði verið það víðar. Sagt var að engin kona, sem Helga sat yfir, hefði dáið af barnsburði. Var þó uppi orðrómur um það, að hún skeytti lítið um dauðhreinsun líns þess og annarra tækja, sem hún notaði við nærkonustarfið. Þótti því með ólík- indum, hve vel henni tókst það. Eftirfarandi sögu sagði Helga mér sjálf: Hún var þá unglingsstúlka á fermingaraldri og heima í föðurgarði. Eina nótt dreymir hana, að til hennar kemur kona, var sú við aldur og sorgbitin mjög. Fátækleg var hún til fara, en þó hreinleg og í blárri skikkju yzt klæða. Konan yrðir á Helgu og biður hana að koma með sér, því dóttir sín liggi á gólfi og geti ekki fætt. Helga þóttist mótmæla þessu, þar sem hún hefði enga reynslu til slíkra starfa, en konan kvað það ekki myndi saka, ef hún aðeins færi höndum um dóttur sína. Lét Helga þá tilleiðast og fór með konunni. Koma þær nú að litl- um bæ, rétt í túnjaðrinum á Kletti, en þar átti enginn bær að vera, og ekkert nema klettadrangar, og þó ekki háir. Þær ganga nú inn í bæinn. A gólfinu liggur ung kona í einhvers konar sæng. Þykist Helga fletta klæðunum ofan af henni og fara um hana höndum, og í sama bili fæddist þa'r barn, en ekki man Helga, hvort það var sveinn eða meybarn. Þá segir eldri konan: „Ekki get ég launað þér sem skyldi, en svo vil ég um mæla, að þú verðir heppin nær- kona, ef þú leggur þann starfa fyrir þig, sem ég hygg að verða muni.“ — Fór síðan konan heim aftur með Helgu, og mundi hún draum sinn, er hún vaknaði. Mér er kunnugt um, að Helga var trúuð á draum þennan, og örugg var hún í starfi sínu alla tíð og tók móti fjölda barna. Auðvitað er frásaga þessi ærið þjóð- sagnakennd, en ég hefi samt viljað halda henni til haga, hvað svo sem segja má um gildi hennar. Helga Þórðar- dóttir var merk kona á margan hátt, gjöful við fátæka, þótt af litlum efnum væri að taka, því sjálf voru þau hjón fátæk alla sína tíð. Hún var „berdreymin“ sem kallað er, en flíkaði sjaldan draumum sínum. Sigurður Óh var drengur góður, en þótti töluvert laus í rásinni a. m. k. fyrr á árum. Þess er áður getið, að hann var vel gefinn maður og skáldmæltur. Hann var draumamaður mikill, eftir því sem hann sagði mér sjálfur. Ur Flatey fluttu þau hjón í Rúfeyjar með syni sínum Valdimar, sem fór að búa þar. Eg bjó þá í Herg- ilsey. Það var á árunum 1935—38, sem Sigurður sendi mér bréf, og fylgdi með því frásögn af einkennilegum fyr- irburði, sem fyrir hann hafði borið mörgum árum áð- ur. Sigurði var kunnugt, að á þeim árum safnaði ég eftir getu frásögnum af ýmsum „yfirskilvitlegum“ at- burðurn, og mun það hafa verið tilefni þess, að hann fór að senda mér þetta. Lét ég síðan plögg þessi inn í bók, sem ég var þá að lesa, eða réttara sagt, var að enda við að lesa. Féllu þau svo í gleymsku. Svo bar við fyrir fáum dögum, að ég tók bók þessa út úr bókaskápnum mínum og duttu þá þessi blöð út úr bókinni. Tók ég mig því til og hreinritaði þau, ef ske kynni, að eitthvert mánaðarritið vildi halda þeim til haga. Læt ég nú Sigurð segja sjálfan frá: „Árið 1910 átti ég heima í Álftafirði við ísafjarðar- djúp. Reri ég til fiskjar, þegar gaf, með manni sem bjó í næsta húsi við mig, en lcona mín var í kaupavinnu. Var ég því einn í húsinu um sumarið. Eg hefi verið berdreyminn um dagana, sérstaklega þó á yngri árum, því þá mátti heita, að hvern dag dreymdi mig fyrir daglátum. Gæti ég sagt marga slíka drauma, en þeir voru ekki sömu tegundar og sá „draumur“, sem ég nú ætla að segja frá. Til að girða fyrir misskilning vil ég taka það fram, að ég hafði aldrei heyrt minnst á „sálfarir“, en hafði þó óljósan grun um, að sálin losnaði á einhvern hátt úr líkamsfjötrunum, meðan líkaminn svæfi. Það ályktaði ég vegna ýmissa drauma, sem mig dreymdi. Fólk á 412 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.